Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 86
82 heilsa Helgin 14.-16. desember 2012
Heilsa Cafesigrun.Com Hjálpar til við að auka Hollustu
Lágmúla - Laugavegi - Smáralind - Smáratorgi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Sauðárkróki
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
19
54
1
1/
12
Jólin eru tími til að gefa.
Í Lyfju finnur þú úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra
sem þér þykir vænt um. Við erum aldrei langt undan.
Mundu eftir jólahandbók Lyfju.
Kannski er jólagjöfin í Lyfju
GEYMDU BLAÐIÐ!
Einn af jólaglaðningum Heilsuhússins
– Skemmtileg nýjung í
jóla- og áramótaveislur
Laugavegi • Kringlunni • Smáratorgi • Lágmúla • Akureyri • Selfossi
Fæst með rúsínum og sultuðum appelsínum,
með súkkulaði og hrein - Pandoro.
Athugið að biscotti
þarf að baka tvisvar.
240 g spelti, fínmalað
2 tsk vínsteinslyftiduft
110 g hrásykur (fínmal-
aður ef þið finnið svoleiðis)
1 egg
75 g möndlur, saxaðar
gróft
1 tsk möndludropar (úr
heilsubúð)
2 msk kalt vatn
Aðferð
Saxið möndlurnar gróft.
Sigtið saman spelti og
lyftidufti í stóra skál.
Í aðra skál skuluð þið
blanda saman eggi,
möndludropum og
hrásykri. Hrærið vel.
Bætið vatninu út í svo að
sykurinn leysist vel upp.
Bætið eggjablöndunni
saman við speltið og
hrærið þangað til allt
blandast vel saman. Hér
gæti þurft að bæta við
svolitlu af köldu vatni
(matskeið í einu) til að
blandan verði nægilega
blaut. Hún má samt ekki
vera klístruð heldur þarf
að vera þannig að hægt
sé að hnoða deigið án
þess að það klessist við
allt. Mér finnst gott að
miða við að deigið sé eins
og leir.
Bætið söxuðu möndl-
unum saman við og
hnoðið deigið vel. Einnig
má nota deigkrók og
hrærivél.
Setjið bökunarpappír
á bökunarplötu og fletjið
deigið út þannig að þið
fáið u.þ.b. 12 sm breiðan
og 22 sm langan hleif sem
er um 1-1.5 sm á hæð.
Bakið hleifinn við 160°C
í um 30-40 mínútur eða
þangað til hleifurinn er
orðið nógu harður til að
hægt sé að skera hann.
Takið hleifinn úr ofn-
inum, kælið í 5 mínútur
og skerið hleifinn á ská
í þunnar sneiðar (1 sm)
með flugbeittum brauð-
hníf. Skerið varlega til að
möndlurnar brotni ekki úr
deiginu.
Dreifið sneiðunum á
bökunarpappírinn, setjið
aftur inn í ofn og bakið í
10-15 mínútur.
Snúið sneiðunum við
og slökkvið á ofninum og
leyfið þeim að kólna inni í
ofninum (ef þið eruð ekki
með blástursofn er gott
að opna ofninn).
Gætið þess að biscottiið
brenni ekki á þessum
tímapunkti og takið það
út ef sneiðarnar eru
orðnar mjög dökkar.
Athugið að sneiðarnar
eru mjúkar á þessum
tímapunkti en munu
harðna við að kólna. Ef
þær harðna ekki má baka
þær í nokkrar mínútur til
viðbótar.
Geymið í lokuðu íláti.
Gott að hafa í huga
Það er líka hægt að setja
2 msk kakó út í deigið til
að fá „súkkulaði biscotti”.
Einnig má setja saxað
súkkulaði (dökkt, lífrænt
framleitt með hrásykri),
þurrkuð kirsuber o.fl.
Notið hamingjuegg ef þið
mögulega getið.
Hollari útgáfa af
uppáhaldssmákökunum
Sigrún Þorsteinsdóttir heldur úti hollustuvefnum Cafesigrun.com þar sem hægt er að nálgast
hollar uppskriftir fyrir jólabaksturinn. Hún gefur jafnframt ráð um hvernig skipta megi út óhollu
hráefni fyrir hollara.
C afesigrun.com er íslenskur vefur með heilsusamlegum mataruppskriftum þar sem
hægt er að finna hollari útgáfu af
jólabakstrinum. Sigrún Þorsteins-
dóttir heldur vefnum úti og birtir
þar meðal annars nytsamar upp-
lýsingar fyrir þá sem vilja gera
hefðbundnar uppskriftir hollari.
„Ég nota aldrei rjóma, smjör,
hvítan sykur, ger eða hvítt hveiti í
bakstur. Ég nota oft lífrænt fram-
leidd ávaxtamauk (barnamat) í
staðinn fyrir smjör og nota svo
kókosolíu á móti. Í staðinn fyrir
hvítan sykur í bakstri nota ég
rapadura hrásykur eða sætuefni
eins og agavesíróp, byggmaltsíróp,
hlynsíróp, döðlur, barnamat og
þess háttar,“ segir Sigrún. „Eins
og áður sagði nota ég kókosolíu
sem fitugjafa en einnig nota ég
mikið hnetur sem fitugjafa þar
sem þar á við (eins og til dæmis í
kökubotna) í staðinn fyrir smjör.
Hnetusmjör, möndlusmjör, cas-
hewhnetumauk og sesamsmjör
(tahini) eru allt frábærir og hollir
fitugjafar. Ég reyni að miða við að
nota aldrei meira en 3 matskeiðar
af hreinni olíu í neinni kökuupp-
skrift nema í smákökuuppskriftun-
um en þar er nánast ómögulegt að
nota minni fitu nema maður vilji að
smákökurnar endi sem smáköku-
brauð, því þær verða svo linar og
ómögulegar, eins og brauð,“ segir
hún.
Hún minnir þó á að kökur sem
eru ekki með mikilli fitu geymast
skemur. „Einnig má geta þess að
ísarnir sem ég geri innihalda ekki
rjóma, eggjarauður, hvítan sykur
(eða flórsykur) eða neitt slíkt.
Margir ísarnir eru meira að segja
mjólkurlausir,“ bendir hún á.
„Það er ekki oft sem segja má
um kökur að þær séu sprengfullar
af vítamínum, flóknum kolvetn-
um, trefjum, andoxunarefnum,
próteinum og hollri fitu en þannig
kökur má einmitt finna hér. Sumar
kökurnar eru svo hollar að þær
mætti borða dag hvern í morgun-
mat! Ráðlagður dagsskammtur:
Ein kökusneið!“
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Biscotti með möndlum
Þetta er nokkuð holl útgáfa af ítalska biscotti kexinu. Eina fitan í þessari uppskrift
kemur úr möndlunum en það er holl fita svo samviskubitið er óþarft. Það er líka
mikið af kalki í þessu kexi þar sem möndlur eru mjög kalkríkar. Þessu kexi er upp-
lagt að dýfa í kaffi eða te eða jafnvel bara mjólk. Athugið að best er að nota eins
fínmalaðan hrásykur og þið komist í. Yfirleitt notar Sigrún rapadura hrásykur í allan
sinn bakstur en fyrir biscotti finnst henni betra að nota venjulegan hrásykur, helst
fínmalaðan. Eins hentar betur að nota fínmalað spelti heldur en grófmalað.
Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa þeim sem
þér þykir vænt um ertu sannarlega að gefa gjöf sem gefur.
Andvirði gjafabréfssins rennur til heimilis munaðarlausra
barna í Tógó í Afríku sem er eitt fátækasta ríki heims.
Gefðu gjöf sem gefur
Gjafabréfin eru að verðmæti 1.500 kr. og 3000 kr. Farðu á www.solitogo.org og
fáðu nánari upplýsingar. Þú getur líka sent póst á solitogo@solitogo.org
eða hringt í síma 659 7515 og við sendum þér gjafabréf.
Florentine í Aneho.
Nóvember 2012
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012