Fréttatíminn - 14.12.2012, Síða 18
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00
Opið á Þorláksmessu kl. 12-16
og aðfangadag kl. 9-12
Hlökkum til að sjá þig!
Erum með spennandi jólaöskjur m.a. frá Biotherm, Clinique,
Decubal, Gosh, MAX Factor og Sif Cosmetics. Minnum einnig á
úrval fallegra skartgripa og dásamlega ilmi fyrir dömur og herra.
Jólin eru komin
hjá okkur í Urðarapóteki
Kynntu
þér
jólatilb
oðin se
m
verða
í Urðar
apótek
i
fram a
ð jólum
.
Úrval
tilbúin
na
gjafap
akka.
Jólasveinarnir eru velkomnir!
Gleðileg jól
Að sníða sér jólastakk eftir vexti
E f tirminnilegustu jól lífs míns voru fyrir tveimur árum. Þau voru ekkert sér-
staklega gleðileg. Bara erfið.
Yngstu börnin tvö voru tveggja
og fjögurra ára. Sú fjögurra ára
var á áköfu mótþróa-
skeiði og ég með vægan
kvíða og þunglyndi – á
því stigi að ég áttaði mig
ekki á því, réð ekki vel
við einföld verkefni, en
náði samt að fúnkera
sæmilega. Maðurinn
minn var í fullri vinnu
og fullu háskólanámi og
ég í fullri vinnu og sá að
mestu um stórt heim-
ili. Til þess fékk ég þó
hjálp yndislegrar stúlku
sem hitti mig í leikskóla
barnanna og kom með
okkur heim í tvo tíma
daglega og veitti ómetanlega að-
stoð.
En svo komu jólin.
Þau höfðu aldrei verið neitt
vandamál í mínu lífi. Bara gleði-
leg. Aldrei erfið.
Ég hef gaman af því að elda
– og finnst jólin fyrst og fremst
matarhátíð, samveruveisla, fjöl-
skyldugleði.
Síðustu dagana fyrir jól nýt ég
þess að fletta matreiðslubókum
og fá innblástur að jólamáltíðinni.
Hvernig fyllingu á ég að útbúa í
gæsirnar? Hvernig matreiði ég
hörpudiskinn í forrétt? Á ég að
hafa tvo ólíka eftirrétti?
Þessi jólaundirbúningur var
ekkert öðruvísi. Hélt ég.
Ég hlustaði ekki á viðvörunar-
bjöllurnar í höfðinu á mér þegar
allt fór í háaloft þegar fjölskyldan
ætlaði saman út í skóg að höggva
jólatré. Yngsta dóttirin harðneitaði
og hélt fjölskyldunni í gíslingu í
tímabundinni sturlun.
Ég áttaði mig ekki á því að jólin
yrðu mér ofjarl þegar þrjátíu gestir
biðu í tvo klukkutíma eftir að Þor-
láksmessuskatan kæmi á borðið.
Það var ekki fyrr en korter í tvö
á aðfangadag er ég áttaði mig á
því að ég væri að klúðra jólunum.
Réttirnir fimm voru á áætlun en ég
var ekki að njóta þess að elda þá.
Þegar ég fékk börnunum það
verkefni að raða pökkunum
undir jólatréð kom í ljós að eitt
hafði gleymst: gjöf handa yngstu
dótturinni! Í óðagoti rauk ég út í
bíl og brunaði í Toys R‘ Us, sem
var næsta opna dótabúð. Ég rétt
náði fyrir lokun og keypti fárán-
legustu gjöf sem ég hef nokkru
sinni gefið barni: trommusett. Ég
var alveg þar.
Þegar ég sat undir stýri á
Vesturlandsveginum með pakka
í yfirstærð í aftursætinu skildi ég
í augnablik það fólk sem lætur
sig hverfa út í heim. Ekki það að
ég myndi nokkru sinni gera það
– ég fékk bara eina af þessum
hugsunum sem allt í einu koma í
huga manns þegar maður er ekki
að hugsa. Hvað myndi gerast ef
ég sneri bílnum við, keyrði beina
leið út á Keflavíkurflugvöll og
hoppaði upp í næstu vél?
Svo fór hugsunin aftur. Því ég
er skynsöm og ábyrg móðir, eig-
inkona, dóttir, systir og vinkona.
Og ég kom heim, setti síðasta
pakkann undir tréð og lauk við
matseldina.
Þegar jólin hringdu inn bar ég
matinn örþreytt á borð. Yngsta
dóttirin neitaði að fara í jólakjól-
inn og þvertók jafnframt fyrir
að setjast við matarborðið. Við
tókum ekki slaginn, settumst við
jólaborðið og reyndum að njóta.
Á meðan sat hún á nærbuxunum
í sófanum í stofunni og horfði á
Skoppu og Skrítlu. Ég fann ekk-
ert bragð af matnum.
Ég treysti mér ekki til að halda
næstu jól heima. Við fórum til
mömmu og pabba og það var
yndislegt. Í fyrra fór ég til Sollu
minnar á Gló og keypti dásam-
lega hnetusteik og meðlæti og
maðurinn eldaði hamborgar-
hrygg.
Síðustu jól voru yndisleg. Ég
hafði lært að sníða mér jólastakk
eftir vexti.
Það kemur að því að ég bjóði
aftur upp á fimm rétta aðfanga-
dagsmáltíð. Það verður þó ekki
fyrr en ég veit að ég muni ráða
við verkefnið. Því jólin eiga að
vera gleðileg. Aldrei erfið.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
VikAn í tölum
100
ár eru síðan Thorbjörn Egner leikritahöfundur
fæddist. 50 ár eru síðan Dýrin í Hálsaskógi
voru heimsfrumsýnd í Þjóðleikhúsinu.
16.569
lítrar af áfengi voru seldir
í Vínbúðunum fyrstu ellefu
mánuði ársins. Á sama
tímabili í fyrra
voru seldir
lítrar
16.425.
5.000
manns hafa
náð sér í
Strætó appið
síðan það
var kynnt
fyrir rúmum
tveimur vikum.
92
ára var sítarleikarinn
Ravi Shankar þegar
hann lést í vikunni.
5
íslenskir sérfræðingar
starfa nú á vegum ís-
lenskra stjórnvalda í
Mið-Austurlöndum hjá
stofnunum Sameinuðu
þjóðanna sem veita
Palestínumönnum
aðstoð.
Vikan sEm Var
Gefst aldrei upp
Ég hafði góðan sigur síðast og hef því
ástæðu til að vera bjartsýnn. Ég er
með frábæran lækni sem er algjör
perla. Ég er baráttumaður og enginn
ástæða til að gefast upp.
Jóhannes Jónsson, löngum kenndur
við Bónus en núna Iceland, hefur
greinst með krabbamein í annað
sinn og tekst á við meinið af sama
æðruleysi og áður.
Í djúpum...
Það á bara að drepa mann lifandi.
Bjarni Bærings Bjarnason, kúabóndi
á Brúarreykjum í Borgarfirði, segist
fórnarlamb valdníðslu Matvælastofn-
unar sem hefur afturkallað starfsleyfi
kúabús hans vegna sóðaskapar í
fjósinu.
Ótruflaður af
áróðri
Ég er nú svo
heppinn að
sjá ekki svona
Félag sjálf
stæðis manna
í Grafarvogi
líkti Helga
Hjörvar,
Ögmundi Jónassyni
og Steingrími J. Sigfússyni við
Talibana á mynd þar sem andlit
þeirra voru sett á herskáa Talibana.
Helgi undraðist að fullorðið fólk léti
svona frá sér en prísaði sig sælan að
geta ekki séð ósköpin.
Brandarinn er nú
ekki búinn
Það held ég að
sé eitthvað sem
engum dettur
í hug eins og
staðan er í
dag. Það er
þá yfirgengileg
bjartsýni.
Grétar Þór
Eyþórsson stjórn mála fræði prófessor
útilokaði í samtali við DV að Jón
Gnarr komist á þig í fimmta sæti á
lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík.
Jólakötturinn í
Kringlunni
Ég er reið og
sár, en ætla
einsog ég tók
fram hérna
fyrir stuttu...
að dansa
þetta af mér.
Vikan var Maríu
Birtu Bjarnadóttur
í versluninni Maníu erfið. Fyrst
kviknaði í verslunarhúsnæði hennar
við Laugaveg. Þar slapp hún með
skrekkinn en þá tóku stjórnendur
Kringlunnar við og vísuðu henni úr
húsi með verslunina þar.
Akademísk della?
Þetta er fráleit
staðhæfing.
Þorvaldur
Gylfason,
hagfræðingur
og fyrrum
stjórn laga ráðs
fulltrúi, vísar
alfarið á bug
yfirlýsingu Gunnars
Helga Kristinssonar,
prófessors í stjórnmálafræði, um að
stjórnlagaráð hafi verið „umboðslaus
samkunda.“
Tschüß, au revoir, gúddbæ!
Á stjórnarfundi Heimssýnar í kvöld
tilkynnti ég uppsögn mína eftir
þriggja ára starf hjá samtökunum.
Páll Vilhjálmsson, fyrrum
framkvæmdastjóri samtakanna
Heimssýnar, lét af starfinu í kjölfar
átaka innan samtakanna. Hann veður
áfram óbreyttur meðlimur og ætlar að
berjast áfram gegn aðild að ESB.
18 fréttir Helgin 14.-16. desember 2012 vikunnar