Heimilisritið - 01.06.1955, Page 53
II. ÞÁTTUR
Stofur greifafrúarinnar.
Greifafrúin harmar framferði
eiginmanns síns. „Ást! Ó, heilaga
hrifning“. Hún ákveður að koma
upp um hann. Súsanna hleypir
Cherubino inn og er hann nú
klæddur í kvenmannsföt í því
skyni að hann aðstoði við brell-
urnar. Cherubino þykir vænt
um þetta því að fyrir vikið verð-
ur hann enn um stund í návist
Barbarinu. Cherubino: „Hvaða
kennd er þetta“. Allt í einu
krefst gneifinn inngöngu. Allt
lendir í fumi og fáti og Cheru-
bino er neyddur til að stökkva
út um gluggann. Greifinn skilur
ekki neitt í neinu. í ofanálag á
alla þessa furðulegu atburði
kemur nú garðyrkjumaðurinn
með bréf, sem hann hefur fund-
íð á nýsporuðu blómabeði. Enn
tekst Fígaró með miklum og há-
værum útskýringum að firra
greifafrúna vandræðum og leika
á greifann. í þessum svifum
kemur Marcellina og hamrar á
heitrofsmálinu en það verður til
þess að greifinn frestar brúð-
kaupi Fígarós.
III. ÞÁTTUR
Salur í höll greifans. Greifinn
hugsar sér að knýja Súsönnu til
að þýðast sig með því að hóta
að láta Fígaró ganga að eiga
Marcellinu. Tvísöngur: Greifinn
og Súsanna: „Of lengi hefur þú
leikið á mig“. Súsanna læzt ætla
að láta undan og segist munu
hitta hann í garðinum um kvöld-
ið. Það kemur nú upp úr kafinu,
að Marcelline er móðir Fígarós,
svo að ómögulegt er að knýja
hann til að ganga að eiga hana.
Greifafrúin og Súsanna koma
sér sama um, að refsa greifan-
um og Fígaró fyrir lauslæti
þeirra. Hvor þeirra dulbýr sig
sem hin og þannig fara þær út
í garðinn til fundar við elskhuga
sína.
IV. ÞÁTTUR
í garðinum. Súsanna bíður
komu greifans og syngur hina
fögru aríu: „Ó, kom minn kæri,
fagri“. Cherubino kemur, og þar
sem hann heldur að greifafrúin
sé Barbarina, kyssir hann hana.
Greifinn kemur, heldur að
greifafrúin sé Súsanna og er
mjög ákafur í ástleitni sinni.
Verða nú ýms misgrip og mis-
skilningur, en bráðlega segja
þær Súsanna og greifafrúin
hvemig í öllu liggur. Greifinn
viðurkennir að leikið hafi verið
á sig, og þrennir hamingjusamir
elskendur ganga inn í höllina
til að halda brúðkaup Fígarós
og Súsönnu, Cherubinos og Bar-
barínu. *
JÚNÍ, 1955
51