Fréttatíminn - 14.12.2012, Síða 118
Þetta er
verk sem
mig lang-
aði svo
óendanlega
mikið að
gefa út.
Guðmundur Örn Guðjónsson
náði fljótt undraverðum árangri í
bogfiminni og dritar örvunum af
kappi í gula hringinn. Ljósmynd/Hari
Bogfimi Íþrótt Í stórsókn
Íslenskur Hrói
höttur í Kópavogi
Bogfimi er íþrótt sem ekki hefur farið mikið fyrir á Íslandi og hefur lengst af einungis verið
stunduð hjá Íþróttafélagi fatlaðra. Í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu. Félagarnir Guð-
mundur Örn Guðjónsson og Guðjón Einarsson fengu delluna fyrir skömmu og brugðust hratt
við skorti á aðstöðu til æfinga og hafa opnað Bogfimisetrið í stóru verslunarhúsnæði í Kópa-
vogi þar sem þeir anna vart eftirspurninni.
H ugmyndin um að byrja að æfa bogfimi hafði blundað með Guðmundi Erni Guðjónssyni lengi án þess að hann gerði neitt í málinu. Hann lét síðan til skarar skríða eftir að hann
komst að því að sportið væri stundað innan vébanda Íþróttafélags
fatlaðra. Hann færði fljótt út kvíarnar og stofnaði Bogfimifélagið
Bogann og opnaði Bogfimisetrið í Furugrund í Kópavogi þar sem
verslunin Grundarkjör var
rekin fyrir margt löngu.
„Ég er búinn að vera í þessu
í átta mánuði núna,“ segir
Guðmundur sem náði strax
ótrúlegri fimi með bogann og
hefur verið sigursæll á mótum.
„Ég komst að því á Google
að Íþróttafélag fatlaðra væri í
þessu og eyddi svo einu ári í
að reyna að komast þar inn,“
segir Guðmundur. „Ég byrjaði
þar fyrir átta mánuðum. Mán-
uði eftir að ég var búinn með
byrjendanámskeiðið var innan-
félagsmót hjá félaginu og þar
tók ég alla og rústaði þá.“
Eftir þennan góða árangur
fór Guðmundur að huga að því
að bæta aðstöðuna fyrir æfing-
ar. Hingað til hafa færri komist
að en vilja og hann bendir á að
hjá Íþróttafélagi fatlaðra taki
eina viku að bóka æfingar út
árið. Það var því úr að félag-
arnir opnuðu Bogfimisetrið.
„Við stofnuðum félagið, fengum
leyfi hjá lögreglustjóra og
settum upp salinn og allt dótið
á innan við þremur mánuðum.“
Guðmundur og Guðjón hafa
haft nóg að gera síðan og fé-
lögum fjölgar jafnt og þétt. „Við
erum ekkert búnir að auglýsa
okkur eða láta vita af okkur af
viti en samt eru öll námskeið
búin að vera full hjá okkur.“
Bogfimisetur þeirra vina er
það fyrsta sinnar tegundar.
„Það geta allir komið og fengið
að prófa og salurinn er rekinn
með svipuðu formi og keiluhöll-
in nema bara fyrir bogfimi.“
Guðmundur segir eina
ástæðuna fyrir því að hann sagði skilið við Íþróttafélag fatlaðra vera
þá reglu félagsins að fólk verði að vera meðlimir í eitt ár áður en það
fær að kaupa sér sinn eigin boga. „Þetta er furðuleg regla sem hefur
ekkert með landslög að gera. Ég sá fram á að vera besti maðurinn
í félaginu en mætti ekki kaupa mér boga fyrr en eftir ellefu mán-
uði,“ segir náttúrutalentinn sem á nú sinn eigin boga og leiðbeinir
nýliðum um hvernig eigi að bera sig að til þess að skjóta í mark eins
og Hrói höttur.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
textar megasar safngripur að seljast upp
Fórnar ekki gæðum á altari græðginnar
Hið hnausþykka textasafn meistara Meg-
asar er uppselt hjá útgefanda og ekki
stendur til að prenta meira af bókinni
sem hefur slegið svo hressilega í gegn
að meira að segja forleggjarinn, sjálfur
Jóhann Páll Valdimarsson sem er með
naskari mönnum í útgáfubransanum, veit
varla hvaðan á hann stendur veðrið.
„Við létum prenta þessa þykku og
miklu bók í 2000 eintökum og það er
ljóst að við hefðum getað selt að minnsta
kosti helmingi meira,“ segir Jóhann Páll
sem ætlar þó ekki að láta prenta annað
upplag. „Það er alveg ljóst að við getum
ekki fengið fleiri bækur í sömu gæðum
með svona stuttum fyrirvara. Við viljum
ekki fórna þessum gæðum með því að
láta eftir græðginni og endurprenta.
Annað upplagið yrði ekki sami gæðagrip-
urinn og þessi fyrstu 2000 eintök.“
Textasafn Megasar er Jóhanni Páli sér-
lega hjartfólgið og hann lét tveggja ára
draum rætast með útgáfunni í haust.
„Þetta er verk sem mig langaði svo
óendanlega mikið að gefa út en ég sá
þetta nú ekki fyrir. Bókin hefur ekki
einu sinni verið auglýst þannig að þetta
er alveg magnað.“
Jóhann Páll segir ljóst að þessar 2000
prentuðu bækur verði með tímanum
eftirsóttir safngripir og að í raun sé ekki
hægt að hugsa sér öruggari fjárfestingu
en að hlaupa til og kaupa sem mest af
þeim eintökum sem enn eru til í bóka-
búðum.
„Mér er sagt að þá sjaldan sem
textasafn Megasar sem AB gaf út fyrir
einhverjum tugum ára seljist á 16.000-
18.000 krónur þá sjaldan að það rati í
fornbókabúðir. Sú bók er náttúrlega kett-
lingur að stærð miðað við þessa þannig
að hvers konar safngripur heldurðu
að þessi bók eigi eftir að verða? “ Spyr
útgefandinn reyndi sem hefur enn eina
ferðina veðjað á réttan hest. -þþ
Jóhann Páll lét
draum rætast
með útgáfunni
en sá vinsæld-
irnar ekki fyrir.
Annir í prentsmiðjum
Bókaútgefendur bera sig vel nú
þegar jólabókaflóðið fer að ná hámarki.
Forlagið, útgefandi spennusagnahöf-
undarins Arnaldar Indriðasonar, lét
prenta stórt upplag af nýjustu bók hans
þegar hún kom út 1. nóvember. Salan
á bókinni, Reykjavíkurnætur, hefur
farið hraðar af stað en á síðustu bókum
Arnaldar og lét Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Forlagsins, prenta
viðbótarupplag til að vera við öllu
búinn. Alls hafa nú tæplega þrjátíu þús-
und eintök verið prentuð af bókinni.
Einn af sigurvegurum jólabókaflóðs-
ins er Ingibjörg Reynisdóttir með bók
sína um Gísla á Uppsölum. Átta þúsund
eintökum hefur þegar verið dreift af
henni og útgefandinn, Sögur, hefur
látið prenta átta þúsund til viðbótar.
Alls sextán þúsund eintök af þessari
athyglisverðu bók.
Stefán Máni nýtur talsvert meiri vin-
sælda en verið hefur. Síðasta skáldsaga
hans, Feigð, seldist í um fimm þúsund
eintökum samkvæmt upplýsingum frá
útgefanda. Sú nýja, Húsið, hefur selst
betur og alls hafa nú níu þúsund eintök
verið prentuð af henni með nýlegri end-
urprentun. Ósjálfrátt, bók Auðar Jóns-
dóttur, var sömuleiðis endurprentuð á
dögunum og hafa því um átta þúsund
eintök verið prentuð af henni.
Sprelligosinn Gunnar Helgason
á lang vinsælustu barnabókina
í ár, Aukaspyrnu á Akureyri. Í
fyrra seldi Gunni fjögur þúsund
eintök af Víti í
Vestmannaeyjum en
nú hafa verið prentuð
átta þúsund af
Aukaspyrnunni.
Geri aðrir betur.
-hdm
Stefán Máni
Sigþórsson.
Ingibjörg
Reynisdóttir.
Auður Jónsdóttir.
Arnaldur Indriðason.
Opið hús á skrifst
ofu AFS
mmtudaginn 20
. desember
milli kl. 17 og 19.
114 dægurmál Helgin 14.-16. desember 2012