Fréttatíminn - 12.07.2013, Qupperneq 36
36 heilsa Helgin 12.-14. júlí 2013
heilsa Niðurstöður Nýtast þeim sem hafa greiNst með krabbameiN
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is
Ertu búinn að fá þér
Veiðikortið!
www.veidikortid.is
Veiðitímabilið er byrjað. Kr. 6.900.-
00000
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
g . Haukur Guðmundsson greindist 24 ára gamall með Hodgins-eitilfrumu-
krabbamein. Hann var í afar góðu
líkamlegu formi og kenndi 12 tíma
í líkamsrækt á viku meðfram námi
í sjúkraþjálfun. „Ég var í verknámi
uppi á Landspítala þegar bekkjar-
systir mín fann stækkaðan eitil í
hálsinum á mér. Mig grunaði ekki
að það væri neitt að en hún vildi
tala við sjúkraþjálfara sem starf-
aði á krabbameinsdeildinni. Sú sá
strax að þetta væri óeðlilegt og
innan nokkurra mínútna var búið
að kalla á lækni til að líta á mig.“
Brotnaði niður eftir greiningu
Fyrstu viðbrögð Hauks þegar
hann var greindur með eitla-
krabbamein var að spyrja hverjar
lífslíkurnar væru og hvort hann
þyrfti að fara í meðferð. „Stuttu
seinna brotnaði ég niður og fékk
áfall. Þá tók við 4 mánaða lyfja-
meðferð sem mér fannst eins og
heil eilífð. Upphaflega stóð til
að ég færi í 8 mánaða lyfjameð-
ferð og svo í geisla en læknarnir
ákváðu að hætta lyfjameðferðinni
eftir helmingi styttri tíma þar sem
meinið virtist horfið og hefur það
ekkert látið á sér kræla síðan þá,
fyrir sjö árum.“ Haukur er viss um
að gott líkamlegt form hans hafði
sitt að segja þegar kom að því fyrir
vinna bug á eftirköstum meinsins
og meðferðarinnar. Menntun hans
í sjúkraþjálfun hafði einnig sitt að
segja því hann vissi hvert hann átti
að leita sér þekkingar til að byggja
sig upp aftur. „Ég sá að það var
ekki mikið í boði fyrir 24 ára strák
sem vildi koma heilsunni aftur í
lag. Ég var orðinn mjög þreklaus,
þreyttur og þyngdist talsvert, eins
og algengt er ólíkt því sem margir
halda. Ég byggði sjálfan mig upp
aftur á einu og hálfu ári. Ég byrjaði
að nota göngu og létt skokk til að
koma mér af stað, fór svo að lyfta
og gera styrktaræfingar og tók
loks mataræðið í gegn.“
Hreyfing skiptir lykilmáli
Haukur vann lokaverkefni sitt í
sjúkraþjálfun í félagi við Rann-
veigu Gunnlaugsdóttur, sam-
nemanda sinn, þar sem þrek hjá
konum sem höfðu farið í lyfjameð-
ferð vegna brjóstakrabbameina
var rannsakað. Í ljós kom að þrek
þeirra var marktækt lakara en
það sem það á að vera og jafnvel
þannig að það skerði getu til að
sinna venjulegum daglegum störf-
Byggði sjálfan sig upp
eftir krabbamein
G. Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari sem greindist 24 ára með krabbamein hefur náð sér að
fullu. Hann er að hefja rannsókn á áhrifum lífsstíls á heilsufar fólks að lokinni krabbameinsmeð-
ferð og óskar eftir þátttakendum. Haukur er að ljúka meistaranámi í íþrótta- og heilsufræðum,
kennir jóga og starfar hjá Ljósinu við ráðgjöf fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein.
G. Haukur Guðmundsson. Mynd/Teitur