Heimilisritið - 01.06.1955, Side 30

Heimilisritið - 01.06.1955, Side 30
Komið og borðið morgimverð með mér. Það var svalt uppi í vinnu- stofu Pierres. Ferskt loft streymdi inn um gat á glugga- rúðunni, sem reynt hafði verið að lappa upp á með dagblaða- pappír. Emily klappaði saman lófun- um, þegar hún sá máltíðina, sem beið hennar á blikkdiski — egg og beikon og fleira góðgæti: „Þetta var reglulega fallegt af yður Pierre." „Og hvað hafið þér hugsað yð- ur að gera í dag?“ spurði Pierre, þegar þau höfðu kveikt í sígar- ettunni. „Ég hef hugsað mér að kaupa mér hatt,“ sagði Emily, „reglu- legan parísarhatt — kókett og smartan.“ „Þá skuluð þér fara til Goer- bers,“ sagði Pierre. „Það tekur honum enginn fram í þeim efn- um, bæði hvað snertir línur og liti.“ Emily fann hina örlitlu hatta- búð Goerbers .við næsta götu- horn. Feitur, smávaxinn maður kom stimamjúkur á móti henni. „Ég — ég ætlaði að fá mér hatt,“ stamaði Emily á frönsku. Monsieur lyfti feitri, lítilli hendi. „Nóg, mademoiselle! Ég veit.“ Hann tifaði í kringum hana, angandi af lauk og gneistandi af hugmyndum. „Komið þér aftur síðdegis. Ég ætla að skapa mesta snilldar- hatt, sem mér tekst nokkru sinni að búa til! Það skal verða hattur, sem fær prinsa til að horfa á eftir yður — sem mun vekja djöfla til lífs og seiða til sín alla litla fiska úr stórum höfum.“ Það lá við að Emily yrði um. og ó, er hún gerði sér í hugar- lund, hvernig slíkur hattur myndi verða. Það sem eftir var dagsins rölti Emily um í Versölum og skoð- aði allan íburðinn þar, en gat þó ekki varizt þeirri hugsun, hvern- ig Henry myndi geðjast að hin- um breiðu hvolfþakarekkjum, sem þar gaf að líta. Monsier Goerber hlaut að hafa hafa átt við erfiða fæðingu að stríða; hann var þreytulegur, þegar hún kom aftur í búðina. „Þessi hattur,“ tautaði hann með vot augu, „það býr enskur andi í honum — hann berjast gegn mér! Ég spýta á hann — hann spýta á mig á móti! Loks ég setja fót minn á hann. Eg sigra. Gjörið svo vel, mademoi- selle.“ Han rétti henni hattinn, sem hann hafði falið fyrir aftan bak. 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.