Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 42
ÍTALSKT
JÓLABRAUÐ
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunudaga 8.00 -16.00
Myndlistarmaðurinn
Hallgrímur Helgason er einn af þeim myndlistar-
mönnum sem hafa verið einna duglegastir að
nýta sér nýjan tjáningarmáta. Þannig er síða
hans á Facebook einskonar tímarit á netinu
og þekktar myndir á þeirri síðu eru til dæmis
Kristján Þór Júlíusson í málþófi, svo er Bjarni
Benediktsson skítugur upp fyrir haus ásamt
Baldri Guðlaugssyni í héraðsdómi, þá er eilítið
meiri fagurfræði í mynd af Karli Wernerssyni að
ganga inn í dómssal og loks er það gamli góði
Villi í Eir.
Myndvinnslumeistarar á Facebook
Sífellt erfiðara
er að ritskoða
eða stýra
umræðunni
segir Guð-
mundur Oddur
Magnússon,
prófessor í graf-
ískri hönnun við
Listaháskóla
Íslands, en á
netinu ganga
oft myndir sem
fiktað hefur
verið í til að
koma á fram-
færi pólitískum
skilaboðum.
Fréttatíminn
leit á nokkrar
myndir og
ræddi við
prófessorinn.
Þ egar tæknin er orðin svona aðgengileg þá er hægt að fremja svona gjörninga í hita augna-bliksins,“ segir Guðmundur Oddur Magnús-
son, prófessor í hönnun við Listaháskóla Íslands, um
hin svokölluðu mynda-„meme“ sem ganga oft á net-
inu. „Meme“ er orð frá breska þróunarlíffræðingn-
um Richard Dawkins og þá er átt við nokkurs konar
menningarleg gen en í netheimum er „meme“ notað
yfir fyrirbæri sem fara á flug og ganga á milli fólks.
Skopteikningar hafa lengi fylgt fjölmiðlum og
Guðmundur Oddur segir að með netinu og nýrri
tækni hafi mjög flóknir hlutir orðið mjög auðveldir í
framkvæmd: „Til dæmis þurfti að fara til setjara hér
áður fyrr til að búa til bók en nú getur hver sem er
búið til bók í tölvunni heima hjá sér.“
Guðmundur segir ennfremur að Facebook-síða
einstaklings geti oft virkað eins og fínasta tímarit.
„Nú getur hver sem er verið ritstjóri. Það er erfitt að
ritskoða eða stýra umræðunni í dag. Hún flýtur sjálf,
á eigin forsendum.“
Aðspurður hvort þessar myndir sem nú gangi
um á netinu séu sérlega grófar eða eitthvað verri en
skopteikningar í blöðum og tímaritum hér á árum
áður segir Guðmundur Oddur að svo sé ekkert endi-
lega. „Hinsvegar kemur fólk auðvitað upp um sig
ef það er ómerkilegt og við sjáum fljótt hverjir eru
listamenn og hverjir ekki.“
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Talibanar
Þessi vakti titring og DV fjallaði um birtingu
myndarinnar í vikunni en þarna er Helga
Hjörvar, Steingrími J. Sigfússyni og Ögmundi
Jónassyni líkt við Talibana í Afganistan.
Gillzenegger
Egill Einarsson Gillzenegger hefur síðastliðið ár
verið vinsæll meðal myndvinnslufólks og margar
myndir flogið hátt á netinu. Þessi fór mjög víða og
sagði Egil mennska Nilfisk ryksugu.
Bjarni virgin
Forsíða Nýs lífs með Bjarna Benediktssyni vakti mikla
lukku og myndvinnslumeistarar netsins sáu strax
líkindi með ljósmyndinni og plakati kvikmyndarinnar
The 40 Year-Old Virgin.
Davíð vinsæll
Davíð Oddsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins, hefur lengi verið
vinsæll skotspónn á Facebook
og víðar. Margar myndir hafa
gengið af honum en hann var
auðvitað bæði forsætisráð-
herra og seðlabankastjóri. Hér
er hann sem 10 þúsund kallinn,
Hitler og Jókerinn ásamt vini
sínum, Geir Haarde.
Höski og Simmi
Höskuldur Þór
Þórhallsson og
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson sussa
á netverja, upp-
ábúnir sem Laurel og
Hardy.
E.T.
Nýlega datt þessi
mynd á netið í kjöl-
far þingsályktunar
um óhefðbundnar
lækningar. Þarna er
E.T. með flutnings-
konum ályktunar-
innar.
LOL
Nýlega fór þessi mynd sem eldur um sinu
eftir sigur Hönnu Birnu í prófkjöri í Reykja-
vík. Hér er hún með Kjartani Gunnarssyni og
Hannesi Hólmstein Gissurarsyni.
Bandidos
Þessi mynd
varð að
svokölluðu
„meme“, svo
notað sé orð
yfir fyrirbæri
sem Richard
Dawkins notar
um menn-
ingarlega arfleifð
sem eignast eigið
líf. Ekki er vitað hver
höfundur myndarinn-
ar er en hana er að
finna víða á netinu.
CINTAMANI Í
JÓLAPAKKANN
42 úttekt Helgin 14.-16. desember 2012