Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 8
Maria Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
Finnur þú ekki ré u gjöfina? Gjafakort Arion banka
er hægt að nota við kaup á vöru og þjónustu hvar
sem er. Einfaldara getur það ekki verið.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum Arion banka en
við verðum líka með gjafakortabása með lengri
opnunartíma í Kringlunni og í verslunarkjarnanum,
Bíldshöfða 20.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
12
-2
83
4
Gjafakortabás í Kringlunni
Dagsetning
Sun 16.12
Tími
14–18
Mið 19.12 18–20
Fim 20.12 18–21
Fös 21.12 18–21
Lau 22.12 16–21
Sun 23.12 13–21
Mán 24.12 10–13
Gjafakortabás á Höfða
Dagsetning
Mið 19.12
Tími
17–19
Fim 20.12 17–19
Fös 21.12 17–19
Lau 22.12 13–19
ÞÚ VELUR
FJÁRHÆÐINA
þiggjandinn velur gjöfina
D æmi eru um að konur hafi misst fóstur vegna ofbeldis af hendi maka sem þær
verða fyrir á meðgöngu og fjöldi
kvenna hefur þurft að leggjast inn
á kvennadeild Landspítalans vegna
hættu á fósturláti vegna heimilis-
ofbeldis, að sögn Sigþrúðar Guð-
mundsdóttur, framkvæmdastýru
Kvennaathvarfsins.
Stórt hlutfall kvenna sem leitar
til Kvennaathvarfsins vegna ofbeld-
is maka er barnshafandi. „Ofbeldi
verður oft grófara á meðgöngu en
konur verða einnig hræddari við
afleiðingar ofbeldisins á þessum
tíma því þær er eru með annað líf
inn í sér,“ segir Sigþrúður.
Stígamót hafa þurft að hitta kon-
ur á meðgöngudeild Landspítalans
og veita þeim stuðning og ráðgjöf
því þær eru rúmfastar vegna hætt-
unnar á fósturláti vegna ofbeldis-
ins. „Það er óhugnanleg staðreynd
að meðganga er áhættutími hvað
varðar ofbeldi maka. Fjöldi kvenna
sem kemur til okkar hefur skýrt
frá því að ofbeldi maka þeirra hafi
hafist á meðgöngu og orðið grófara
upp frá því,“ segir Sigþrúður.
Sigríður Sía Jónsdóttir, lektor í
hjúkrunarfræði við Háskólann á
Akureyri, segir brýna þörf á því
að gera kembileit vegna ofbeldis
maka að föstum lið í mæðraskoðun.
„Fagfólk er almennt vakandi fyrir
einkennum ofbeldis en það getur
verið flókið því þau eru oft óljós.
Það getur verið erfitt að spyrja kon-
ur út í það því makinn kemur nú-
orðið iðulega með í mæðraskoðun
enda höfum við lagt áherslu á það
undanfarin ár að maki taki þátt í
meðgöngunni,“ segir Sigríður Sía.
Hún bendir á að þó svo að komið
yrði upp kembileit til þess að greina
ofbeldi af hendi maka á meðgöngu
verði að gæta þess að bjóða jafn-
framt upp á nauðsynleg úrræði
fyrir maka sem beita ofbeldinu.
„Kvennaathvarfið, Aflið, Stíga-
mót og fleiri samtök bjóða upp á
ómetanlega hjálp fyrir konur til
að breyta lífi sínu og reynast oft
mjög mikilvæg þegar konur stíga
sín skref út úr ofbeldissambandi.
Við stöndum okkur hins vegar
ekki nægilega vel varðandi með-
ferð fyrir gerandann. Þar er bara
eingöngu hægt að benda á með-
ferðina „Karlar til ábyrgðar“ þar
sem boðið er upp á mjög gott starf
og stuðning fyrir karla sem beita
ofbeldi, en lítið annað er í boði, að
minnsta kosti hjá því opinbera,“
segir Sigríður Sía.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Geðveik jól eru átaksverkefni Geðhjálpar
Jólin eru líka tími einmanaleika og depurðar
Þ að er mjög mikilvægt að hlúa vel að okkar fólki á þessum árstíma. Fyrir mjög mörgum eru jólin hræðilega
erfiður tími, tími einmanaleika og depurðar,“
segir Björt Ólafsdóttir, formaður Geðhjálpar.
Samtökin standa fyrir keppninni Geðveik
jól og hafa fengið til liðs við sig starfsfólk 15
fyrirtækja sem hvert um sig samdi jólalag og
keppir nú innbyrðis í áheitasöfnun. Keppnin
hófst þann 5. desember og lýkur 18. des-
ember. Landsmönnum gefst svo kostur á að
kjósa jólalagið sem þeim finnst skara fram úr
og eiga skilin titilinn Geðveikasta jólalagið
2012. Keppninni lýkur þann 18. desember.
„Tilgangur keppninnar er fyrst og fremst
sá að vekja athygli á samtökunum og okkar
starfsemi. Okkur langar einnig með þessu
að vekja fólk til meðvitundar um geð-
sjúkdóma almennt. Við viljum líka hvetja
fólk til þess að styrkja samtökin, sem eru
frjáls félagasamtök þar sem allir vinna
sem sjálfboðaliðar. Við höfum fundið það
á undanförnum árum að það er full þörf
fyrir starfsemina þar sem það er oft langur
biðtími eftir sérfræðiaðstoð og við getur að-
stoðað fólk með hvernig það eigi að fóta sig
á meðan.“
Björt segir geðsjúkdóma algengari en
margan grunar. „Það eru ótrúlega margir
þarna úti sem er illt í sálinni, hvort sem það
er kvíði, leiði eða aðrir geðsjúkdómar. Það
sem er einnig svo mikilvægt er að fólk sé
ekki að rogast í skömm með þessar tilfinn-
ingar. Að það geti talað um líðan sína hvort
sem það er við vinnuveitendur eða vini og
fjölskyldu. Það er til dæmis engin frekari
skömm í því að fara í veikindaleyfi frá vinnu
til þess að hlúa að geðheilsunni heldur en
það er að vera frá vinnu vegna brjóskloss.
Á þessu viljum við vekja athygli og það er
ómetanlegt að hafa fengið þessi fyrirtæki til
liðs við okkur. Mér hlýnar allri í hjartanu að
vita það, að fólki standi ekki á sama. Það er
svo mikið til af góðu fólki þarna úti,“ segir
Björt.
Björt Ólafsdóttir er formaður
Geðhjálpar. Samtökin hlúa að
þeim sem þess þurfa allan ársins
hring, án endurgjalds.
Ofbeldi á meðgöngu
óhugnanleg staðreynd
MæðravernD Þörf keMbileitar veGna ofbelDis
Brýn þörf er á því að koma á
fót kembileit í mæðravernd
sem stuðlar að því að koma
konum sem verða fyrir ofbeldi
á meðgöngu til hjálpar. Bæta
þarf úrræði fyrir þá sem beita
ofbeldinu. Fjöldi kvenna hér-
lendis verður fyrir ofbeldi á
meðgöngu og þarf jafnvel að
leggjast inn á spítala af þeim
sökum
Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ofbeldi maka hefst oft á meðgöngu. Sumar
konur hafa sagt frá því að ofbeldi makans minnkar á meðgöngu eða hættir, en aðrar
hafa skýrt frá því að það versni. Ljósmynd/Getty
542 milljónir í jólagjafir sem enginn vill
Í könnun sem unnin var af félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands fyrir UNICEF
kemur fram að fjórði hver landsmaður
fær jólagjöf sem hann vill ekki eða nýtist
ekki. Í könnunni kom í ljós að 29% fólks
fékk eina eða fleiri gjafir sem það kærði
sig ekki um. Samkvæmt könnuninni má
því ætla að fólk á Íslandi fái um það bil
155.000 gjafir fyrir jólin sem nýtast því
ekki. Þetta þýðir að glataðar gjafir frá
í fyrra hafa verið um ríflega 150.000
talsins. Sé gefinn meðalkostnaður á gjöf
um 3.500 krónur er heildarverðmæti
gjafa sem engum nýttust 542 milljónir
króna. Með könnuninni vill forsvarsfólk
UNICEF benda á að fyrir upphæðina hefði
mátt veita yfir 45.000 lífshættulega
vannærðum börnum meðferð. En fjöldinn
samsvarar nær öllum grunnskólabörnum
á Íslandi.
Á vefnum sannargjafir.is má kaupa
hjálpargögn fyrir bágstödd börn og
vilja samtökin vekja athygli á því að
samkvæmt sömu könnun eru 88%
landsmanna ánægð með að andvirði
jólagjafarinnar sem þeir vilja ekki, renni
til kaupa á hjálpargögnum fyrir bágstödd
börn í þeirra nafni.
Vítamínbætt jarðhnetumauk fyrir van-
nærð börn hefur notið vinsælda sem
sönn gjöf hjá UNICEF.
8 fréttir Helgin 14.-16. desember 2012