Fréttatíminn - 14.12.2012, Side 22
H elgi Árnason hefur verið skóla-stjóri Rimaskóla í Grafarvogi frá stofnun hans árið 1993. Hann er maðurinn á bak við „krafta-
verkið í Grafarvogi“ eins og það var orðað í
nýlegri umfjöllun Fréttatímans, um undra-
verðan árangur Rimaskóla í skák, sem
landað hefur óteljandi sigrum á Íslands- og
Norðurlandamótum barna- og grunnskóla-
sveita síðasta áratug.
Áður en að Helgi gerðist skólastjóri var
hann kennari í Seljaskóla, Grandaskóla og
Melaskóla og var þar leiðbeinandi í skák
án þess að vera slyngur skákmaður, eftir
því sem hann sjálfur segir. Í öllum þessum
skólum náði hann að kveikja áhuga barna
fyrir því hversu skemmtileg skákin væri
og færi vel saman við skólastarfið. „Á
þessum árum var boðið upp á tómstunda-
starf í skólum. Enginn skóli stóð svo illa að
tómstundastarfi að hann gæti ekki boðið
upp á skák og borðtennis,“ segir Helgi.
Tómstundatilboðin voru ekki mjög mörg
og það leiddi til þess að börnin hópuðust á
þessi námskeið. Þegar Helgi tók sjálfur við
skólastjórn, lagði hann áherslu á að koma
skákstarfi á í skólanum. Hann hefur alltaf
verið sannfærður um að skák og skólastarf
eigi mjög vel saman, rökhugsunin hjálpi
og auðveldi skilning nemenda á öðrum og
ólíkum sviðum námsins. „Hvort sem það
eru foreldrar, samstarfsfólk eða pólitíkusar
bera allir mikla virðingu fyrir skákinni og
auðvelt er að sannfæra fólk um að skák og
skóli eigi saman,“ segir Helgi og bendir á að
fjórir efstu nemendur 7. bekkjar á sam-
Kraftaverkið í Grafarvoginum
Helgi Árnason
skólastjóri er
maðurinn á bak
við „kraftaverkið
í Grafarvoginum“
eins og skáksér-
fræðingar nefna
undraverðan
árangur Rima-
skóla í skák. Hann
segir agaleysi há
allt of mörgum
nemendum en
skákin hjálpi oft.
Í allt of mörgum
tilfellum hafa
markmið og
lausnir beðið skip-
brot og úrræða-
leysið aukist.
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki kynnir fimm vikna námskeið
fyrir konur í gerð viðskiptaáætlana
Kennsla hefst 29. janúar 2013.
Skráning og nánari upplýsingar á islandsbanki.is
Íslandsbanki og Félag kvenna í atvinnulífinu standa
fyrir námskeiði í gerð viðskiptaáætlana í samstarfi
við Opna háskólann í HR.
Í lok námskeiðs geta þátttakendur skilað
viðskiptaáætlun til dómnefndar. Fimm eru valdar
áfram í nánari ráðgjöf. Sú viðskiptaáætlun sem
þykir best fær 2.000.000 kr. styrk frá Íslandsbanka.
Ertu með
viðskiptahugmynd?
Afsláttur í boði
Íslandsbanka
50%
Elísabet Jónsdóttir og Olga Hrafnsdóttir í
Volka, sigurvegarar námskeiðsins 2012.
Helgi Árnason hefur verið skólastjóri Rimaskóla í Grafarvogi frá stofnun hans árið 1993. Hann er maðurinn á bak við „kraftaverkið í Grafarvogi“ eins og það var orðað í nýlegri umfjöllun Fréttatímans, um undraverð-
an árangur Rimaskóla í skák, sem landað hefur óteljandi sigrum á Íslands- og Norðurlandamótum barna- og grunnskólasveita síðasta áratug. Ljósmynd/Hari
ræmdu stærðfræðipróf síðast-
liðið haust höfðu öll æft skák.
„Nemendur sem hafa átt erfitt
með einbeitingu og ekki notið
sín í námi, hafa fundið sig við
skákborðið, bæði náð þar árangri
og ekki síður haft ánægju af því
að tefla,“ segir Helgi. „Þessir
nemendur verða hinir meðfæri-
legustu á skákæfingum og taka
framförum. Þeir njóta þess að
eiga áhugamál þar sem þeir eru
jafningjar annarra.“
Hvað gerist hjá krökkunum?
Af hverju einbeita þeir sér betur
í skákinni? „Ég hef ekki alveg
Framhald á næstu opnu
22 viðtal Helgin 14.-16. desember 2012