Fréttatíminn - 14.12.2012, Qupperneq 114
Sendu SMS EST IS4 á
númerið 1900 og þú
gætir unnið!
Fullt af aukavinningum:
DVD – Tölvuleikir – GOS ofl.
Með því að taka þátt ertu kominn í
SMS klúbb. 199 kr./SMS-ið
VILTU VINNA
ÍSÖLD 4?
KOMIN Á DVD OG BLU-RAY
9. HVERVINNUR!
Afró fjórðA plAtA SAmúel jón SAmúelSSon Big BAnd
Ýmis etnísk áhrif
Þ etta er órökrétt framhald á því sem bandið hefur verið að gera,“ segir Samúel Jón Samúelsson tónlistarmaður.Fjórða plata Samúel Jón Samúelsson Big Band kemur út í
næstu viku og verður henni fagnað með heljarinnar útgáfutónleikum
í Gamla bíói á fimmtudagskvöld. Nýja platan er í raun hljómplötu
tvenna, hún kallast 4 hliðar og mun koma út á tveimur geisladiskum
annars vegar og tveimur vínylplötum hins vegar. „Það eru fjögur
„album cover“ á henni enda eru þetta eiginlega tvær plötur. Þetta eru
margar hliðar á minni músík og þessu bandi,“ segir Samúel.
Samúel segir að tónlist Big Bandsins sé í grunninn afrótónlist.
„Ég hef svo mikið verið að hlusta á eþíópíska og brasilíska tónlist svo
eitthvað sé nefnt og það skilar sér þarna inn. Þarna eru ýmis etnísk
áhrif.“
4 hliðar var tekin upp yfir eina helgi í Hljóðrita í Hafnarfirði í apríl.
Upptökurnar fóru fram upp á gamla mátann, öllum tónlistarmönnun
um var hrúgað inn í hljóðverið og svo talið í. „Þetta var í raun tekið
upp „læv“, eiginlega ekkert klippt eða átt við upptökurnar. Það var
að vísu bætt aðeins við auka slagverki. Það er mjög skemmtilegt að
gera þetta svona, enda er þarna „performans“ í gangi,“ segir Samúel
sem er höfundur allra laganna tólf á plötunni. „Þetta er allt eftir
mig en svo leggja hljóðfæraleikararnir auðvitað sitt til. Platan væri
einsleitari ef ég hefði spilað þetta allt inn. Hún lifnar við með þessu
frábæra fólki. Þriðja og fjórða víddin bætist við.“
Samúel gefur 4 hliðar út sjálfur og bíður nú spenntur eftir að upp
lagið berist til landsins. Fyrst um sinn verða bara geisladiskarnir til
sölu en vínyllinn kemur til landsins eftir áramót. „Það er svolítið hug
sjónastarf að gefa út á vínyl, enn sem komið er alla vega. En maður
vill fá „vínylgrúvið“. Þá er eins og búið sé að höggva þetta í stein –
tónlistin verður hluti af arfleifðinni.“
Útgáfutónleikar Samúel Jón Samúelsson Big Band verða í Gamla
bíói næsta fimmtudagskvöld. Miðaverð er 2.900 krónur og hægt er
að kaupa þá á Miða.is. Samúel segir að ekki sé auðvelt að ná saman
átján manna bandi og því verði þetta einu tónleikar sveitarinnar
fyrir jólin. „Fólk ætti ekki að missa af þessu. Við spilum ekki oft og
þetta eru stórtónleikarnir okkar. Þetta verður alvöru konsert,“ segir
Samúel.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Básúnuleikarinn Samúel Jón
Samúelsson hefur um árabil
haldið úti Samúel Jón Samú-
elsson Big Band, átján manna
stórsveit sem leikur afrótónlist
með bigbandáhrifum. Fjórða
plata Big Bandsins kemur út
í næstu viku og verður henni
fagnað með stórtónleikum á
fimmtudagskvöld.
Samúel Jón Samúelsson ásamt Big Bandinu, átján manna stórsveit sem er að senda frá sér fjórðu breiðskífuna.
Ljósmynd/Guðmundur Kristinn Jónsson
Tónverkið Flétta eftir Hauk Tómas
son er komið út á diski og mynd
diski. Verkið var frumflutt í Hall
grímskirkju á Listahátíð 2011 og
hlaut afar lofsamlega dóma. Flytj
endur eru Schola cantorum, Mót
ettukór Hallgrímskirkju og Kamm
ersveit Reykjavíkur, og stjórn andi er
Hörður Áskelsson.
Flétta var samin fyrir tvo kóra
Hallgrímskirkju, Mótettukórinn og
Schola cantorum og sextán manna
kammersveit. Textinn er samsettur
úr ljóðum og ljóðabrotum nokkurra
íslenskra skálda, lífs og liðinna.
Flétta fjallar um ægifegurð nátt
úrunnar, tengsl okkar við hana og
ábyrgð okkar á henni. Sex örstutt
náttúruljóð eftir Sjón mynda ein
hvers konar rauðan þráð gegnum
verkið, sungin af Schola cantorum
og skiptast á við stærri kórkafla
sungnum af Mótettukórnum.
Ljóðskáldin sem hér koma við
sögu eru auk Sjón, Hannes Péturs
son, Pétur Gunnarsson, Snorri
Hjartarson, Þorsteinn frá Hamri og
Stefán Hörður Grímsson. Upptakan
var gerð á tónleikum Listahátíðar 4.
júní 2011.
tónliSt UpptAkA frá liStAhátíð 2011
Flétta Hauks komin út
Tónverkið Flétta er komið út á diski
og mynddiski.
110 tónlist Helgin 14.-16. desember 2012