Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Page 23

Fréttatíminn - 12.07.2013, Page 23
REGATTA 8 25% afsláttur Kr. 467.500,- Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • fastus@fastus.is • www.fastus.is Tilboð gilda til og með 31. ágúst eða á meðan birgðir endast. Njóttu lífsins Hafðu samband og við hjálpum þér að finna rafskutlu við hæfi Fastus býður uppá fjölbreytt úrval af rafskutlum Meðfærilegar í notkun • Einfaldar stillingar NEO 8 25% afsláttur Kr. 345.000,- É g hafði enga reynslu af því að fara í svona ferð en hafði töluverða reynslu í kajaksiglingum. Í rauninni verða verkefni ekki mikið stærri í þessu sporti. Ísland þykir mjög erfitt á heimsmæli- kvarða og er með erfiðari heimssvæðum að róa,“ segir Guðni Páll Viktorsson, starfsmaður hjá Össuri. Hann hefur frá 30. apríl síðastliðnum verið í útilegu og er búinn að róa um það bil 1650 km á kajak í kringum landið til þess að afla fjár fyrir Samhjálp. Áætlunin er að fara allan hringinn og á hann um það bil 650 km eftir. Guðni segist vera mjög ánægður yfir tæki- færinu að fara út í þetta ferðalag. Veðurguðirnir hafa verið Guðna óhagstæðir og ferðin hefur tafist um hálfan mánuð vegna veðurs. „Ég er nátt- úrulega búinn að vera alveg ótrúlega óheppinn með veðrið og öll önnur sumur hefðu gengið betur en akkúrat þetta, maður verður bara að takast á við það. Ég er nokkuð viss um að þetta er erfiðasta ferð sem hefur verið farin á kajak í kringum landið, veður- lega séð,“ segir Guðni. Vinnuveitendur Guðna hafa sýnt honum mikinn skilning, að hans sögn, og hafa staðið mjög þétt við bakið á honum. Hann segir að það hefði ekki verið hægt að fara út í ferðina nema með skilningsríka vinnuveitendur. Guðni segir að ferðin hafi verið undirbúin í þaula og að hann hafi sjálfur undirbúið sig andlega og líkam- lega í um eitt ár með því til dæmis að sækja námskeið erlendis. „Gísli H. Friðgeirsson aðstoðaði mig mjög mikið en hann fór í kringum landið árið 2009, eini Íslendingur- inn sem hefur farið slíka ferð,“ segir Guðni. Guðni segist reyna að bola hræðslutilfinningum burt þegar aðstæður verða erfiðar enda þurfi hann að vera í réttu formi til að einbeita sér og fara varlega. „Ég er með frábært fólk heima fyrir, bæði fjölskyldan og menn sem ég er með í landi sem taka fyrir mig veður og annað,“ segir hann. Guðni segir að vel hugað sé að öryggismálum, „Minn öryggisbúnaður felst fyrst og fremst í því að ég er með neyðarsendi á mér sem er í beinu sambandi við Landhelgisgæsluna og þeir fylgjast mjög náið með mér og stundum oft á dag, þegar ég fer af stað og þeg- ar ég kem í land. Og svo er ég með síma og talstöð,“ segir Guðni. Einnig er hann með staðsetningartæki sem kveikt er á þegar hann er að róa og menn sem þekkja til fylgjast vel með. Þó segir Guðni að hann þurfi að vera mjög duglegur að halda uppi eigin örygg- iskröfum. „Ef mér líst ekki á, þá fer ég bara í land og reyni að finna mér öruggan stað í landi,“ segir hann. „Þetta er náttúrlega aldrei 100 prósent öruggt, eins og í öllum leiðöngrum er alltaf einhver áhætta,“ segir Guðni. Það er um það bil einn þriðji eftir af ferðinni hjá Guðna en talið er að erfiðasti kaflinn sé að baki. „Það er ekki eins og ég sé að fara róa niður á móti núna, eins og margir halda, að Austurlandið halli niður á við. Það er ekki alveg svo gott,“ segir Guðni og hlær. En Guðni hefur líka fengið logn og blíðu á ferð sinni á kajak í kringum landið og segir að á slíkum dögum sé ferðin draumi líkust. „Að vera einn breytir manni og maður fær hreinlega öðruvísi sýn á lífið,“ segir Guðni. Guðni Páll safnar áheitum til styrktar Samhjálp. Hægt er að heita á hann á heimasíðu verkefnisins: aroundiceland.wordpress.com. Markmið Samhjálpar er að styðja við einstaklinga sem hafa farið halloka í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra sam- félagslegra vandamála. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Guðni Páll kynnir verkefnið sitt, Lífróður Samhjálpar. Bragagata, Laugavegur og Suðurlandsbraut / 562 3838 / eldsmidjan.is Við sækjum á bra braBragagötu! viðtal PB Helgin 12.-14. júlí 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.