Heimilisritið - 01.06.1955, Síða 44
hvað þessi drykkur eiginlega sé,
:sem slíkum vinsældum hefur
náð. Það er hægt að fullyrða, að
drykkurinn er að langmestu
leyti vatn og sykur. En það er
meira, sem til.þarf, og þar koma
leyndarmálin til sögunnar. í
Coca-Cola er „kjarni“, sem að-
eins örfáir menn — ef það er þá
nema einn maður — vita hvern-
ig er saman settur. Og þessir fáu
menn eiga heima í borginni At-
lanta í sunnanverðum Banda-
ríkjunum. Þar suður frá er þessi
„kjarni“ framleiddur af mikilli
leynd og þannig, að sennilega
veit aðeins einn maður, hvernig
■öll formúlan er, en aðrir vinna
hver við sinn hluta hennar, svo
að ekki verði hlaupið á brott
með hana.
Þessum dularfulla „kjarna“ er
svo blandað í sykurblöndu, eða
sýróp, og þarf aðeins einn lítra
af „kjarna“ í 5000 lítra af sýrópi,
en síðan er ekki nema örlítið af
sýrópinu látið í hverja flösku af
„kók“. Aðeins „kjarninn11 er
framleiddur í Atlanta, en hann
er síðan sendur til verksmiðja
um allt land og erlendis, og
stundum er hann fyrst bland-
aður sýrópinu, en það síðan sent
til verksmiðjanna um heim all-
an, sem Ijúka við blönduna og
setja hana í flöskur.
Þannig er það með Coca-Cola
verksmiðjurnar um heim allan.
Þær „framleiða“ í raun og veru
ekki drykkinn, en fá ýmist
kjarnann eða sýrópið með kjarn-
anum tilbúið frá Bandaríkjun-
um, og ljúka síðan blöndunni
hver á sínum stað.
Margir halda, að þessi svala-
drykkur, sem farið hefur sigur-
för um allan heim, sé nýlegt
fyrirbrigði — einkenni þessara
síðustu og verstu tíma. En svo
er ekki. Saga Coca-Cola hefst
fyrir 75 árum, um 1880, í borg-
inni Atlanta í Georgiaríki í
Bandaríkjunum, sem enn þann
dag í dag er höfuðborg Coca-
Cola. Þar voru þá fjórir „sóda-
barir“ eins og það heitir nú orð-
ið hér á landi, og við eina þess-
ara stofnun vann maður, sem
hét J. S. Pemberton. Honum
datt í hug að blanda svaladrykk,
sem kostað gæti 5 aura. Hann
fann upp formúluna, sem er
leyndarmál enn þann dag í dag.
Það var bókari Pembertons, S.
M. Robinson að nafni, sem gaf
hinum nýja drykk nafn. Hann
kraflaði á blað „Coca-Cola“ og
er það rithönd hans, sem enn
er vörumerki félagsins. Þegar
menn líta á litlu flöskurnar eða
auglýsingar og sjá þessi orð,
ávallt með sömu klunnalegu
handskriftinni, þá er það hin
42
HEIMILISRITIÐ