Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 10
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
5
9
6
Verslaðu heima
– og fáðu í skóinn
Allir sem versla í vefverslun Advania í desember eiga möguleika á að
fá jólaglaðning í skóinn. Frá og með 11. desember drögum við úr nöfnum
þeirra sem nýta sér vefverslunina og birtum á Facebook síðu okkar.
Þeir sem vilja standa upp úr sófanum eru velkomnir í verslanir okkar
á Tryggvabraut 10, Akureyri eða Grensásvegi 10, Reykjavík. Opið virka
daga 10–18, laugardaga 11–16 og á sunnudaginn, 16. des frá 11–16.
advania.is/jol
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
Nettir ferðahátalarar
með mögnuðum hljóm
verð: 3.950
Dell Inspiron
14z Ultrabook
verð: 159.990
Fartölvuumslag
í mörgum litum
verð: 3.990
áður: 6.190
Dell 27“ LED skjár
verð: 59.900
áður: 69.900
Samsung Galaxy SIII
verð: 109.900
Samsung Galaxy Tab 2
10" WiFi 16 GB
verð: 67.990
Þegar ég var búin að
skrifa undir ruku hríð-
arnar hins vegar í gang.
Atvinnulíf Mætti í AtvinnuviðtAlið gengin viku frAM yfir áætlAðAn fæðingArdAg
Ráðin í lykilstöðu með hríðir
Fanney Karlsdóttir skrifaði undir ráðningu sína í lykil-
stöðu hjá Símanum með hríðir gengin þrettán daga
fram yfir áætlaðan fæðingardag þriðja barnsins síns.
Hún mætti á fæðingardeildina klukkustund síðar
komin með átta í útvíkkun. Hún hlakkar til að taka við
draumastarfinu að loknu fæðingarorlofi, sérfræðingur
í samfélagsábyrgð fyrirtækisins, sem er ný staða.
f anney Karlsdóttir var ráðin í lykilstöðu hjá Símanum rúmri viku eftir að gert var ráð fyrir að þriðja barn henn-ar kæmi í heiminn og skrifaði undir ráðningarsamning-
inn með hríðir, gengin nær tvær vikur fram yfir. Klukkustund
eftir að hún var búin að skrifa undir var hún mætt á fæðingar-
deildina, með átta í útvíkkun. Hún er nú í fæðingarorlofi en
tekur við draumastarfinu, sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá
Símanum, að því loknu.
„Það var mjög tillitssamt af barninu, að bíða með að koma í
heiminn þangað til ég var búin að skrifa undir ráðningarsamn-
inginn,“ segir Fanney og hlær. Hún hafði komið við hjá ljós-
móður klukkustund áður þar sem hreyft var við belgnum því
hún var komin þrettán daga fram yfir áætlaðan fæðingardag.
Þegar hún svo mætti í höfuðstöðvar Símans til að skrifa undir
ráðningarsamninginn var hún farin að finna fyrir verkjum.
„Þegar ég var búin að skrifa undir ruku hríðarnar hins vegar
í gang. Ég þurfti að bíða smá stund eftir manninum mínum,
sem var á leiðinni að sækja mig, og var orðin mjög kvalin þegar
hann kom. Ég stundi bara þegar ég kom út í bíl og honum leist
ekkert á blikuna,“ segir Fanney.
„Þetta er þriðja meðgangan mín og fyrri tvær fæðingarnar
fóru mjög hægt af stað þannig að ég átti ekkert von á að þetta
gerðist svona hratt,“ segir hún.
Hún viðurkennir að það hafi alveg hvarflað að henni að
það gæti reynst henni Þrándur í Götu í ráðningarferlinu að
hún væri komin að því að fæða barn. „Það var ljóst að ég yrði
ekki tiltæk næstu vikurnar, í það minnsta fjóra mánuði. En ég
hugsaði með mér að það væri svo sem ekkert öðruvísi en ef
ég þyrfti að vinna uppsagnarfrest í annarri vinnu sem er ekki
óalgengt,“ segir Fanney.
Barnið fæddist 29. október og reiknar Fanney með því að
byrja að vinna í mars. Í starfi hennar felst að huga að ábyrgum
starfsháttum fyrirtæksins í hvívetna. „Samfélagsábyrgð fyrir-
tækis er ekki bara eitthvað eitt, hún snertir alla þætti starfsem-
innar, jafnt inn á við sem út á við. Markmiðið er að hámarka já-
kvæð áhrif á samfélagið og lágmarka neikvæð,“ segir Fanney.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Fanney Karlsdóttir er nýr sérfræðingur í
samfélagsábyrgð hjá Símanum, skrifaði undir
ráðningarsamning með hríðir og var komin á
fæðingardeildina klukkustund síðar. Ljósmynd/Hari
10 fréttir Helgin 14.-16. desember 2012