Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 27

Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 27
Svarið býr í náttúrunni Laugavegi LágmúLa KringLunni Smáratorgi SeLfoSSi aKureyri reyKjaneSbæ Svalandi og sumarlegir djúsar frá Kalibo AcidophiKids chewable berry frá Animal Parade Frábært fyrir meltinguna og tilvalið fyrir litla maga sem eru að prófa nýjan mat. Ómissandi í sumar! Kreistimaturinn frá Kalibo Fullkominn í töskuna fyrir litla ferðalanga. ÍS LE N SK A S IA .I S H LS 6 48 61 0 7/ 13 Baggu Back pack í sumarlegum litum. Kjörinn í allar útilegur! Gallexier 250 ml Fljótandi meltingarensím sem hjálpa líkamanum eftir stórar og þungar máltíðir. Frábær sólarvörn frá Aubrey fyrir alla fjölskylduna. Ekki brenna við! Multidophilus Forte með gula miðanum. Þarf ekki að geyma í kæli! Raw CC – snakk packs eru góðir á golfvöllinn. Flottur orkugjafi á milli mála og tilvalið ferðasnarl. gott fyrir krakkana Fyrir alla sumardaga! Gott í sólina! vinnur núna hjá Marorku sem sölu- stjóri fyrir Asíumarkað. Fyrst eftir að Betty kom hingað vann hún hjá fjarskiptafyrirtækinu Huawei, eina kínverska fyrirtækinu á Íslandi. Þá flutti hún sig yfir til Ís- landsstofu þar sem hún starfar enn, ásamt því að reka Bambus. Tengdamamma hjálpar til „Við Davíð njótum þess bæði að borða góðan mat og héldum oft veislur fyrir vini okkar þar sem við buðum upp á asískan mat. Mörgum fannst hann svo góður að þeir hvöttu okkur til að opna veitingastað. Það var auðvitað gamli draumurinn minn. Síðan fannst mér alltaf vanta alvöru asískan stað á Íslandi, ekki stað með skyndibitamat heldur vandaðan mat með góðu hráefni þar sem hægt er að setjast niður í fallegu umhverfi. “ Það var eins og fyrir til- viljun að Betty fór á veitingastaðinn Bambus sem var opnaður í Borgar- túni í desember. „Mér fannst hann dásamlegur og vildi endilega hitta eigandann sem ég gerði ráð fyrir að væri frá Asíu. Svo kom í ljós að hann var íslenskur. Ég sagði honum hvað ég væri hrifin af staðnum og þá til- kynnti hann mér að vegna persónu- legra ástæðna væri hann að setja staðinn á sölu.“ Það var eins og við manninn mælt: Betty keypti Bambus og rekur hann nú ásamt því að vinna hjá Íslandsstofu. „Ég er þakklát fyrir hvað Davíð og tengdamóðir mín hafa aðstoðað mig mikið við að geta rekið veitingastaðinn,“ segir Betty en sam- an eiga þau Alexander sem er á fjórða ári og Tinu sem er 14 mánaða gömul. Kokkurinn er líka listamaður Hún er afar metnaðarfull fyrir hönd veitingastaðarins og réði nýverið kokk sem áður starfaði hjá KEA á Akureyri. „Hann heitir Kunsang, er fæddur í Kína, ólst upp í Tyrklandi, lærði á Indlandi og býr núna á Ís- landi. Kunsang er líka listamaður þannig að hann leggur sig fram um að bera matinn fram á fallegan hátt og hann hugsar líka mikið um litina á hráefninu. Réttirnir gleðja því ekki bara bragðlaukana heldur einnig augað.“ Á matseðlinum eru bæði réttir sem fáséðir eru á veitingastöðum á Íslandi, eins og Dumplings, en líka réttir sem flestir þekkja á borð við Pad Thai. „Hér blöndum við saman því besta frá ólíkum matarmenn- ingarsvæðum í Asíu. Allir bestu veitingastaðir eru skapandi og mat- seðlarnir í sífelldri þróun. Við viljum vita hvað viðskiptavinunum finnst,“ segir Betty. Hún hefur ekki fyrr lokið máli sínu en inn koma fasta- gestir sem hún heilsar með virktum. Skömmu áður viðurkenndi hún að sér fyndist eilítið erfitt að læra ís- lensku nöfnin á öllum gestunum. „Ég þarf bara að vera dugleg að æfa mig,“ segir hún ákveðin. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Fáðu meira út úr Fríinu Viltu afslátt af hótelgistingu, ókeypis morgunmat eða Frítt Freyðivín upp á herbergi? bókaðu sértilboð á gistingu, ódýr hótel og bílaleigubíla út um allan heim á túristi.is T Ú R I S T I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.