Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 12
Ég var döpur þegar ég las athugasemdir um konuna sem sigrað á Wimbledon
„Of ljót til að vinna á Wimbledon“
M arion Bartoli heitir hún, nýjasta stjarn-an í tennisheim-
inum. Hún kom sá og sigraði
á Wimbledon-mótinu en fyrir
mótið var hún í 15.
sæti á styrkleikalista
Alþjóðatennissam-
bandsins. Hin
franska Bartoli er
hér á myndinni með
bikarinn sem kallast
Venus Rosewater-
diskurinn að fagna
stærsta áfanganum
í lífi sínu. Misjafnt
er hvað fólk hugsar
þegar það sér slíkum
sigri fagnað. Sýnt var
frá þessu í beinni út-
sendingu á BBC þar
sem kynnirinn John Inverdale
velti því fyrir sér hvort pabbi
Bartoli hefði sagt við hana
sem unglingsstúlku að hún
komi aldrei til með að hafa
útlitið með sér, „never going
to be a looker,“ og því þurfi
hún að bæta upp fyrir það
með því að vera sérstaklega
hörð í horn að taka á tennis-
vellinum. BBC hefur beðist
afsökunar á þessum ummæl-
um kynnisins, sem raunar er
bæði reyndur og virtur.
Í úrslitaleiknum keppti
Bartoli við Sabine Lisicki,
ljóshærða fegurðardís. Útlit
Lisicki virtist heilla áhorfend-
ur ef marka má athugasemdir
af Twitter um útlit hennar, en
þó frekar um útlit Bartoli. Hér
eru aðeins nokkrar, þýddar
á íslensku. Viðkvæmar sálir
skulu hætta núna að lesa.
„Ég hélt með Lisicki því
Bartoli er ljót og hún lítur út
fyrir að hafa hellt Bertolli-olíu
yfir andlitið á sér og hárið, ol-
íuborna franska tík.“ „Bartoli
er of ljót til að vinna á Wimble-
ton.“ „Bartoli lítur út eins og
sambland af karlmanni og
apa.“ „Ég vorkenni þeim sem
veitti verðlaunin fyrir að hafa
þurft að kyssa Bartoli, þetta
feita, ljóta, sveitta svín.“ „Jæja,
Bartoli, nú ertu komin með
diskinn þinn. Farðu aftur í
eldhúsið og búðu til samlokur
handa öllum.“ „Marion er feit
og pirrandi. Hún er samt með
stífar geirvörtur.“ „Bartoli
er líkari karlmanni en konu.
Ég hata hana.“ „Ég held með
Lisicki því hún er flott. Bartoli
yrði ekki einu sinni nauðgað.“
Eftir að lesa þessi ummæli
var ég innilega döpur, bæði
í sálinni og í hjartanu. Mér
fannst ég finna fyrir líkam-
legri depurð og tómleika yfir
því að stórkostleg íþróttakona
fái þessi viðbrögð þegar hún
sigrar á virtasta tennismót
heims. Ég var döpur yfir því
að til sé fólk sem lítur framhjá
hæfileikum hennar og gerir
lítið úr útliti hennar. Ég var
líka döpur yfir því að til sé
fólk sem ákveður að dreifa
slíku til annarra með því að
skrifa það á Netið.
Það er samfélagsmein
hvernig útlit kvenna
er notað til að
niðurlægja
konur og
halda
aftur af
þeim.
Sam-
félagið
allt tekur
þátt í þessu
með hjálp frá
auglýsingum,
tónlistarmyndböndum,
snyrtivöruframleiðendum og
fatahönnuðum. Kröfurnar
eru þannig að jafnvel fegurstu
konur finna eitthvað hjá sjálfri
sér, eitthvað smáatriði, sem
ekki er nógu gott. Ofurfyrir-
sætan Cindy Crawford sagði
á dögunum að hún hefði
heitið sjálfri sér að sættast við
líkama sinn fyrir fimmtugt.
Jahá.
Í fyrstu viðtölunum eftir
sigurinn sagði Bartoli að hún
tryði því vart að æskudraum-
urinn hefði ræst: „Þetta er
besti dagur lífs míns.“ Hún
hughreysti líka Lisicki og
sagðist viss um að hún fengi
annað tækifæri til að berjast
um titilinn.
Ég veit ekki hvort Bartoli
hefur lesið allt sem um hana
var skrifað á Twitter en hún
frétti allavega hvað BBC-
kynnirinn sagði. Hennar
viðbrögð: „Þetta er algjört
aukaatriði. Ég er ekki ljós-
hærð, það er rétt. Hefur mig
dreymt um að komast á samn-
ing sem fyrirsæta? Nei, því
miður. En hefur mig dreymt
um að sigra á Wimbledon? Já,
heldur betur.“
Vikan í tölum
www.volkswagen.is
Fullkominn
ferðafélagi
Volkswagen Tiguan
Tiguan Sport & Style kostar frá
6.180.000 kr.
Volkswagen Tiguan er einn best búni
sportjeppinn á markaðnum. Fullkomið
leiðakerfi fyrir Ísland sér til þess að þú
ratir alltaf rétta leið. Svo getur komið
sér vel að hafa rétta
aukabúnaðinn.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Volkswagen Tiguan fáanlegur með lykillausu aðgengi
Eyðsla frá 5,8l/100 km
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
8,6
milljarða vantar
á þessu ári til
að verja grunn
heilbrigðis-
þjónustunnar, að
því er Kristján
Þór Júlíusson
heilbrigðis-
ráðherra segir.
Landsmeinn
eiga tvo kosti að
mati ráðherrans,
að horfa upp á
heilbrigðiskerfið
molna niður eða
gera þjóðarsátt
um að verja það.
ár tæp eru síðan Ólafur
Ragnar Grímsson var
kjörinn forseti Íslands.
Hann er nú orðinn sá lýðræðislega kjörni þjóðarleiðtogi sem lengst hefur
setið í Evrópu. Reyndar má deila um hvort leiðtogi Hvíta-Rússlands,
Alexander Lukashenko, skáki Ólafi Ragnari. Hann hefur setið í tæp 19 ár
en umdeilt er hvort síðustu forsetakosningar þar voru lýðræðislegar.
17
ár eru frá opnun Hvalfjarðarganga. Allar skuldir
vegna ganganna verða greiddar eftir fimm ár, að
sögn Gísla Gíslasonar, formanns Spalar, sem rekur
göngin. Þá verða þau afhent ríkinu. Gísli gerir því
ráð fyrir því að frá árinu 2018 geti ökumenn ekið
gjaldfrjálst um göngin. Um 5.200 bílar aka um
Hvalfjarðargöng á degi hverjum að meðaltali.25,1
gráðu hiti mældist
á Hallormsstað og
á Egilsstaðaflug-
velli klukkan þrjú á
miðvikudaginn. Þá
var hitinn 24 gráður
í Ásbyrgi og 22,8
gráður á Akureyri.
Á meðan skýldu
íbúar höfuðborgar-
svæðisins sér undir
regnhlífunum.
15
OPNUM NÝJAN STAÐ UM HELGINA
GIRNILEGAR SAMLOKUR, KRÆSILEGAR VEFJUR MEÐ
NÝPRESSUÐUM DJÚS AÐ SMEKK HVERS OG EINS.
NJÓT TU HELGARINNAR
KIRKJUTORG 4 … 101 REYKJAVÍK … SÍMI: 571 1822
…
12 viðhorf Helgin 12.-14. júlí 2013