Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 12.07.2013, Qupperneq 42
42 skák og bridge Helgin 12.-14. júlí 2013  skákakademían Framundan er sögulegt heimsmeistaraeinvígi í skák Vaknar tígrisdýrið? h eimsmeistarinn okkar, Vishy Anand frá Indlandi, stendur nú í rækilegri naflaskoðun: Hann hefur teflt eins og berserkur frá áramótum – en bara í þeim skilningi að hann hefur teflt mikið. Hann hefur hinsvegar ekki teflt sérlega vel eða foringjalega. Heimsmeistar- inn okkar er nefnilega ekki mjög sann- færandi þessi misserin, og flestir spá því að Magnus Carlsen fari með öruggan sigur af hólmi í einvígi þeirra á Indlandi í haust. Það væri sögulegt – Norðurlönd hafa aldrei átt heimsmeistarann í skák. En er óhætt að afskrifa Anand? Hann er að sönnu hvorki meira né minna en 43 ára, tvöfalt eldri en ungi og tápmikli Norð- maðurinn. Og það sem meira er: Anand er kominn niður í 8. sæti heimslistans, hefur nú 2775 Elo-stig en Carlsen trónir makindalega á toppnum með 2862. Á milli þeirra eru Aronian (2813), Caruana (2796), Grischuk (2788), Karjakin (2784), Kram- nik (2784) og Nakamura (2775). Anand hefur teflt á sex skákmótum frá áramótum, og árangurinn upp og ofan. Versti skellurinn kom núna í júní, þegar heimsmeistarinn varð í næstneðsta sæti á minningarmótinu um Tal í Moskvu. Þar beið Anand líka herfilegan ósigur gegn Carlsen, auk þess að tapa fyrir nýju stjörn- unum, þeim geðþekka Caruana og dramb- sama Nakamura. Unga kynslóðin virðist með fantatak á gamla tígrisdýrinu. En Anand er ekki fæddur í gær. Hann varð fyrsti stórmeistari Indverja árið 1987 og er sannkölluð þjóðhetja um gjörvallt Indland. Með afrekum sínum og fordæmi hefur Anand skapað slíka skákbylgju á Indlandi – og víðar um Asíu – að þaðan streyma nú stórmeistarar, skákdrottn- ingar og undrabörn. Þúsundir taka þátt í skákhátíðum og Anand er hylltur sem hetja – enda eini heimsmeistarinn sem þessi risaþjóð hefur eignast, eftir því sem næst verður komist. Í nýlegu viðtali á þeim prýðilega frétta- vef, chessbase.com, ræddi Anand af miklu hispursleysi um árangur sinn að undan- förnu: ,,Það eru mörg tæknileg atriði sem ég þarf að takast á við. Það má segja að ég hafi ákveðið að gangast undir eldskírn, sjá hvar ég stend. Nú hef ég úrslitin og reynsl- una af þessum skákum til að vinna úr.“ Anand er spurður hvort ekki sé erfitt að vinna bug á vandamálunum, svo skömmu fyrir einvígið við Carlsen. Heimsmeistar- inn svarar: ,,Ég veit það ekki, ef satt skal segja. Maður verður að leysa vandamálin eftir megni. Geti maður leyst þau er það fínt, en takist það ekki hefur maður að minnsta kosti bætt sig á þessum sviðum og vonandi lagað einhverja veikleika. Carlsen hefur sýnt og sannað að hann er magnaður og hættulegur andstæðingur, svo ég þarf að leggja hart að mér.“ Hinn 22 ára gamli Carlsen hefur ástæðu til að vera bjartur og brosandi. Hann er orðinn auðkýfingur með framkvæmda- stjóra í fullu starfi, kominn á lista TIME yfir hundrað áhrifamestu einstaklinga í heiminum, búinn að slá öll stigamet – og nú er sjálf krúna heimsmeistarans innan seilingar. Carlsen hefur, ólíkt Anand, teflt eins og sá sem valdið hefur á þessu ári. Vissulega slysast hann til að tapa inn á milli, og ekki þykir skákstíllinn sérstaklega töfrandi. (Hann nær að juða vinning úr ótrúlegustu stöðum, en á sér – líkt og Anand – stóran hóp aðdáenda um allan heim.) Carlsen vann frækinn sigur í Wijk aan Zee í janúar, var einum og hálfum vinningi á undan Aronian, og sigraði svo með naumindum á hinu epíska áskorendamóti í London í mars. Carlsen varð svo að sætta sig við 2. sæti á fyrsta ofurskákmótinu sem haldið hefur verið í heimalandi hans, Noregi. Þar stal Karjakin senunni, og minnti á þá staðreynd að Carlsen er ekki eina undra- barn sinnar kynslóðar. (Karjakin varð stórmeistari 12 ára og 7 mánaða, yngstur allra í sögunni). Á minningarmótinu um Tal í Moskvu var Carlsen aftur í 2. sæti, en vann sérlega sætan sigur á Anand, eins og áður er nefnt. Carlsen hefur ógnarstórt batterí á bak við sig. Sagt er að tölvuklasinn sem hann notar við rannsóknir kosti 50 milljónir. Og hann er ekki einn að gaufa: Sjálfur Gary Kasparov verður aðstoðarmaður Carlsens í einvíginu. Þar að auki náði Carlsen til sín danska stórmeistaranum Peter-Heine Nielsen – sem áður var aðstoðarmaður Anands. Hvað hefur Anand, fyrir utan stuðning 1.210 milljón Indverja og ótal annarra um allar jarðir? Hann hefur meiri reynslu af því að kljást í einvígi en nokkur annar meistari okkar tíma. Hann hefur lagt Kramnik, Topalov og Gelfand í glímu um hásætið í skákheiminum. Þegar upp er staðið, mun þetta snúast um hugar- far. Indverska tígrisdýrið hefur verið full værukært að undanförnu. Skákunnendur hljóta að vona að gamall blóðþorsti – nú eða snilldarneistar – vakni hjá Anand þegar Magnus Carlsen stígur fæti á ind- verska jörð í nóvember. Gleymum því ekki að skákin fæddist á Indlandi, þar er vagga hennar. Anand hlýtur að leggja líf sitt og sál í að verja krúnuna. s pil dagsins er frá bikarleik VÍS-sveit-arinnar (núverandi Íslandsmeistara í sveitakeppni) og Skákfjelagsins sem fór 159-73 fyrir þá fyrrnefndu. Lokasamn- ingurinn var sá sami á báðum borðum, 6 tíglar í norður. Birtar eru sagnir á borði Hlyns. Opnun vesturs var multi-sagnvenja, veik opnun með 6 spil í öðrum hvorum há- litanna. Hlynur valdi dobl, 2 hjörtu voru leit- andi og suður sýndi spilagildi sinnar handar með því að stökkva í 3 spaða. Hlynur ákvað þá að spyrja um ása, fékk tvo og valdi 6 tígla sem lokasamning. Sagnhafi á hinu borðinu fékk út einspilið í hjarta eftir svipaðar sagn- ir, drap á ás, tók eitt sinn tromp, reyndi síðan hjartakóng sem var trompaður og sagnhafi gat ekki staðið spilið eftir það. Hlynur Ang- antýsson úr sveit VÍS var sagnhafi á hinu borðinu og hann fékk sama útspil. Austur suður vestur norður Pass pass 2 ♦* dobl 2 ♥* 3 ♠ pass 4G Pass 5 ♥* pass 6 ♦ p/h Hann sá að útspilið hlaut að vera einspil (öruggt eftir sagnir), drap á ás, tók trompin af andstöðunni og spilaði spaða á níuna. Vestur átti slaginn á tíuna og spilaði sig út á laufkóng og Hlynur trompaði sig heim á lauf. Hlynur spilaði þá öllum trompum sínum og vestur, sem varð að halda valdi á hjarta, varð að fara niður á blankan spaðakóng. Þó tók Hlynur hjartakóng og þá var komið að austri að kveljast. Hann varð að halda valdi á lauflitnum og varð að fara niður á spaðadrottningu blanka. Þar með var spaðaliturinn frír og samningur- inn vannst. Keflvíkingar sigurvegarar Landsmót UMFÍ var haldið dagana 5.-7. júlí á Selfossi. Sextán sveitir öttu þar kappi og voru þar margir af sterkustu spilurum landsins meðal þátttakenda. Sveit Keflavík- ur-Íþrótta og ungmennafélags tók snemma forystuna og hélt henni til loka. Sveit Íþrótta- bandalags Reykjavíkur varð að sætta sig við annað sætið. Lokastaða efstu sveita varð þannig: 1. Keflavík - Íþrótta og Ungmennafélag 279 2. Íþróttabandalag Reykjavíkur 266 3. Héraðssamband Þingeyinga 261 4. Héraðssamband Vestfirðinga 250 5. Héraðssambandið Skarphéðinn -B 246 Spilarar í sveit Keflavíkur voru: Einar Jóns- son, Hjálmtýr Baldursson, Guðjón Svavar Jensson, Jóhannes Sigurðsson, Karl Her- mannsson og Karl G. Karlsson. Hjálmtýr Baldursson var efstur í bötlerútreikningi mótsins með 1,22 impa að meðaltali í spili, Jóhannes Sigurðsson var með 1,10 impa að meðaltali í öðru sæti, Sveinn Rúnar Eiríks- son-Erlendur Jónsson 0,95 impa, Grettir Frí- mannsson-Pétur Guðjónsson 0,82 impa og Magnús E. Magnússon-Guðmundur Hall- dórsson 0,71 impa. Jöfn og mikil þátttaka í sumarbridge Alls mættu 34 pör miðvikudagskvöldið 3. júlí í sumarbridge og var keppni hörð um fyrsta sætið. Bræðurnir Árni og Oddur Hannes- synir höfðu nauman sigur í lokin, naumlega á undan Hauki Ingasyni og Helga Sigurðs- syni. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Oddur Hannesson - Árni Hannesson 62,7% 2. Haukur Ingason - Helgi Sigurðsson 62,1% 3. Guðlaugur Sveinsson - Guðrún Jörgensen 60,9% 4. Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnsson 58,0% 5. Ólöf Thorarensen - Gunnar B Helgason 57,3% Mánudagskvöldið 8. júlí voru pörin 30. Þar höfðu næsta öruggan sigur Unnar Atli Guð- mundsson og Jón Halldór Guðmundsson sem unnu með glæstu skori. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Unnar A. Guðmundsson - Jón H. Guðmundsson 66,8% 2. Gabríel Gíslason - Sigurður Jón Björgvinsson 64,2% 3. Erla Sigurjónsdóttir - Esther Jakobsdóttir 58,2% 4. Hermann Friðriksson - Ingólfur Hlynsson 57,3% 5. Ísak Örn Sigurðsson - Rúnar Einarsson 56,9% 1. Bergur Reynisson - Stefán Stefánsson 69,8% 2. Ólöf Þorsteinsdóttir - Vilhjálmur Sigurðsson jr 59,1% 3. Halldór Svanbergsson - Brynjar Jónsson 56,1% 4. Oddur Hannesson - Unnar Atli Guðmundsson 54,8%  bridge margir aF sterkustu spilurunum á landsmótinu á selFossi Þvingun á báðar hendur ♠ 82 ♥ ÁKD5 ♦ ÁKDG65 ♣ 5 ♠ ÁG932 ♥ 42 ♦ 109 ♣ Á1082 ♠ K106 ♥ G109863 ♦ 432 ♣ K ♠ D74 ♥ 7 ♦ 87 ♣ DG97643 N S V A Anand og Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi í haust. Flestir veðja á Carlsen – en enginn skyldi afskrifa indverska heimsmeistarann. Hlynur Angantýsson, sagnhafi í spili dagsins, er hér að spila á Íslandsmótinu í sveitakeppni í Perlunni í aprílmánuði. Gísli Steingrímsson er áhugasamur áhorfandi og sést í bakið á Stefáni Jóhannessyni. Mynd Árni Sverrisson

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.