Fréttatíminn - 14.12.2012, Síða 74
70 prjónað Helgin 14.-16. desember 2012
Jólahúfur fyrir konur og karla
Guðrún hannele
henttinen
hannele@ storkurinn.is
Dúskahúfa
Þessi er fyrir dömur á öllum
aldri. Dúskar eru komnir aftur
í tísku og þeir eru stærri frekar
en minni. Það er ekkert mál að
gera dúsk með því að klippa
hringform úr pappa, en svo er
líka hægt að fá frábær áhöld frá
Clover sem gera dúskagerð leik
einn. Í þessari húfu fellur úr-
takan inn í kaðlana, enda kemur
það vel út.
Húfuveður
n ú er húfuveður og satt að segja finn ég til þegar ég mæti einhverjum húfulaus-um á götu á köldustu dögunum. Ég hef
einkum áhyggjur af körlum á ákveðnum aldri.
Þess vegna gerði ég sérstaka þarfagreiningu til
að kanna hvernig húfa væri klæðileg fyrir herra
á virðulegum aldri. Auðvitað er húfan fyrir alla
hina líka, en þeir eru líklega af kynslóðinni sem
upplifðu húfutískubylgjuna fyrir nokkru þegar
kennarar áttu t.d. í mesta basli við að fá drengi
til að taka ofan í kennslustundum. Þeir eru van-
ir húfum og ætti ekki að verða kalt á kollinum.
Það eru hinir sem eru aðeins eldri og ólust
ekki upp við að húfur væru málið sem við
ættum að hugsa til. En húfur eru málið bæði
sem skjólflík og sem stíll. Og ef
það dugir ekki sem rök má geta
þess að mesta hitatapið á sér stað
í gegnum höfuðið og því skiptir
miklu máli að vera með höfuðfat.
Ég man þá tíð að þegar að frostið
fór niður fyrir 20°C í Finnlandi
einn veturinn þá komu reglulegar
tilkynningar í útvarpinu þar sem
fólk var varað við því að fara úr húfulaust. Hér
á landi er sjaldnast svo mikið frost en það blæs
oftar og það er alls ekkert betra.
Húfuprjón tekur eina til tvær kvöldstundir
fyrir vana og enn er tími til stefnu til að gera
eitthvað mjúkt og notalegt í jólapakkana ef vill.
Eða bara prjóna handa sjálfum sér til tilbreyt-
ingar. Dúskahúfan er fyrir stelpur og konur á
öllum aldri, og já líka konur því dúskar eru ekki
lengur bara fyrir börn. Fallegt kaðlamynstur frá
hinum þekkra prjónhönnuði Debbie Bliss sem
hefur gefið út fleiri bækur um prjón en ég hef
tölu á. Það er búið að máta húfurnar á marga
kolla og það kom í ljós að þær eru mjög klæði-
legar. Það gerir grófleikinn á garninu og þykka
uppábrotið.
Góðar prjónastundir á aðventunni.
ve
rt
u
hl
ýl
eg
u
m
jó
lin
HÖNNUÐUR
Debbie Bliss
STÆRÐ
Ein stærð sem passar á meðal-
stórt fullorðins höfuð.
GARN
Luxury Tweed Aran (85%
lambsull, 15% angóra) eða
Rialto Aran (100% merínóull)
frá DEBBIE BLISS, 3 x 50g (2 ef
dúsknum er sleppt).
PRJÓNAR
40 cm hringprjónar nr 4,5 og 5.
Sokkaprjónar nr 5.
Kaðlaprjónn.
PRJÓNFESTA
18 lykkjur og 24 umferðir í
sléttprjóni = 10x10 cm á prjóna
nr 5.
Ef prjónfestan stenst ekki
verður húfan annað hvort
stærri eða minni
AÐFERÐ
Húfan er prjónuð í hring.
Byrjað er á grófari prjónum og
skipt yfir í fínni prjóna þegar
brugðningurinn er hálfnaður
svo húfan sitji þéttar á höfðinu.
ORÐALYKILL
L = lykkja, lykkjur
cm = sentimetrar
umf = umferð
S = slétt, sléttar
B = brugðin, brugðnar
auk: 1Sz = útaukning - hallar til
vinstri. Lyftið upp þverbandinu
á milli lykkjanna með vinstra
prjóni framan frá, prjónið 1 slé-
tta í aftari lykkjubogann. Ekkert
gat myndast.
úrt: 2Ss = úrtaka - hallar til
hægri. 2L sléttar saman.
úrt: 2Ssz = úrtaka - hallar til
vinstri. Takið 2 L óprjónaðar, 1 í
einu, setjið vinstri prjóninn inn
í þær að framan og prjónið þær
saman aftan frá.
s = saman
Ó = lykkja tekin óprjónuð
kp = kaðlaprjónn
endurt = endurtakið
K2(3)/2(3)A = kaðall - hallar til
hægri – 2(3) lykkjur settar á
kaðlaprjón og settar aftur fyrir,
2(3) sléttar prjónaðar af vinstra
prjóni, 2(3) sléttar prjónaðar af
kaðlaprjóni.
K2(3)/2(3)F = Kaðall - hallar til
vinstri - 2(3) lykkjur settar á
kaðlaprjón og settar fram fyrir,
2(3) sléttar prjónaðar af vinstra
prjóni, 2(3) sléttar prjónaðar af
kaðlaprjóni.
HÚFAN
Fitjið upp 96L á prjóna nr 5 og
tengið í hring. það er gott að
hafa merki við byrjun umf.
1. umf: *2S, 2B. Endurt frá * út
umf.
Prjónið alls 8 umf brugðninga.
Skiptið yfir í prjóna nr. 4,5.
Prjónið áfram 14 umf af
brugðningum.
Útaukningarumf: *2S, 1B,
auk:1Sz, 1B, 2S, 1B, auk:1Sz, 1B,
2S, 2B . Endurt frá * út umf =
112L.
Skiptið yfir í prjóna nr 5.
1. umf: *12S, 2B. Endurtakið frá
* út umf.
Dúskahúfan er fyrir
stelpur á öllum aldri enda
eru dúskar hámóðins í
dag. Mynd Hari
Herrahúfan er líka klæðileg á dömur eins
og sést hér. Ljósmynd/Hari
herrahúfa
Þessi húfa veitir
gott skjól því
húfan er höfð
tvöföld yfir eyrun
og uppábrotið er
nógu langt til að
setja niður fyrir
eyrun þegar að
hann blæs köldu
að norðan. Á
hlýrri dögum er
brotið haft ofar og
þá situr húfan vel
og setur flottan
svip á hvaða her-
ramann sem er.
HÖNNUÐUR
Guðrún Hannele
STÆRÐ
Ein stærð með ummál
53 cm, en prjón teygist
og því passar hún á
stærri kolla líka. Svo er
ekkert mál að minnka
húfuna með því að
fækka lykkjum.
Dýpt 21 cm þegar að
uppábrotið er tvöfalt.
GARN
Felted Tweed Aran
frá ROWAN (50%
merínóull, 25% alpak-
aull, 25% viskós), 50g
af hvorum lit. Hér er
ljósgrátt í kollinum og
dökkgrátt í uppábro-
tinu og mynstrinu.
PRJÓNAR
40 cm hringprjónar nr.
4,5 og 5. Sokkaprjónar
nr. 5.
PRJÓNFESTA
20 lykkjur og 23
umferðir í sléttprjóni
= 10 cm.
ORÐARLYKLAR
L = lykkja, lykkjur
umf = umferð
S = slétt
B = brugðið
Ss = slétta saman
endurt = endurtakið
HÚFAN
Fitjið upp með dekkri
litnum 96L með
prjónum nr 5. Tengið
saman í hring og
prjónið brugðninga 2S
og 2B út umf. Prjónið
brugðninga þar til
þeir mælast 7 cm frá
uppfiti. Skiptið þá yfir
á prjóna nr. 4,5 og
prjónið áfram 6 cm eða
það til brugðningarnir
mælast 13 cm.
Skiptið yfir í prjóna
nr. 5 og prjón slétt
hér eftir. Gott að setja
merki þar sem umf
byrjar.
Mynsturprjón:
*Prjónið nú 5 umf S
með ljósa litnum, þá 1
umf doppuröð þar sem
önnur hver L er ljós
og önnur hver dökk.
Endurt frá * þar til 6
doppuumf hafa verið
prjónaðar.
Úrtaka á kolli:
Úrtakan hefst þegar
um 9 cm mælast frá
brugðningum.
1. umf: 10S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 88L.
Prjónið 2 umf S.
2. umf: 9S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 80L.
Prjónið 1 umf S.
3. umf: 8S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 72L.
Prjónið 1 umf S.
4. umf: 7S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 64L.
Prjónið 1 umf S.
5. umf: 6S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 56L.
Prjónið 1 umf S.
6. umf: 5S, 2Ss. Endurt
alls 8 sinnum = 48L.