Fréttatíminn - 12.07.2013, Side 2
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
... ný bragðtegund
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
- 1
1-
05
09
Ný bragðtegund
með
pizzakryddi
Ný viðbót í ...
... baksturinn
... ofnréinn
... brauðréinn
... súpuna
eða á hrökkbrauðið
Íþróttahetjan og fjölmiðlamaðurinn dáði, Hermann Gunnarsson, varð bráðkvaddur í byrjun júní
aðeins 66 ára gamall. Blaðamaðurinn Orri Páll Ormarsson hafði í samvinnu við Hemma unnið að
ævisögu hans í rúmt ár þegar hann féll frá. Bókin var svo gott sem tilbúin þegar Hemmi lést og
í samráði við nánustu ættingja hans hefur verið ákveðið að bókin muni koma út í haus. Eins og
Hemmi sjálfur hefði viljað.
O rri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgun-blaðinu, var snemma árs 2012 fenginn til þess að skrifa litríka ævisögu Hermanns
Gunnarssonar. Hann og Hemmi höfðu unnið að
bókinni í rúmt ár þegar Hemmi féll óvænt frá í fríi
á Tælandi. Þeir voru komnir það langt með bókina
að Hemmi var búinn að fara vandlega yfir handritið
og tók nýjustu útgáfu þess með sér í sína hinstu
för. Því var ákveðið, í samráði við nánustu
ættingja hans, að halda stefnunni og gefa
bókina út.
Jón Þór Eyþórsson, hjá Senu sem
gefur bókina út, segir að eftir fund með
nánustu ættingjum Hemma hafi verið
ákveðið að gefa bókina út í haust. „Við
ákváðum þetta enda er þetta það sem
Hemmi hefði viljað,“ segir Jón Þór.
Skrásetjarinn Orri Páll tekur í sama
streng. „Við byrjuðum á þessu vorið 2012
þannig að við Hemmi vorum búnir að
vinna að bókina síðustu fjórtán eða fimm-
tán mánuðina sem hann lifði. Þannig að
bókin var þannig séð tilbúin,“ segir Orri
Páll og bætir við að þeir hafi aðeins átt eftir
að fara yfir þau verkefni sem Hemmi var að
fara að taka sér fyrir hendur. „Við ætluðum
að ganga frá því þegar hann kæmi heim
úr fríinu. Hann var búinn að fara vel
yfir handritið. Fékk fyrstu drögin
að því fyrir áramót og fór með
síðustu uppfærðu útgáfuna af því
í þessa hinstu ferð.“
Orri Páll segir að óvænt frá-
fall Hemma hafi vitaskuld breytt
öllum forsendum en þeir hafi
verið komnir nógu langt til þess
að hann sæi fært að halda áfram
án söguhetjunnar. „Bókin var
það langt komin og hann búinn
að lesa hvern einasta staf sem
í henni stendur sjálfur. Annars
hefði ég aldrei tekið í mál að
gefa hana út. Ef þetta hefði verið
komið skemur á veg og Hemmi
ekki búinn að lesa neitt yfir þá
hefði þessu verið sjálfhætt.“
Eins og alþjóð veit lifði Hemmi
Gunn viðburðaríku lífi. Hann
var á sínum tíma einn allra besti
knattspyrnumaður landsins, var
vinsælasti sjónvarpsmaður Íslands,
tónlistarmaður af guðs náð og al-
mennur gleðigjafi þótt hann tækist
á stundum á við sjálfan sig. Saga
Hemma verður því væntanlega
skemmtileg lesning eins og hann
sjálfur og huggun harmi gegn að
honum og Orra Páli hafi tekist að
færa lífsferil þessa eins dáðasta Ís-
lendings síðari tíma í letur áður en
óvænt kallið kom.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hemmi Gunn ÆvisaGan kemur út í Haust
Fór með handritið í
sína hinstu för
Bókin var það langt kom-
in og hann búinn að lesa
hvern einasta staf sem í
henni stendur sjálfur.
Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík mun
halda fyrstu víkingahátíðina sína „Ingólfshá-
tíð“ til minningar um Ingólf Júlíusson ljós-
myndara sem lést úr bráðahvítblæði fyrr á
árinu en síðar landnámsmannsins Ingólfs
Arnarsonar.
Dætur Ingólfs Júlíussonar munu reisa fána
Ingólfshátíðar. „Þetta er fyrsti fáni Reykjavík-
urborgar frá árinu 1930 eftir Tryggva Magn-
ússon sem var í gildi til ársins 1956 þegar
núverandi fáni Reykjavíkurborgar var tekinn
í notkun, árið 1957,“ segir Gunnar Ólafsson.
„Sex mjög vel útbúnum og glæsilegum
víkingatjöldum verður stillt upp í Hljómskála-
garðinum en leikmyndin er sjálfur Hljóm-
skálagarðurinn. 20 manna hópur víkinga er
á leiðinni til landsins. Þeir koma frá Englandi
og Noregi og við erum sjálf um 30 manns.
Við munum hafa hestasýningu og bardaga-
sýningu en leika þetta síðan eftir hendinni.
Hátíðin verður frá klukkkan 12-18 á morgun
laugardag og á sunnudag. Það er víst búið
að spá einhverri lægð þannig að við verðum
að spila þetta eftir því, þá verðum við inni í
tjaldinu,“ segir Gunnar.
Gunnar var í miklum samskiptum við borg-
ina við undirbúning hátíðarinnar. „Borginni
leist mjög vel á hugmyndina, og samskiptin
við borgina hafa verið mjög góð,“ segir hann.
Sýningin verður fyrir alla og verður ókeypis.
„Þessi sýning verður alltaf ókeypis í framtíð-
inni. Þessi sýning er stoltið okkar, við höfum
svo gaman af þessu,“ segir Gunnar.
Gunnar segir að Ingólfshátíð muni byrja
með smáu sniði en markmiðið sé að láta hana
stækka og gera hana að mjög stórum við-
burði í Reykjavík í framtíðinni. „Við getum
lært af þeim sem héldu hinsegin daga. Í
dag er sú hátíð eins og 17 júní. Það sem við
höfum lært frá þeim er að hafa trú á því sem
maður er að gera.“ Gunnar segir að það hafi
komið margoft fram í samskiptum sínum við
útlendinga að þeir vilji kynnast alvöru vík-
ingamenningu þegar þeir heimsæki landið.
Því geti þessi hátíð laðað fólk til landsins.
Dætur Ingólfs heitins
Júlíussonar munu reisa
fána Ingólfshátíðar. „Þetta
er fyrsti fáni Reykjavíkur-
borgar frá árinu 1930 eftir
Tryggva Magnússon sem
var í gildi til ársins 1956.
einHerjar víkinGaHátíð í HljómskálaGarðinum um HelGina
Fáni Reykjavíkur endurvakinn á Víkingahátíð
María
Elísabet Pallé
maria@
frettatiminn.is
Forsætisráðherra
sprengir
viðhafnarsprengju
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra setur í dag, föstudag,
með formlegum hætti í gang fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng, þegar
hann ýtir á hnappinn og sprengir
svokallaða viðhafnarsprengju við
jarðgangagerðina. Sprengingin er
áætluð milli klukkan 14 og 15, að því
er Vikudagur greinir frá. Þar kemur
fram að af öryggisástæðum verði að
takmarka fjölda þeirra sem verða
viðstaddir þessa fyrstu sprengingu við
gangamunnann á Svalbarðsströnd og
því er fólk beðið um að gera sér ekki
ferð á svæðið af þessu tilefni. Talið
er víst að sprengingin heyrist vel frá
Akureyri.
Arnarhræ fannst í Djúpafirði
Arnarhræið
var vel heil-
legt, jafnvel
augun voru
enn heil,
segir á síðu
Arnarsetursins
í Króksfjarðar-
nesi. Merk-
ingar sýndu
að fuglinn var
átta ára þegar
hann drapst.
Mynd/Arnarsetur
Íslands
Dauður örn fannst í Djúpafirði í Gufudalssveit í Reykhólahreppi nýverið. Starfsmenn
Arnarseturs Íslands í Króksfjarðarnesi náðu í fuglshræið daginn eftir, að því er fram
kemur á síðu þess, en það var í fjörunni. Lasburða örn hafði sést á þessum slóðum
vikurnar á undan en ekki tókst að fanga hann. Reyndist um sama fugl að ræða.
Fuglinn var heillegur og hefur því drepist nýlega en var orðinn ansi horaður, að því
er segir á síðu Arnarsetursins. „Örninn var með litmerki á báðum fótum, en þau geta
sagt til um uppruna hans og aldur. Samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands var hann merktur sem ungi í hreiðri við Húnaflóa sumarið 2005 og náði því átta
ára aldri. Síðan þá höfðu engar fréttir borist af honum en tvö systkini hans hafa sést á
síld í Kolgrafafirði undanfarna vetur.“ - jh
Strandblakvellir í
Kjarnaskógi
Unnið er að gerð tveggja strandblakvalla í
keppnisstærð í Kjarnaskógi við Akureyri, að
því er fram kemur á vef Akukreyrarbæjar.
Áætlað er að vellirnir verði tilbúnir til notk-
unar um næstu mánaðamót eða fyrir versl-
unarmannahelgi. Strandblakvöllum er alltaf
að fjölga og eru nú komnir tæplega 40 vellir
sem hægt er að spila á, reyndar í mismunandi
ástandi, að því er segir á vefnum strandblak.
is. Á morgun, laugardaginn 13. júlí, verður
þriðja stigamót sumarsins haldið. Að þessu
sinni verður mótið haldið að Egilsstöðum en
þetta er í fyrsta sinn sem þar er haldið stiga-
mót BLÍ. Tveir vellir eru á Egilsstöðum, annar
með skeljasandi en hinn með svörtum sandi
sem sagður er í senn erfiður og skemmtilegur.
Tvö fyrri stigamót þessa sumars fóru fram í
Kópavogi og á Þingeyri. - jh
Hermann Gunnarsson og Orri Páll
Ormarsson voru langt komnir með
ævisögu Hemma þegar hann féll
frá og bókin kemur því út með
haustinu. Alveg eins og Hemmi
vildi hafa hana.
2 fréttir Helgin 12.-14. júlí 2013