Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 18
Þegar lífið vaknar líkt og gróður- inn og springur út í raun og veru. Þá verða sög- urnar til. Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing: Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít (sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega. Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun, nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218) og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized, Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling by Over-the-Counter Heartburn Treatments. 2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium- Aluminum Antacid Gel. Ert þú með brjóstsviða? • Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1 • Virkar í allt að 4 tíma 2 Mixtúra Cool Mint 300 ml Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt. Galieve Peppermint Tuggutöflur með piparmintu bragði G úrkufréttirnar svokölluðu þykja almennt ekki mjög merkilegar en fjölmiðlaflóran yrði þó án efa fátæklegri ef þær gufuðu upp eins og dögg fyrir sólu. Sumar þessara frétta vekja líka svo mikla athygli og umræðu að þær verða sígildar. Blaðamaðurinn Eiríkur Jónsson hefur öðrum fremur einbeitt sér að fréttum af fólki í gegnum áratugina og hefur skrifað þær ófáar fréttirnar sem lifa enn í minning- unni. Og líklega rámar fleiri í sjómanninn sem veiktist eftir að hafa borðað Sómasam- loku og mátti ganga með bleiu í þrjár vikur en það sem gerðist á Alþingi í síðustu viku. „Sumarið er draumatími fréttamanns- ins. Þegar lífið vaknar líkt og gróðurinn og springur út í raun og veru. Þá verða sögurnar til,“ segir Eiríkur. „Þá fær maður frið fyrir leiðindunum og kerfinu sem er í sumarfríi og þá er miklu meiri hreyfing á öllu mannlífi. Það er bara út og suður, það segir sig sjálft.“ Eiríkur lifir og starfar eftir þessari heim- speki sinni eins og sjá má á fréttasíðu hans, www.eirikurjonsson.is, þar sem úir og grúir af fréttum sem ganga þvert á hefðbundið fréttamat. Þar greinir hann til dæmis frá því að útilegufólk sakni sárt niðursoðins saxbauta frá KEA en framleiðslu hans var hætt fyrir mörgum árum, að Hvalur hf hafi gefið Hafnfirðingum garðbekk til þess að hvíla lúin bein á og að leiðindaveðrið í sumar vinni með Kringlunni þar sem traffíkin sé mikil um þessar mundir. Þá birtir Eiríkur mynd af húsi félagsmálaráð- herra fyrir þá sem hafa áhuga á því hvernig ráðherrann býr. „Ein mest lesna fréttin hjá mér núna er um þrjú verð á appelsíni í Nettó. Sami drykkurinn á þrennskonar verði í sömu búðinni. Það er frétt.“ Fréttin af sjómanninum með bleiuna hefur lifað lengi og er orðinn hálfgerð flökkusaga þótt hún sé væntanlega ekta gúrkufrétt í hugum margra. „Ég fór með konunni minni í sund í Hveragerði um dag- inn og við fengum okkur Sómasamloku. Þá mundi ég eftir þessari sögu og sagði henni frá fréttinni á miðri Hellisheiði. Hún horfði lengi á mig og spurði svo. „Ertu geðveik- ur?“ Svo talaði hún ekki við mig fyrr en við vorum komin á Sandskeið. En þetta var góð frétt. Mynd af manninum með Sóma- samloku og allt.“ Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamað- ur birti fyrr í vikunni frétt á Vísi.is um að hugsjónamaðurinn og leikarinn Stefán Karl Stefánsson hafi óvart lagt í stæði fyrir fatlaða. Í athugasemdum við fréttina var mikið rætt um að þetta væri ekki frétt og fréttamat blaðamannsins gagnrýnt. Jakob Bjarnar er tilbúinn til þess að verja fréttamat sitt og vitnar máli sínu til stuðnings í einmitt Eirík Jónsson. „Mig rámar í að téður EIR hafi einhvern tíma sagt að það sé ekki til neitt sem heitir gúrkutíð, heldur aðeins lélegir blaðamenn. Það má til sanns vegar færa upp að því marki að þeir sem eru kolpikkfastir í úrsér- gengnu og stöðluðu fréttamati, og halda að engar fréttir séu nema þær sem koma þegar Alþingi er að störfum, eru náttúr- lega lélegir blaðamenn,“ segir Jakob. „Sumarið, sem menn vilja kenna við gúrku, er frábær tími hvað þetta varðar. Skilur sauðina frá höfrunum. Og svo ég haldi áfram að vitna í meistara EIR, þá er það sem við köllum frétt oft kölluð „story“ á ensku. Saga. Það verður að vera saga í þessu. Þú spurðir um fréttina um hann Stefán Karl, þetta að hann hugsjónamað- urinn góði, hafi lagt í ógáti í fatlað stæði? Sko, nei... þetta er fín frétt. En, ég er því miður ekki alveg samkvæmur sjálfum mér hvað þá frétt varðar. Hún fer nú ekki á topplista hjá mér yfir bestu fréttirnar vegna þess að hún er Fréttir af Facebook og það eru nú fremur billilegar tvíbökur.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Góðar fréttir í gúrkunni Klisjan um gúrkutíðina í fréttum er orðin gömul og ósköp lúin en þó er enn talað um að sumarið geti verið fréttafólki erfitt þar sem ekkert sé að frétta þar sem samfélagið sé allt í hægagangi. Þótt þingið og dómstólar fari í frí heldur jörðin samt áfram að snúast og þegar betur er að gáð er vitaskuld alltaf eitthvað að frétta, alla daga. Mannlífsfréttir þykja einhverra hluta vegna ekki jafn merkilegar og tíðindi af aflabrögðum og atkvæðagreiðslum á þingi. Þessar fréttir fá því á sig gúrkustimpilinn og sjálfsagt mun mikið bera á slíkum fréttum á næstu vikum. Lengi má deila um fréttamat þar sem sitt sýnist hverjum. Fréttatíminn heyrði í tveimur blaðamönnum sem hafa lengi haft fréttir af fólki í öndvegi og þeir Eiríkur Jónsson og Jakob Bjargar Grétarsson taka því gúrkutíðinni fagnandi. Eiríkur Jónsson hafnar gúrkutíðarhugtakinu og segir öðruvísi fréttir á vef sínum. Engin gúrka. Frétt um hús félagsmálaráðherra og saxbautans sárt saknað. Júlífrétt úr DV frá 1985. Gúrka? Stefáni Karli varð á að leggja í stæði merkt fötluðum. Jakob Bjarnar sá í því frétt en ekki eru allir á sama máli. 18 úttekt Helgin 12.-14. júlí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.