Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 12.07.2013, Blaðsíða 48
T vær þýskar listakonur Eva Kretschmer og Ulrike Olms leita til Íslendinga og óska eftir að fá að nota fjölskyldumyndir þeirra í listsköpun sinni. Eva og Ulrike fengu styrk frá Goethe-stofnun- inni í Danmörku til að vinna þetta verkefni á Íslandi og er það unnið í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. „Við erum þegar komnar með um 500 myndir en viljum gjarnan fá fleiri,“ segir Eva. Þær eru ekki að leita eftir uppstilltum myndum heldur ljósmyndum úr hvers- deginum, skondnum myndum og ljósmyndum sem vekja upp spurningar. Fólk hefur komið með geisladiska með myndum á vinnustofuna þeirra, með USB-lykla eða hreinlega boðið þeim í heimsókn til að skoða fjölskyldu- albúmin og athuga hvort þær finna áhugaverðar myndir. Eva og Ulrike eru búsettar í Berlín og hafa saman unnið verk á sviði grafíkur og textagerðar en í verkum sínum feta þær einstigið milli texta og myndefnis. Þær sækja safnarabúðir, flóamarkaði og sanka að sér fjöl- skyldu- og orlofsmyndum frá ókunnu fólki. Ljósmynd- irnar eru síðan færðar í nýtt samhengi og búinn við þær texti. Heimsóknin til Íslands er meðal annars til að safna myndum og komast nær myndefninu áður en þær taka það úr sínu upprunalega samhengi og setja í nýtt. Hægt er að hafa samband við þær og koma til þeim ljósmyndum í gegn um netfangið reykjaweekly@gmail. com. Eitt verka þeirra heitir Herrbarium sem er nokkurs konar krufning á frummynd „herramannsins.“ Árið 2011 myndskreytti Eva skáldsöguna Eitur fyrir byrjendur eftir Eirík Örn Norðdahl og mynduðust þá tengsl við Ísland. Ulrika kom fyrst til Íslands árið 1995 sem ferðamaður. Þá hafði móðir hennar gefið henni utanlandsferð að eigin vali og Ulrika valdi Ísland. Auk þess að safna ljósmyndum og sinna listinni langar þær að ferðast um landið í þessari heimsókn. Þær komu í júní og verða út júlímánuð. Þá stefna þær á að halda sýn- ingu í lok júlí á myndum sem þær hafa tekið á Íslandi og öðru efni en verið er að finna hentugan sýningarstað. Ein hugmyndanna sem Eva og Ulrike hafa hrint í framkvæmd er svokallað „ljósmynda-slamm“, keppni í að raða saman ljósmyndum svo úr verði stutt frásögn. Þær stóðu fyrir slíkri uppákomu á bar í Berlín og naut hún mikillar hylli. Fyrr í júlí héldu þær lítið ljósmynda- slamm á vinnustofunni sinni í Reykjavík og er þetta dæmi um hvernig hægt er að skoða ljósmyndir á nýjan hátt. Fyrir þá sem lesa þýsku þá halda þær stöllur úti bloggi um dvöl sína á Íslandi á slóðinni blog.goethe.de/ reykjavik Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  lisTakonur seTja fjölskyldumyndir í nýTT samhengi Safna ljósmyndum af Íslendingum Tvær þýskar listakonur eru hér á landi að safna ljósmyndum af Íslendingum til að nota í listsköpun sinni. Þegar hafa þær fengið um 500 myndir en óska eftir fleirum. Önnur listakonan kynntist Íslandi þegar hún myndskreytti bók eftir Eirík Örn Norðdahl fyrir nokkrum árum. Hin fékk Íslandsferð að gjöf frá móður sinni. Þær sækja safnara- búðir, flóa- markaði og sanka að sér fjöl- skyldu- og orlofs- myndum frá ókunnu fólki. Eva Kretschmer og Ulrike Olms hafa fengið mikinn fjölda mynda frá Íslendingum til að nota í listsköpun. Mynd/Teitur 48 menning Helgin 12.-14. júlí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.