Fréttatíminn - 12.07.2013, Page 24
J ón Eðvald Vignisson er ný-orðinn 29 ára. Hann er einn þeirra sem stofnuðu hugbún-
aðarfyrirtækið CLARA árið 2008.
Bandaríski hugbúnaðarrisinn
Jive Software keypti fyrirtækið í
sumarbyrjun og strákarnir eru nú
að undirbúa búferlaflutninga þar
sem þeir fylgja með í kaupunum
og munu halda áfram þróunar-
starfinu sem þeir hófu í Reykjaík
í Sílíkondalnum í grennd við San
Francisco.
Flaggskip CLARA er greining-
artólið Resonata sem safnar saman
mikilægum upplýsingum um net-
samfélög. Jón Eðvald lagði grunn-
inn að hugbúnaðinum enda var
hann í upphafi fyrsti og eini forrit-
ari fyrirtækisins og var aðeins 24
ára þegar CLARA var stofnað.
„Okkur leiddist í Háskólanum,
létum slag standa og lögðum í raun
ekki upp með annað en að gera eitt-
hvað og það vildi svo bara þannig til
að ég var eini forritarinn í hópnum.
Ég var í tölvunarfræðinni og
hugbúnaðarverkfræði þótt ég hafi
klárað hvorugt á endanum. Einn
okkar var í iðnaðarverkfræði,
annar í sálfræði og sá fjórði í heim-
speki. Okkur þótti þetta dálítð góð
breidd og þetta var svolítið fjöl-
breyttur og skondinn hópur.“
Tölvunörd frá blautu
barnsbeini
Jón Eðvald hefur verið með putt-
ana á lyklaborðinu nánast frá því
hann man eftir sér. „Jú, jú. Ég hef
eitthvað verið að tölvunördast alla
tíð og þannig er það gjarnar með
forritara. Ef ég man rétt sló ég
fyrsta forritið mitt inn á Commmo-
dore 64 tölvu og var þá sex ára eða
þar um bil.“
En minnir þá sagan á bak við
CLARA ekki glettilega mikið á
upphaf Microsoft og Apple þar
sem þeir Bill Gates og Steve Jobs
flosnuðu upp úr námi og lögðu
grunninn að þeim stórveldum sem
fyrirtækin eru í dag?
„Þetta er kannski ekki alveg á
sama skala og hjá þeim,“ segir Jón
og hlær. „En jú. Annars er þetta
bara spurning um að elta þau tæki-
færi sem manni bjóðast. Okkur
tókst þarna með einhverri sam-
blöndu af þrautseigju, dugnaði og
bara heppni að púsla þessu saman
og fengum þannig tækifæri til að
gera eitthvað áhugavert og það var
um að gera að stökkva bara á það.“
Þegar hjólin byrjuðu að snúast
má segja að CLARA hafi tekið
námið yfir hjá strákunum og það
kom ekki annað til greina en að
demba sér í reksturinn af fullum
krafti.
Mikið brölt að baki
velgengninni
Jón Eðvald segir þá félaga ekki
hafa lagt upp með að ná þeim
árangri að renna saman við
útlenda hugbúnaðarrisa en fyrir
lítið tæknimiðað fyrirtæki eins
og þeirra sé þetta alveg eðlileg
lending. „Það var í raun aldrei í
kortunum hjá okkur að búa til ein-
hverja stóra markaðsmaskínu og
alþjóðlegt söluteymi. Við fórum
með það eins langt og við gátum
og það hefur auðvitað gengið á
ýmsu þessi síðastliðin fimm ár.
Það var mikið brölt í tengslum við
að fjármagna þetta og svona og
þegar við byrjuðum að tala við Jive
var nú bara meiningin að koma á
samstarfi. “
Og nú halda nördarnir út í hinn
stóra heim á vit nýrra ævintýra.
Jón Eðvald gerir ráð fyrir að félag-
arnir setjist að í San Francisco en
höfuðstöðvar Jive eru í Paolo Alto,
rétt sunnan við borgina.“
Jón segir vistaskiptin einföld
hjá þeim flestum þar sem þeir séu
ekki fjölskyldumenn. „Við búum
nú svo vel flestir að vera einhleyp-
ir. Einn okkar er með fjölskyldu,
konu og nýfætt barn, en við hinir
sex erum bókstaflega einhleypir
og það einfaldar málið töluvert.“
Settur fram á gang í skólanum
Jón Eðvald eyddi fyrstu árunum
í Sandgerði þar sem hann þótti í
meira lagi bráðgert barn. „Þegar
ég var átta ára flutti fjölskyldan til
Hafnarfjarðar og ég færði mig svo
til Reykjavíkur þegar ég byrjaði í
MR. Fyrstu kynni mín af atvinnu-
lífinu voru í fiski hjá frænda mín-
um í Sandgerði þegar ég var tólf
ára. Einhvers staðar verður maður
að byrja. Þetta var indælt. Ég gisti
hjá ömmu og afa og var eitthvað að
fást við fiskinn með frændum mín-
um. Það er margt verra en það.“
Jón Eðvald varð læs snemma og
varð fyrir vikið hálfgerð hornreka
í skólanum. „Þetta olli mér eigin-
lega vandræðum frekar en hitt og
er bæði fyndið og ekki. Mennta-
kerfið var kannski ekki alveg
tilbúið fyrir mig á þessum árum
og ég man að fyrstu tvö árin sem
ég var í skólanum í Sandgerði var
eiginlega ekki hægt að bera á borð
fyrir mig sama kennsluefni og hin-
ir krakkarnir voru og læra þannig
að ég var settur fram á gang og
látinn lesa eitthvað annað. Það var
mjög sérstakt.“
Núðlutímabilið að baki
Vitaskuld er ekki hægt að sleppa
Jóni Eðvald án þess að bera upp
hina sígildu íslensku spurningu
sem þeir sem njóta velgengni fá
alltaf fyrr eða síðar. Ertu orðinn
ríkur?
„Þetta var nú pínulítið ofsögum
sagt í fréttum,“ segir Jón um
söluna á CLARA. „Stutta svarið er
að ég hef það bara fínt og er svo of-
boðslega lánsamur að þurfa líklega
ekki að hafa áhyggjur af peningum
aftur. Þetta eru mikil viðbrigði
fyrir mig hafandi lifað á yfirdrætti,
foreldrum mínum og núðlusúpum í
svolítið langan tíma.
Þetta var basl á meðan við
vorum að koma CLARA af stað
og fjölskyldan mín hefur svosem
aldrei verið neitt sérstaklega efnuð
heldur. Þannig að þetta er mikill
léttir og jafnvel má segja að ég sé
búinn að uppskera meira en ég
hefði þorað að vona. “
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Forritaði sig frá núðlusúpum
Í sumarbyrjun greiddi
bandaríska hugbúnaðar-
fyrirtækið Jive Softare
dágóða upphæð fyrir
íslenska fyrirtækið CLARA.
Nokkrir ungir menn
stofnuðu sprotafyrirtækið
fyrir fimm árum þegar
þeim var farið að leiðast í
háskólanámi. Frumkvöðl-
arnir flytja allir búferlum
á næstu mánuðum enda
fylgja þeir með í kaup-
unum og munu starfa hjá
Jive í hinum goðsagnar-
kennda Sílíkondal, einu
helsta varnarþingi upplýs-
ingatækninnar í heiminum.
Jón Eðvald Vignisson er
einn þessara ungu manna.
Hann var fyrsti forritari
fyrirtækisins og lagði
grunninn að þeim hug-
búnaði sem stórlaxarnir
úti í heimi vildu tryggja
sér með kaupunum.
Jón Eðvald og félaga hans langaði að gera eitthvað nýtt og tæknitengt á meðan þeir voru í Háskólanum. Þeir stofnuðu CLARA 2008 og hættu skömmu síðar námi og einhentu
sér í reksturinn sem hefur nú skilað þeim því að hugbúnaðarrisinn Jive Software hefur keypt fyrirtækið og þeir eru á leið á vit nýrra tækniævintýra í Sílíkondalnum. Mynd/Hari
Þvottavél, tekur
mest 6 kg.
1200 sn./mín.
WAE 24061SN
Tilboð:
69.900 kr.
Þvottavél, tekur
mest 7 kg.
1400 sn./mín.
WAQ 28461SN
Tilboð:
109.900 kr.
Fullt verð:
139.900 kr.
Framlengjum
opnunartilboð!
Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16.
Þýsk tækni og
hugvit.
Bosch heimilistækin
eru þau mest
seldu í Evrópu.
Takmarkað
magn.
Takmarkað
magn.
24 viðtal Helgin 12.-14. júlí 2013