Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 80
76 jól Helgin 14.-16. desember 2012
LeirListasaga Bók um gLit fyrirhuguð
TALJÓL 2012
Verslanir | Kringlan | smáralind | glerártorg | www.tal.is
SVonA á SAmbAnd Að VerA
ÞAð er goTT Að ViTA Af ÞVí Að með
hVerJum SnJALLSímA Sem keypTur
er hJá TALi fyLgir 10 gb noTkun á
mánuði í heiLT ár.*
kíkTu í næSTu VerSLun TALS og
nýTTu Þér hugheiLT JÓLAVerð
GleðileGa
hátíð oG
farsælt
komandi tal
*m.v. kortalán Valitors. mánaðarleg afborgun greidd með kreditkorti + 320
kr./mán. greiðslugjald. Vaxtalaus kortalán Valitors bera lántökukostnað,
ávallt er ódýrara að staðgreiða símtækin.
10 gB á mánuði í heilt ár fylgir með gsm símum í áskrift eða frelsi hjá tali.
Birt með fyrirvara um verðbreytingar og prentvillur.
iPhone 4 8 Gb
4.690 kr. á mán.
Vaxtalaust í 18 mán.*
10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA,
120 gb á ári
STAðgreiðSLuVerð 74.900 kr.
iPhone 5 16 Gb
9.790 kr. á mán.
Vaxtalaust í 18 mán.*
10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA,
120 gb á ári
STAðgreiðSLuVerð 159.990 kr.
iPhone 4s 16 Gb
6.890 kr. á mán.
Vaxtalaust í 18 mán.*
10 gb á mánuði fyLgJA ÞeSSum SímA,
120 gb á ári
STAðgreiðSLuVerð 110.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
AL
6
23
17
1
2/
12
Allir þessir
munir eru í eigu
Hönnunarsafns
Íslands.
Hönnunarsafnið leitar
að munum úr leir frá Gliti
Flestir munirnir líklega á heimilum fólks.
Á rið 2003 var haldin sýning á leirmun-um frá Gliti í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands segir sýn-
inguna hafa veitt gott yfirlit yfir þá frábæru list-
sköpun sem kom frá Gliti. Sú sýning var haldin
til að heiðra minningu Ragnars Kjartanssonar,
leirlistamanns og myndhöggvara, sem var meðal
stofnenda Glits og er gjarnan kenndur við fyrir-
tækið. Það voru þrír athafnamenn sem stofnuðu
Glit; Ragnar, Einar Elíasson verslunarmaður og
Pétur Sæmundsen bankastjóri.
„Við erum í rauninni að tala um athafnamenn
sem komu hver úr sinni áttinni og allir með ólík-
an en nauðsynlegan styrkleika til að skapa þetta
fyrirtæki. Þeir áttu þann draum að hlúa að þess-
ari listsköpun og listiðnaði og stemma stigu gegn
innflutningi á ódýrum og lélegum varningi. Sér-
staða Glits á þessu árabili sem við ætlum að fjalla
um er íslenski leirinn – það er hráefnið sem þeir
vildu nota og var í þessum munum frá þessu tíma-
bili. Þar er heilmikil saga ósögð. Glit var fram
til 1967 starfrækt á Óðinsgötunni í Reykjavík og
þar var stemningin svolítið eins og í Unuhúsi hjá
Ragnari í Smára. Þetta var nokkurs konar félags-
miðstöð fyrir listafólk, uppeldisstöð líka fyrir
marga af okkar þekktustu listamönnum.“
Ragnar Kjartansson leiddi listhönnunina í
starfsemi Glits en margir þjóðþekktir íslenskir
listamenn störfuðu þarna í einhvern tíma, sumir
í upphafi ferils síns og nutu handleiðslu Ragnars.
Má þar nefna Hring Jóhannesson, Hauk Dór,
Ragnhildi Jónsdóttir, Steinunni Marteinsdóttir,
Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Magnús Pálsson
auk Dieter Roth sem var mikill vinur Ragnars og
þeir unnu þarna saman um árabil. „Núna erum
við að kalla eftir fleiri munum og vita hvort að
góðir gripir leynast á heimilum sem merktir eru
Gliti. Þetta getur verið mjög fjölbreytt: Skreyttir
blómavasar, skálar, diskar, skreyttir veggplattar
eða kaffi- og testell.“ Harpa segir tilganginn með
sýningu Hönnunarsafnsins vera að vekja athygli
á því hversu fínir munir þetta eru og segja frá
metnaði manna sem komu úr ólíkum áttum til
að byggja upp mikilvægt fyrirtæki. „Í dag má
kannski heimfæra sögu Glits á þá fjölmörgu ís-
lensku hönnuði sem leita leiða til að fá fjármagn
og trú á verkefni sín. Það þarf sérhæfingu á
hverju sviði til að hlutirnir gangi upp.“
Glit útundan í íslenskri listasögu
Harpa segir að fá ef nokkur söfn á landinu eigi
þessa muni, nema Hönnunarsafnið sem eigi
örfáa. „Ég hef það á tilfinningunni að þessir
munir séu líklega flestir á heimilum fólks. Við
ætlum að athuga hvort það leynist eitthvað meira
hjá fólki en árið 2003 þegar síðast var auglýst
eftir munum frá Gliti en þá skráningu höfum
við undir höndum og vinnum einnig með
fyrir sýninguna okkar. Í framhaldi þess-
arar sýningar er stefnt að því að gefa
út bók um Glit og segja frá þessari
sögu. Þetta er auðvitað verkefni sem
Hönnunarsafnið vinnur að og vill vekja
athygli á, en þetta er bara byrjunin. Íslensk
leirlistasaga er meiri en bara Glit, en núna erum
við stödd þar.“
Fólk er hvatt til að hafa samband við safnið sem
fyrst, í síma 512 1525 á opnunartíma eða á net-
fangið honnunarsafn@honnunarsafn.is
Bjarni Pétur Jónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Á sýningunni er ætlunin að fjalla um sögu Glits
frá stofnun þess árið 1958 og fram á miðjan 8.
áratuginn. Öllum sem telja sig eiga muni frá
þessu tímabili er bent á að hafa samband við
Hönnunarsafnið.
Hönnunarsafnið leitar að munum á
borð við þennan.
Vasi frá Gliti.