Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.12.2011, Side 8

Fréttatíminn - 09.12.2011, Side 8
Lausir úr haldi Glitnismönnunum fyrr- verandi þeim Lárusi Snorrasyni, Inga Rafni Júlíussyni og Íslandsbanka- manninum núverandi Jóhannesi Baldurssyni, sem úrskurðaðir voru í vikulangt gæsluvarð- hald á miðvikudag í síðustu viku vegna rann- sóknar embættis sérstaks saksóknara á málefnum Glitnis, var sleppt úr haldi á mánudag. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, stóðu yfir- heyrslur yfir alla helgina og þótti ekki ástæða til að halda þeim í varðhaldi lengur. -óhþ Kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, bekktur þekktur sem Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun ásamt kærustu sinni. Átján ára stúlka kærði parið eftir að hafa farið heim með þeim. Egill sjálfur neitar sök og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist ætla að láta lögmenn sína leggja fram kæru vegna rangra sakargifta. Rannsókn málsins stendur yfir en búið er að yfirheyra málsaðila. Egill hefur verið settur í frí í starfi sínu hjá út- varpsstöðinni FM 957 þar sem hann hefur verið hjálparkokkur Auðuns Blöndal á föstu- dögum í þættinum FM 95 Blö. -óhþ 400 þúsund fyrir fíla Starfsmenn Lyfju á Smáratorgi seldu sjötíu postúlínsfíla fyrir 200 þúsund krónur á uppboði síðasta laugardag til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni sem safnar fyrir handaágræðslu í Frakklandi. Lyfja mun jafna upphæð starfsmanna sinna og því mun Guðmundur Felix fá 400 þúsund krónur frá starfsmönnum Lyfju. Lovísa Sigrún Svavarsdóttir, starfs- maður Lyfju, sem hafði og vanda af uppboðinu, segir í samtali við Fréttatímann að uppboðið hefði heppnast frábær- lega. „Þetta var æðislega gaman,“ segir Lovísa. -óhþ Ó hreinsað skólp hefur runnið bæði í Fossvogslæk og Kópavogslæk, læki sem eiga að vera prýði Foss- vogs og Kópavogs, útivistarsvæða í miðju höfuðborgarsvæðisins. Ákveðið var í haust hjá Kópavogsbæ að gera verulegt átak í því að finna rangtengingar skólplagna frá fyrir- tækjum og íbúðarhúsum. Rangtengingar hafa fundist vegna Kópavogslækjarins og bót unnin á, að sögn Margrétar Júl- íu Rafnsdóttur, formanns umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs, en vitað er af vandamálum innst í Fossvoginum. Þar leikur grunur á að skólplagnir undir húsum séu ónýtar. Leitað er að ástæðum mengun- arinnar í Fossvogsdalnum í samvinnu við Reykjavíkurborg. Við mælingar á magni saurkólígerla í Fossvogslæk og Kópavogslæk var gerla- magn eða skólpmengun langt yfir ásætt- anlegum mörkum. Verst var ástandið innst í Fossvogi, við Gróðrarstöðina Mörk og við Dalveg í Kópavogi. Orsakir eru taldar vera rangtengingar lagna í nærliggjandi hverfum Kópavogs og Reykjavíkur. Um rangtengingar er að ræða þegar skólp- lagnir eru tengdar inn á regnvatnslagnir. Þá rennur skólpið óhreinsað í lækina í stað þess að það fari í skólplagnir og þaðan í skólphreinsistöð. „Fólk er að setja ný klósett hjá sér, til dæmis í bílskúra – eða jafnvel í nýbygging- um eins og kom í ljós í verslunarhúsnæði við Dalveg – og tengir í drenlagnir í stað skólplagna,“ segir Margrét Júlía. „Það ætti ekki að vera hætta á ruglingi, menn eiga að vera með samþykktar teikningar, en við vitum ekki hvernig þetta er til komið.“ Margrét Júlía segir að málið hafi verið klárað í Kópavogsdalnum, lækurinn sé orðinn hreinn, þótt áfram þurfi að fylgjast með en vitað sé af vandamálum innst í Foss- vogsdalnum, Reykjavíkurmegin. „Við vitum að þarna er mýri og það geta verið ónýtar skolplagnir undir húsum en það hefur ekki verið rakið ennþá, hvort um er að ræða rangtengingar eða ónýtar lagnir. Við erum í samvinnu við Reykjavíkurborg að klára þetta. Það er mikilvægt að leita að ástæðum fyrir þessu í Fossvogsdalnum, hvort heldur eru rangtengingar eða ónýtar skolplagnir sem okkur er farið að gruna að kunni að vera ástæða þess hve mikið gerlamagnið reyndist vera, margfalt meira en það sem ásættanlegt er.“ Margrét Júlía segir mikilvægt að vara við þessu, slíkum upplýsingum eigi ekki að halda frá fólki enda hafi skólar nýtt þessi svæði, svo dæmi sé tekið. „Þar sem ástand- ið er verst geta verið skaðlegir gerlar.“ Hún segir enn fremur mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að öll efni sem notuð eru við þrif bíla úti við fari í regnvatnslagn- ir, til dæmis olíur og þynnir. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Engin lagaheimild fyrir hækkun Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, segir í skriflegu svari til Fréttatímans að það sé engin lagaleg heimild til að hækka veiðigjald á makríl og að Alþingi hafi ekki samþykkt þær til- lögur sem hann lagði til um hækkun veiðigjalds síðast- liðið vor. Hart hefur verið deilt á stjórnvöld vegna þess hversu mikið lægra veiðigjaldið er hér á landi í samanburði við Færeyjar og Noreg. „Varðandi makrílinn og hvernig við förum þar að skiptir líka máli að við erum að byggja upp veiðisögu okkar og reynslu í meðferð þessa fisks. Það hefur verið horft til þess að deila þessum aflaheimildum á sem flesta bátaflokka og höfuðmarkmið okkar er þar að skapa sem besta nýtingu aflans og skapa þar með sem mesta vinnu í landi. Þetta hefur tekist mjög vel, við erum nú búin að ná því að makríllinn fer nánast allur til manneldis og það skiptir líka máli fyrir okkar stöðu í þeim viðræðum sem eiga sér stað milli strandveiðiríkjanna sem sitja að samningum um skipt- ingu makrílsins. Hagsmunir okkar í þessum milliríkjasamningum eru mjög miklir og það sem mestu varðar í þessu enda er talið að verðmæti þeirra 160 þúsund tonna af makríl sem veiddist á yfirstandandi ári nemi um 18 milljörðum króna,” segir Jón. -óhþ  Skolpmengun FoSSvogSlækur og kÓpavogSlækur Saurkólígerlamengun langt yfir ásættanleg- um mörkum Átak Kópavogsbæjar í leit að rangtengingum skolplagna. Kópavogslækur orðinn hreinn en glímt er við vanda í samvinnu við Reykjavíkurborg innst í Fossvogsdal. Lagnir undir húsum hugsanlega ónýtar. Saurgerlamengun í Fossvogslæk og Kópavogslæk var margfalt yfir ásættanlegum mörkum. Rangteng- ingar lagna hafa fundist í tengslum við Kópavogslæk svo lækurinn er orðinn hreinn en vandinn er óleystur í Fossvogsdal. Hugsanlegt er talið að ónýtar lagnir undir húsum innst í dalnum valdi skólpmenguninni. Ljósmynd Hari 8 fréttir Helgin 9.-11. desember 2011 * Gildir á meðan birgðir endast. Jólaandinn er hjá Vodafone Þín ánægja er okkar markmið vodafone.is Frábær tilboð á snjöllum símum LG Optimus Black 59.990 kr. staðgreitt eða 4.999 kr. á mánuði í 12 mánuði Flott heyrnartól fylgja og 2.000 kr. inneign á Tónlist.is Nokia 500 39.990 kr. staðgreitt eða 3.333 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir*
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.