Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 102
98 skák Helgin 19.-21. október 2012
Skákakademían
Skákkrakkarnir söfnuðu meira en milljón fyrir Hringinn
k rakkarnir í Skákademí-unni fóru á kostum í maraþoni í Kringlunni
um síðustu helgi og söfnuðu
meira en milljón króna í þágu
Barnaspítala Hringsins. Um
140 þúsund fóru til kaupa á
2 fartölvum fyrir skólann í
Hringnum og til tveggja Play
Station 3 leikjatölva fyrir leik-
stofuna. Sena og Heimilistæki
gáfu mjög rausnarlegan afslátt,
og enn þá fleiri fyrirtæki, ein-
staklingar og sveitarfélög lögðu
fé af mörkum í söfnunina, og fer
þannig rétt tæp milljón króna í
Barnaspítalasjóð Hringsins. Yfirskrift maraþonsins
var ,,Við erum ein fjölskylda“ sem eru einkunnarorð
skákhreyfingarinnar, og sérlega gaman hve vel skák-
krakkarnir fylgja þessum fögru orðum eftir í fram-
kvæmd.
Carlsen einfaldlega langbestur
Það fór eins og við spáðum: Magnus Carlsen skrifaði
nýjan kafla í skáksöguna með ótrúlega glæsilegum
sigri á stórmótinu í London, þar sem hann fékk 6,5
vinning af 8 mögulegum. Hann sigraði í 5 skákum,
gerði 3 jafntefli og tapaði ekki skák. Gamli rússneski
björninn, Vladimar Kramnik, veitt Carlsen talsverða
keppni og fékk 6 vinninga, en næstir komu Nakamura
frá Bandaríkjunum og Adams, sem var hetja heima-
manna, með 5 vinninga. Heimsmeistarinn Anand var
aðeins með 50% vinningshlutfall og virtist skorta bæði
kraft og sigurvilja. Sá mikli Aronian varð að gera sér
6. sætið að góðu, og þar með náði Kramnik af honum
2. sæti á heimslistanum. Neðstu sætin vermdu skák-
drottningin Judit Polgar og ensku Íslandsvinirnir
McShane og Jones.
Árangur Carlsens er sögulegur, því nú flýgur hann
í fyrsta skipti yfir gamalt stigamet Kasparovs. Með
árangrinum í London er Carlsen kominn með 2861
stig, rúmlega 50 meira en Kramnik og 60 stigum fyrir
ofan Aronian. Það er bara ekki
nokkur leið að deila um málið:
Magnus Carlsen er langbesti
skákmaður heims um þessar
mundir, og fátt virðist geta
komið í veg fyrir að hann verði
einn af risum skáksögunnar.
Eitt skemmtilegasta mót
ársins
Skákáhugamenn ættu að líta
við í Landsbankanum, Austur-
stræti á sunnudaginn. Þá fer
fram hið árlega Friðriksmót
Landsbankans, sem kennt er
við goðsögnina Friðrik Ólafs-
son, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Langflestir af
bestu og efnilegustu skákmönnum eru skráðir til
leiks, svo það er hægt að lofa áhorfendum líf og fjöri.
Mótið hefst klukkan 13 og eru tefldar hraðskákir.
Þetta mót hefur fyrir löngu unnið sér sess sem eitt
skemmtilegasta skákmót ársins.
Skákgleði í Nuuk
Hróksmennirnir Henrik Danielsen og Hrafn Jökuls-
son voru í heimsókn í Nuuk, höfuðstað Grænlands, í
liðinni viku að útbreiða fagnaðarerindi skákarinnar.
Tíu ár eru nú liðin síðan ,,skáklandnámið“ hófst og
hafa þúsundir barna og fullorðinna kynnst skákinni,
auk þess sem mikill fjöldi Íslendinga hefur tekið
þátt í starfinu. Að þessu sinni heimsóttu Henrik og
Hrafn nokkra grunnskóla, skákklúbb staðarins, og
fjölsmiðju fyrir unglinga, auk þess að eiga fund með
borgarstjóranum, Asi Chemnitz Narup, sem er mjög
áhugasöm um frekara skákstarf meðal barna og
ungmenna. Á næsta ári er ráðgerð mikil skákhátíð í
Nuuk, sem verður kjörinn vettvangur fyrir íslenska
áhugamenn að kynnast töfraheimi Grænlands. Það
voru Mannvit og Flugfélag Íslands sem voru bakhjarl-
ar þessar velheppnuðu ferðar, auk þess sem margir
lögðu af mörkum verðlaun og vinninga, m.a. Henson,
Sögur útgáfa, Forlagið og Nói Síríus.
SkákþrautiN
Hér er skemmti-
leg flétta sem
hvítur, Kolt-
anowsky, hristi
fram úr erminni.
1.Hg3! Dxc2
3.Dh6! Rag8
4.Dxh7+! Og
mátið blásir við.
Góða (skák)
helgi!
Lausn á þrautum síðustu viku
Vinningshafi síðustu
viku er Eva Kristjáns-
dóttir, Lækjarsmára 5,
201 Kópavogi, og fær
hún sendar KenKen
talnaþrautabækurnar
frá Hólum.
Ef þrautin er 3 x 3 reitir eru notaðar tölurnar 1 til
3, ef hún er 4 x 4 reitir eru notaðar tölurnar 1 til 4
o.s.frv.
Sama tala má einungis koma fyrir einu sinni í
hverjum dálki og hverri línu.
Svæðin, sem eru afmörkuð með þykkum línum,
kallast hólf.
Stundum nær hólfið bara yfir einn reit og þá er
augljóst hvaða tala á að koma þar.
Oftast nær hólfið þó yfir fleiri en einn reit og þá
fylgir þeim tala og eitthvert
stærðfræðitákn, þ.e. +, –,
x eða ÷. Ef talan er t.d. 5 +
þá á summa talnanna í því
hólfi að vera samtals 5. Ef
talan er 2- þá á mismunur
talnanna að vera 2. Í erfiðari
þrautunum er svo einnig
margföldun og deiling.
Svör við talnaþrautunum
má senda í hefðbundnum
pósti á ritstjórn Fréttatím-
ans, Sætúni 8, 105 reykja-
vík. Lesendur geta líka tekið
mynd af lausnunum með
símanum eða myndavél og
sent á netfangið
leikur@frettatiminn.is
Reglurnar eru einfaldar:
verðlaunaþrautir
talnaþrautir KenKen-talnaþrautirnar eru frábær heilaleikfimi. Fréttatím-
inn mun birta tvær gátur í hverju tölublaði næstu vikurnar. Lesendur geta sent inn svör
við gátunum og í hverri viku verður dreginn út heppinn þátttakandi sem fær KenKen-
bækurnar sendar heim að dyrum frá Bókaútgáfunni Hólum.
Nafn
Heimili
Sími Netfang
Gleði á Grænlandi.
Elín Nhung, ein af hetjunum úr maraþoni
Skákademíunnar, sem söfnuðu fyrir Barna-
spítala Hringsins.
ÞÚ GETUR GERT KRAFTAVERK Í DAG
Með hreinu vatni gefur þú betri heilsu, menntun og bjarta framtíð.
Þú getur hjálpað núna með því að
greiða valgreiðslu í heimabanka
Einnig:
■ frjálst framlag á framlag.is
■ gjafabréf á gjofsemgefur.is
■ 907 2003 styrktarnúmer (2.500 kr.)
■ söfnunarreikningur:
0334-26-50886, kt. 450670-0499
GEFÐU GJÖF SEM
SKIPTIR MÁLI
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
12
32
39