Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 75
K
rosssaumurinn er
skemmtilegur. Síðustu
dagana hef ég verið með í
höndunum tvær slíkar
myndir, aðra litla en hina svolítið
stærri. Minni myndin er af því
þegar karl og kona takast í hend-
ur og ég er langt komin með hana.
Þessi mynd verður römmuð inn og
svo sé ég fyrir mér að með
smekklegum hætti megi leggja
hringana á rétt eins og púðann
sem margir þekkja þegar fólk
gengur upp að altarinu,“ segir
Halla Jökulsdóttir á Blönduósi.
Alltaf skemmtilegt
„Stærri myndin er af baksvip
dulúðlegrar konu sem er hulin
klæði neðan axla. Sú mynd er
styttra á leið komin en lofar góðu
með að taka á sig þann svip sem
ég er að leita eftir. Það er líka
mottó hjá mér að sauma út í þau
tækifæris- og jólakort sem ég
nota.“
Handavinnukonan Halla segist
alltaf vera með eitthvað á prjón-
unum, þó ekki sé það í ýtrustu
merkingu orðanna. „Ég hef aldrei
komist upp á lag með að prjóna.
Útsaumur liggur betur fyrir fyrir
mér og eins að hekla. Mér hefur
til dæmis fundist mjög gaman að
hekla dúka og barnaföt, já og
dúkkuföt. Sem lítil stúlka var ég
oft að hekla dúkkuföt og svo rúll-
aði það áfram. Ég heklaði dúkku-
föt fyrir mínar dætur og núna fyr-
ir barnabörnin. Þetta er alltaf jafn
skemmtilegt,“ segir Halla sem
seinni árin hefur ekki verið á
vinnumarkaði en finnst þá gott að
hafa handavinnuna til að grípa í.
Í hálftíma
„Ég sest kannski niður við þetta
í hálftíma eða klukkutíma. Gríp
svo í eitthvað annað, fer kannski
út að ganga eða sinni tilfallandi
störfum hér á heimilinu og sest
svo aftur niður með handavinnuna
mína – sem veitir mér mikla
ánægju,“ segir Halla.
sbs@mbl.is
Saumur Halla Jökulsdóttir hefur sinnt handavinnu frá unglingsárum.
Dulúðug kona í krosssaumi
Ljósm/Hilnmar Bragi
Handaband Hamingja innsigluð og nú ætla skötuhjúin að gifta sig eins og krosssaumsmyndin snotra vísar til.
MORGUNBLAÐIÐ | 23
2. – 4. umf: Eins og 1. umf.
5. umf: *K3/3A, K3/3F, 2B. Endurt frá *
út umf.
6.-8. umf: Eins og 1. umf.
Þessar 8 umf eru endurt tvisvar í viðbót
og síðan 1. umf tvisvar samtals 26 umf.
Úrtökuumf: Setjið næstu 3L á kp og
setjið fyrir aftan, 1S, *prjónið næstu L
og fyrstu L af kp saman, endurt frá *, 1S
af kp, setjið næstu 3L á kp og setjið fyrir
framan, 1S, *takið fyrstu L af kp Ó, 1S,
steypið Ó yfir, endurt frá *, 1S af kp, 2B.
Endurt frá byrjun út umf = 80L.
Prjónið sléttar L sléttar og brugðnar L
brugðnar næstu 5 umf.
Næsta umf: *K2/2A, K2/2F, 2B. Endurt frá
* út umf.
Prjónið sléttar L sléttar og brugðnar L
brugðnar næstu 5 umf.
Úrtökuumf: *Setjið næstu 2L á kp og
setjið fyrir aftan, * prjónið næstu L og
fyrstu L af kp saman, endurtakið frá *,
setjið næstu 2L á kp og setjið fyrir fra-
man, * 1Ó af kp, 1S, steypið Ó yfir, endurt
frá*, 2B. Endurt frá byrjun út umf = 48L.
Næsta umf: Prjónið sléttar L sléttar og
brugðnar L brugðnar.
Úrtökuumf: *2Ss, 2Ssz, 2B. Endurt frá * út
umf = 32L.
Næsta umf: Prjónið sléttar L sléttar og
brugðnar L brugðnar.
Úrtökuumf: *2S, 2Bs. Endurt frá * út umf
= 24L.
Úrtökuumf: *2Ss, 1B. Endurt frá * út umf
= 16L.
Úrtökuumf: *2Ss. Endurt frá * út umf =
8L.
Slítið frá og þræðið bandið í gegnum L
sem ftir eru tvisvar. Gangið frá endum.
Skolið úr húfunni í ylvolgu vatni með ul-
larþvottalegi. Leggið flata til þerris. Búið
til dúsk um 10cm í þvermál og festið við
toppinn á húfunni.
Garn og áhöld fást í Storkinum.
Þýtt og útfært af Guðrúnu Hannele
hannele@storkurinn.is
Prjónið 1 umf S.
7. umf: 4S, 2Ss.
Endurt alls 8 sin-
num = 40L.
Prjónið 1 umf S.
8. umf: 3S, 2Ss.
Endurt alls 8 sin-
nu = 32L.
Prjónið 1 umferð S.
9. umf: 2S, 2Ss.
Endurt alls 8 sin-
num = 24L.
Prjónið 1 umf S.
10. umf: 1S, 2Ss.
Endurt alls 8 sin-
num = 16L.
11. umf: 2Ss. En-
durt alls 8 sinnum
= 8L.
Prjónið 1 L og
setjið hana aftur
yfir á vinstri prjón.
Steypið einni L í
einu yfir þessa
lykkju og dragið
endann loks í geg-
num hana. Herðið
að og gangið frá
endum.
Skolið úr húfunni í
ylvolgu vatni með
ullarþvottalegi
og leggið flata til
þerris.
Garn og áhöld fást
í Storkinum.