Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 37
heilsa 37Helgin 12.-14. júlí 2013 Sem 3ja barna móðir, hlaupari /- þríþrauta- kona og hársnyrtir verð ég að passa vel upp á líkamann minn. Ég er rétt skriðinn yfir þrítugt, í líkamlega krefjandi vinnu og var farin að finna fyrir stirðleikum í liðum, sérstaklega fingrum og ökkla sem hefði getað komið niður á starfi og íþróttum. Sú tilfinning var óþægileg. En var svo heppin að fá ábendingu frá viðskiptavini um ágæti NutriLenk sem ég hef notað síðan með frábærum árangri. Fann árangur fljótt Ég ákvað að fjárfesta í bæði í Nutrilenk GOLD og ACTIVE og tók inn samkvæmt leiðbeining- um og strax á annarri viku var ég farin að finna gríðarlegan mun. Ökklarnir eru orðnir miklu betri, minni stirðleiki í fingrum, ég er ferskari í líkamanum og get stundað mitt sport án þess að finna fyrir verkjum og stirðleika. Nutrilenk verður tekið með morgunmatnum mínum um ókomin ár svo ég geti haldið áfram að lifa lífinu verkjalaus, sinnt börnunum mínum, starfinu og bætt mig í sportinu mínu.. Nutrilenk er fáanlegt í estum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna Skráðu þig á facebook síðuna Nutrilenk fyrir liðina - því getur fylgt heppni! Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is P R E N T U N .IS NUTRILENK Active • Eykur liðleika og sér til þess að lið- irnir séu heilbrigðir og vel smurðir. • Hjálpar liðunum að jafna sig eftir æfingar og átök. • Inniheldur vatnsmeðhöndlaðan hanakamb, hátt hlutfall af Hýalúrónsýru. NUTRILENK Gold • Fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og slitnum liðum. • Unnið úr fisk- og hvalbrjóski, hátt hlutfall af kóntrótín súlfat. • Eitt mest selda fæðubótaefnið fyrir liðina á Íslandi síðastliðinn ár.    NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúrleg bætiefni fyrir liðina NUTRILENK Active og NUTRILENK Gold eru efni sem geta unnið mjög vel saman fyrir fólk sem þjáist af liðverkjum. Liðheilsan skiptir mig miklu máli Ebba Særún Brynjarsdóttir  ævintýraferð á hjóli um eyjar í Kvarner-flóa Hjólagarpar gista í seglskipi É g hef mikið farið með fólk í hefð-bundnari ferðir en þessi er algjört ævintýri þar sem við hjólum um eyjar í Kvarner-flóanum í Króatíu,“ segir Brandur Jón Guðjónsson, fararstjóri hjá ferðaskrifstofunni Íslandsvinum. Hann fer í þrjár hjólaferðir í sumar en finnst ferðin til Króatíu hafa algjöra sér- stöðu. Kvarner-flóinn er við Adríahaf, austan við Istria-skagann, þar sem er mikil náttúrufegurð. Ferðin er í byrjun september og er alls engin keppnisferð heldur bara fyrir venjulegt fólk. „Fólk þarf að vera í þannig formi að það geti setið á hjóli allan daginn nokkra daga í röð. Við förum bara á þeim hraða sem þarf til að njóta þess sem fyrir augu ber,“ segir Brandur. Það sem greinir ferðina einnig frá öðrum er að ferðalangar hafast við í bát sem siglir fyrir seglum, flytur þá á næstu eyju, siglir svo fyrir hana og tekur á móti hjólagörpum að dags- leiðinni lokinni. Þeir gista í bátnum og snæða, og þá er förinni heitið á næstu eyju. „Það er síðan hægt að fara í sól- bað á þilfarinu eða synda í Adríahaf- inu,“ segir hann. -eh Brandur Jón Guðjónsson er margreyndur leiðsögumaður. um að fullnustu, þrátt fyrir það að þátttakendurnir í þeirri rann- sókn töldu sig flestar vera nokkuð hraustar. Haukur starfar nú sem ráðgjafi hjá Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og að- standendur þeirra. „Eitt það fyrsta sem ég segi við fólk er að byrja að hreyfa sig. Ég sé mikinn mun á fólki sem bætir inn hreyfingu. Það nær sér mun fyrr á strik,“ segir hann. Ljósið býður upp á heilsu- ræktartíma í Hreyfingu sem og hópgöngur og jógatíma á Lang- holtsveginum. Haukur kennir einnig jóga hjá World Class og meðfram þessu er hann í meistara- námi í íþrótta- og heilsufræð- um. Óskar eftir þátttakend- um Meistararann- sókn hans felst í að skoða lífs- stílstengda heilsufarsþætti eftir krabba- meinsmeðferð, svo sem þrek, heilsutengd lífs- gæði, fituhlut- fall og hreyfi- venjur. Hann óskar eftir þátttakendum í rannsóknina og vonast eftir að ná allavega 50-100 manns á aldrinum 18 - 67 ára sem fóru í krabbameins- meðferð frá 1. janúar 2003 til 31. mars 2014. Þátttakendur þurfa að hafa lokið við frumudrepandi meðferð og vera í sjúkdómshléi eða álitnir læknaðir, en mega vera í annarri lyfjameðferð. Haukur vinnur rannsóknina undir leiðsögn dr. Erlings S. Jóhannessonar við Háskóla Íslands og ábyrgðarmað- ur rannsóknarinnar er dr. Helgi Sigurðsson krabbameinslæknir. Þeir sem eru áhugasamir um rann- sóknina geta haft samband við Hauk í gegn um ghg23@hi.is. Þátt- takendur þurfa aðeins að mæta einu sinni til Hauks í 1-2 klukku- stundir en rannsóknin fer fram á sjúkraþjálfunarstöðinni Styrki á Ártúnshöfðanum. Engin greiðsla er í boði en fólk fær að eiga niður- stöður eigin mælinga. „Heildarnið- urstöður rannsóknarinnar koma til með að nýtast mér í ráðgjöf hjá Ljósinu fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein en þær verða öllum aðgengilegar, bæði fag- mönnum og öðrum áhugasömum,“ segir hann. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Ég sá að það var ekki mikið í boði fyrir 24 ára strák sem vildi koma heilsunni aftur í lag. Öflugt gegn blöðrubólgu ROSEBERRY Virkar innan 24 tíma 2-3 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.