Fréttatíminn - 14.12.2012, Side 38
ALLT
AÐ
KG45
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 |
Viðtakandi fær tilkynningu þegar sækja má sendingu.
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m
og hámarksþyngd 45 kg.
Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka
– aðeins 750 krónur hvert á land sem er.
Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega með
Eimskip Flytjanda. Upplýsingar um næsta
afgreiðslustað á www.flytjandi.is
OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR
JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA
750KR.
80
ÁFANGASTAÐIR
UM ALLT LAND
H inrik Bjarnason, sem síðar varð dagskrárstjóri Sjón-varpsins, var fyrsti um-
sjónarmaður Stundarinnar okkar
en brúður léku lykilhlutverk í
þáttunum fyrstu árin. Rannveig og
Krummi komu fram 1967 og eiga
enn vísan stað í barnshjörtum fólks
sem nú er rækilega komið til vits og
ára. Fúsi flakkari skaut upp kollin-
um 1969 og hinir lífseigu og sprell-
fjörugu Glámur og Skrámur mættu
til leiks 1972 og síðan sló Palli, Páll
Vilhjálmsson, hressilega í gegn og
sprengdi ramman heldur betur og
fór einnig á kostum í vinsælli barna-
bók Guðrúnar Helgadóttur.
Brúður voru vitaskuld einnig
í forgrunni á meðan Helga Steff-
ensen stýrði stundinni frá1987
til 1994. Þá átti Keli köttur góða
spretti í félagi við Ástu Hrafnhildi
á árunum 1997 til 2001. Steinn Ár-
mann Magnússon túlkaði þennan
káta kött með tilþrifum sem fólk
sem er að skríða yfir tvítugt gleym-
ir væntanlega seint.
Bryndís Schram tók við Stund-
inni okkar árið 1979 og þá færðist
heldur betur fjör í leikinn. Leiknar
persónur voru Bryndísi til fulltingis
og Laddi hristi fram nokkrar af
sínum eftirminnilegustu persónum
eins og þá Eirík Fjalar og Þórð hús-
vörð. Þórður gamli var pínu skotinn
í Bryndísi og var víst ekki einn um
það þar sem Stundin okkar var í
gamni oft kölluð „Pabbatíminn“ á
þessum árum þar sem feður sýndu
barnaefninu skyndilega mikinn
áhuga og horfðu á þáttinn með
börnunum og þótti blasa við að
þokki Bryndísar hefði meira að-
dráttarafl en áhugi á viðfangsefn-
um barnanna.
Sigurður Sigurjónsson átti
einnig frábæra innkomu í hlutverki
drengsins ljúfa Elíasar á árunum
1983 til 1985. Rétt eins og Páll Vil-
hjálmsson haslaði Elías sér völl í
barnabókum sem nutu vinsælda á
þessum árum.
Gunni og Felix léku samnefndar
persónur í þáttum sínum 1994 til
1996 en Þóra Sigurðardóttir og
Jóhann G. Jóhannsson gengu skref-
inu lengra árið 2002 og bjuggu til
persónurnar Birtu og Bárð. Frá
2007 hefur Stundin okkar byggst
á samhangandi leiknum atriðum.
Stígur og Snæfríður, Björgvin
Franz sem húsvörður á ævintýra-
ganginum og nú síðast Sunna Kar-
ítas Oktavía Torfhildur Tildurrófa
Aðaldal eða bara Skotta!
Safndiskarnir fjórir geyma
gamlar og nýjar perlur úr langri
sögu Stundarinnar okkar auk þess
sem Jólastundunum eru gerð skil
á einum diski. Einhverjar gloppur
eru þó í þessu líflega yfirliti þar
sem ekki hefur allt efni Stundarinn-
ar varðveist en samt er af nógu að
taka og góðar líkur á að fullorðnir
áhorfendur fái ekki síður gæsahúð
við áhorfið en ungviðið þar sem
drjúgur hluti íslensku þjóðarinnar á
bernskuminningar tengdar Stund-
inni okkar.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Stundin okkar var
í gamni oft kölluð
„Pabbatíminn“ á
þessum árum þar sem
feður sýndu barnaefn-
inu skyndilega mikinn
áhuga og horfðu á
þáttinn með börn-
unum og þótti blasa
við að þokki Bryndísar
hefði meira aðdráttar-
afl en áhugi á við-
fangsefnum barnanna.
Stundin okkar í
tæpa hálfa öld
Barnatíminn Stundin okkar er elsti íslenski sjónvarpsþátturinn
sem enn er í gangi. Fyrsti þátturinn var sendur út á jóladag
árið 1966 klukkan 18 og allar götur síðan hefur þátturinn verið
fastur liður í vetrardagskrá Sjónvarpsins og skemmt börnum á
slaginu sex á sunnudögum. Sjónvarpið hefur nú gefið út úrval
úr Stundinni okkar á fjórum mynddiskum. Kynslóðirnar ættu
að geta skemmt sér vel saman við að rifja upp gamlar stundir
sínar enda eiga líklega býsna mörg börn sem nú bíða spennt
eftir Stundinni á sunnudögum ömmur og afa sem biðu jafn
spennt fyrir framan sjónvarpið fyrir hartnær hálfri öld.
Bryndís Schram ásamt Binna í Brandarabankanum. Bryndís heillaði unga sem aldna á árum
sínum í Stundinni.
Gunni og Felix nutu feikilegra
vinsælda á meðan þeir sprelluðu í
Stundinni okkar.
Ranveig og Krummi voru fyrstu stjörnurnar í
Stundinni okkar.
Helga Steffensen bauð upp á fjöl-
skrúðugt úrval leikbrúða í Stundinni
okkar.
Prakkarinn Páll Vilhjálmsson tengist
Stundinni okkar órjúfanlegum böndum.
Hann er auðvitað ekkert barn lengur
en í æsku fór hann í kröfugöngu með
skilti sem á stóð LÝSIÐ HÆKKI-LAKKRÍS
LÆKKI. Ekki er vitað hverjar kröfur hans
voru í Búsáhaldabyltingunni.
38 úttekt Helgin 14.-16. desember 2012