Heimilisritið - 01.06.1955, Page 26
nærgætinn og tillitssamur, trúr
og traustur. Hvers gat maður
fremur óskað sér?
Emily lagði aftur bækurnar
og lét þær í skúffurnar, fór í
regnkápuna og gekk út á götu.
Hún vissi hvað hún þráði: róm-
antík! Karlmann, sem gat hleypt
funa í blóð hennar!
En nú var það um seinan. Eft-
ir aðeins einn mánuð yrði hún
orðin frú Henry Lomax, sem
stritaði við að þvo nærfatnað og
sængurlín í næstu fimmtíu ár-
in.
Hann beið hennar á horninu á
Stórstræti. Hann var axlabreið-
ur með úfið, ljóst hár, og bar
það utan á sér, að hann var mað-
ur, sem hægt væri að treysta.
„Góðan daginn, Henry. Þú ert
eitthvað svo þunglyndislegur.
Amar nokkuð að þér?“
Hann stundi þungan. „Nei,
ekkert sérstakt! Ég hef verið að
hugsa um hjónarúmin okkar.“
Hann varð vandræðalegur. „Við
höfum ekki talað um þau fyrr,
en það fer ekki að verða seinna
vænna. Viltu heldur — eh —
tvíbreitt rúm, eða eigum við að
hafa — eh — hvort rúmið fyrir
sig?“
Emily reyndi að verjast brosi.
„Ég hef sannarlega ekki hugsað
neitt út í það. En það er víst al-
gengara að hafa rúmin tvö
núna.“
„Já, það er víst,“ sagði hann,
og röddin bar vitni um að hon-
um létti.
Emily leit snöggt til hans og
sagði: „Henry, myndirðu drepa
dreka mín vegna?“
„Hvað segirðu?“
„Ég meina, að ef til væru
drekar og ég væri í hættu,
myndirðu þá drepa dreka til að
frelsa mig?“
Hann klappaði henni góðlega
á höndina. „Þú ert ekki alveg
eins og þú átt að þér að vera í
dag, vina. Það er erfitt fyrir þig
í skólanum nú, þegar prófin
standa yfir, og . . . “
Emily dró höndina snöggt að
sér og fann að hún fékk tár í
augun. „Nei, ég er ekki eins og
ég á að mér,“ sagði hún önug,
„og mig langar ekkert til að vera
alltaf eins! Mig langar ekkert til
að vera tuttugu og átta ára —
að búa í Bobbelsworth það sem
eftir er ævinnar og snúast í
kringum krakka og kjúklinga!“
Henry lyfti stórum vasaklút
upp að nefinu á henni. „Svona,
svona, þú þyrftir að fá svolitla
hvíld, elskan mín. Þú ert orðin
óstyrk á taugum út af öllu um-
stanginu við undirbúning brúð-
kaupsins. Earðu í nokkra daga
ferðalag. Til dæmis til Worthing.
24
HEIMILISRITIÐ