Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 52
Í takt við tÍmann Jökull JúlÍusson
Ótrúlega góður í borðtennis
Jökull Júlíusson er 23 ára Mosfellingur sem starfar í sumar sem flokksstjóri í unglingavinnunni hjá
Mosfellsbæ. Jökull er söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Kaleo sem hefur slegið í gegn í
sumar með nýrri nálgun sinni á laginu Vor í Vaglaskógi. Lagið hefur verið á toppi vinsældalista Rásar
2 undanfarnar vikur auk þess sem myndband með laginu hefur verið skoðað um 20.000 sinnum á
YouTube og horft hefur verið á upptöku af flutningi sveitarinnar á laginu á Rás 2 yfir 50.000 sinnum.
Staðalbúnaður
Eins og er þá er ég að vinna sem flokksstjóri í ung-
lingavinnunni hjá Mosfellsbæ og klæðnaðurinn því
í samræmi við það. Íþróttabuxur, peysa og regn-
stakkurinn hefur einnig nýst vel þetta sumarið.
Venjulega kýs ég aftur á móti gallabuxur og skyrtu
dags daglega. Ég kaupi föt nokkuð víða en reyni
að kaupa merki eins og Levi´s og fleiri sem standa
fyrir sínu þegar að buddan leyfir.
Hugbúnaður
Ég reyni að hugsa um heilsuna og hreyfa mig.
Finnst mjög gott að fá mér Sushi og einnig eru
nautasteikurnar á Argentína Steakhouse í miklu
uppáhaldi. Ég drekk álíka mikið af rauðu og hvítu.
Ef ég fer út á lífið drekk ég oftast gin&tónik eða
vodka&tónik. Ég elska gott gin. Mér finnst miður
hversu oft það er landabragð af drykkjum þegar
maður pantar sér til dæmis g&t niðrí bæ.
Ég kann að meta góðar kvikmyndir og heimildar-
myndir en horfi annars nánast ekkert á sjónvarp.
Ég hef gaman af íþróttum og það kemur mörgum á
óvart hversu góður ég er í borðtennis. Við spilum
einmitt reglulega uppí vinnu þegar tími gefst.
Vélbúnaður
Ég nota helst vörur frá Apple. Ég á Imac sem nýtist
vel og síðan fékk ég mér nýverið Iphone til að vera
hluti af snjallsímamenningunni. Það auðveldar
óþægilegar þagnir og eirðarleysi. Veit samt ekki
hversu góð sú þróun er.
Aukabúnaður
Ég elda mjög lítið, enda ekkert rosalega efnilegur í
þeim málum. Davíð trommari sér oftast um að elda
þegar hljómsveitin er annars vegar.
Bestu skyndibitastaðirnir finnast mér Haninn,
Serrano og Saffran. Skyndibitastöðunum er líka
alltaf að fjölga hér í Mosó en ég er enn að bíða eftir
að eitthvað af fyrrnefndu komi í sveitina. Ég á ekki
bíl en kærastan er á ódrepandi Corollu og ég er
duglegur að þiggja far frá meðal annars henni og
áðurnefndum Davíð.
appafengur
SeatGuru
Ferðalangar at-
hugið: Þetta app
ku vera nauð-
synlegt fyrir alla
þá sem fljúga.
Sjálf flýg ég ekki
mikið en vin-
kona mín sem
er nýkomin úr
hálfgerðri heims-
reisu og ferðast
oft með flugvél-
um mælir alveg
sérstaklega með
þessu appi. Við
könnumst öll
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
við að vera pirruð í flugi því það er svo lítið fóta-
pláss eða út af því að það er stöðugur straumur
á salernið sem er einmitt við hliðina á þínu sæti.
Með SeatGuru getur þú sett inn upplýsingar um
þitt flug og fengið í staðinn að vita með hvernig
flugvél þú flýgur og skoðað kort með sætunum.
Með því að smella á sætin færðu upplýsingar um
þau, hversu þægileg eða óþægileg þau þykja, og
þessar upplýsingar getur þú notað ef þú vilt bóka
sérstakt sæti í vélinni. SeatGuru býður nú upp
á kort af 700 helstu flugvélategundunum hjá um
100 flugfélögum.
Aukakostur við appið er að þegar þú bíður
á flugvellinum eftir þinni vél sérðu í símanum
þínum út um hvaða hlið þú átt að fara og appið
lætur þig vita ef fluginu seinkar.
Jökull Júlíusson hefur gert
stormandi lukku í sumar
með félögum sínum í Kaleo
og útgáfu þeirra af hinu
sígilda lagi Vor í Vagla-
skógi. Mynd/Teitur
4G hneta
12.990 kr.
með þjónustusamningi í áskrift.
Fullt verði í áskrift og frelsi: 19.990 kr.
Stærst
i
skemmt
istaður
í heimi!
Þjónustusamningur í áskrift er til 6 mánaða, greitt með kreditkorti auk 325 kr. greiðsludreifingargjalds. Nánari upplýsingar á nova.is.
4G pungur
6.990 kr.
með þjónustusamningi í áskrift.
Fullt verði í áskrift og frelsi: 12.990 kr.
10X
meiri hraði en
með 3G pung!
Taktu 4G pung
eða hnetu með
í fríið!
Hægt að
netteng ja allt
að 10 tæki
(WiFi)
4G pung og hnetu er hægt að nota bæði
á 4G og 3G þjónustusvæði Nova.
Sjá nánar á www.nova.is.
52 dægurmál Helgin 12.-14. júlí 2013