Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 34
34 ferðir Helgin 12.-14. júlí 2013
sumarfrí Borgar- og sólstrandarferð í einum og sama pakkanum
www.utilif. is
Scarpa Hekla GTX
Klassískir gönguskór
fyrir dömur.
Verð: 59.990 kr.
Meindl Kansas GTX
Sérlega þægilegir og
traustir, með Gore-Tex
vatnsvörn.
Fáanlegir í dömu- og
herra útfærslu.
Verð: 42.990 kr.
Meindl Island GTX
Hálfstífir og marg-
rómaðir.
Fáanlegir í dömu- og
herra útfærslu.
Scarpa Ladakh GTX
Vinsælir og öflugir í
lengri göngur.
Verð: 59.990 kr.
Betra útsýni
í betri gönguskóm
Verð: 52.990 kr.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
20% afsláttur
Gildir í júlí
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
í þessum stórbæjum geturðu stungið þér í mannhafið eftir strandferð í miðri borginni.
Kristján Sigurjónsson mælir með
þessum sex borgum fyrir þá sem
vilja sameina borgar- og sólar-
strandaferð.
Barcelona
Önnur fjölmennasta borg Spánar
er ljómandi fínn strandbær. Bar-
celoneta hverfið liggur að Miðjarð-
arhafinu og þar kæla borgarbúa
sig niður í bláum sjónum og njóta
dagsins í ró og næði á ströndinni.
Það er gott úrval af matsölustöðum
í Barceloneta og svo tekur aðeins
hálftíma að rölta á Römbluna fyrir
þá sem vilja komast í stórborgar-
stemningu.
Berlín
Vötnin og áin Spree sjá um að kæla
íbúa Berlínar niður á sumrin. Við
Wannsee er að finna stærstu bað-
strönd Evrópu sem er inn í miðju
landi og við Weissensee fer vel um
börn. Badeschiff laugin, út á miðri
Spree, er líka vinsæl þegar hitinn
fer langt yfir tuttugu gráðurnar.
Kaupmannahöfn
Amager Strand er manngerð
strönd, ekki svo langt frá Kastrup
flugvelli. Þar er nægt pláss fyrir
þá sem vilja sóla sig eða baða í
volgum sjónum. Það er minnsta
mál að taka metró þangað út eftir.
Við Islands brygge er svo eitt af
nýjustu kennileitum borgarinnar,
Havnebadet. Þar er hægt að stinga
sér af 5 metra háum palli eða busla
í barnalauginni. Við Klampen-
borg er líka ljómandi fín strönd,
Bellevue. Þar geta fastakúnnar
í Epal sest inn á Arne Jacobsen
veitingastaðinn á milli boltaleikja í
sandinum.
Stokkhólmur
Þeir sem heimsækja Feneyjar
norðursins á sumrin geta valið úr
nokkrum stöðum til að svamla í
svalandi vatni. Suðaustur af mið-
borginni er það hinn græni Lång-
holmen sem lokkar til sín Stokk-
hólmsbúa á góðviðrisdögum.
Á hólmanum er hægt að breiða
úr sér á grasinu og fylgjast með
alls kyns bátum og skútum sigla
framhjá. Í norðurhluta borgarinnar
er suðrænu stemninguna að finna
við Brunnsviken vatnið sem liggur
meðfram hinum ægifagra Haga
garði, þar hefur krónprinsessan
býr. Við Frescati Haga busla börn
og á klöppunum allt í kring sóla
þeir sig sem vilja njóta blíðunnar í
friði og ró.
Toronto
Það þarf ekki að fara langt út
fyrir háhýsabyggðina í stærstu
borg Kanada til að komast á eina
vinsælustu baðströndina við Ont-
ario vatn. Þú sest einfaldlega upp
í sporvagn á leið í austur eftir
Queen Street og eftir um korter
frá miðborginni ertu kominn út
að The Beaches hverfinu. Þar er
þriggja kílómetra löng sandströnd,
stór sundlaug og hellingur af veit-
ingastöðum og verslunum.
Zürich
Íbúarnir halda því fram að vatnið
sem rennur í gegnum Zürich
sé næstum drykkjarhæft. Þeir
hika því ekki við að skella sér út
í þær ár og vötn sem finna má
innan borgarmarkanna. Það er úr
fjölmörgum baðstöðum að velja
og flestir rukka fyrir aðganginn.
Við Lido Mythenquai er 250 metra
löng sandströnd sem er öllum
opin. Þar geturðu synt í Zürich
vatni og dáðst af fjallasýninni,
spilað borðtennis og jafnvel fengið
lánaða bók á bókasafninu.
Kristján Sigurjónsson gefur út ferðavefinn
Túristi og þar geturðu lesið meira tengt
ferðalögum til útlanda.
Baðströnd í borginni
Í Stokkhólmi eru nokkrar ljómandi bað-
strendur og í skerjagarðinum fyrir utan
eru óteljandi huggulegar eyjar. Mynd
Henrik Trygg
Heimamenn í Toronto kalla hverfið
austur af miðborginni, The Beaches.
Mynd Doug Brown
Við Arena Badeschiff safnast Berlínarbúar saman þegar hitinn er kominn vel yfir tuttugu gráður og jafnvel enn hærra. Það
getur nefnilega orðið ansi heitt í höfuðborg Þýskalands.