Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 2

Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 2
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Hægt að dæma Íslendinga fyrir brot framin erlendis Haraldur Briem sóttvarnalæknir.  Heilbrigðismál Tveir íslenskir friðargæsluliðar með krabbamein Yfirvöld kanna mál Bosníulækna Utanríkisráðuneytið hefur, í sam- vinnu við heilbrigðisyfirvöld, hafið skoðun á máli tveggja íslenskra lækna sem voru við friðargæslustörf í Bosníu og hafa greinst með alvarlega tegund krabbameins. Mikið magn af geislavirkum málmi, rýrðu úrani, var notað í sprengjuodda sem NATO not- aði í Bosníustríðinu. Sprengjurykið dreifist í andrúmslofti, sest í jarðveg- inn og er talið krabbameinsvaldandi. Í byrjun árs 2001 var mikil umræða í fjölmiðlum í Evrópu og Bandaríkj- unum um óeðlilegan fjölda krabba- meinstilfella hjá hermönnum sem höfðu verið við störf í Bosníu. Sextán friðargæsluliðar frá sex mismun- andi löndum höfðu látist af hvítblæði og fjöldi til viðbótar greindist með krabbamein sem síðar var nefnt Balk- an-heilkennið. Í kjölfarið fóru af stað rannsóknir á tengslum milli notk- unar úranvopna og heilsu hermanna í stríðinu á vegum NATO og Um- hverfisverndaráætlunar Sameinuðu þjóðanna. Að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa utanríkisráðu- neytisins, störfuðu um 40 íslenskir friðargæsluliðar í Bosníu á árunum 1994-2003. Verið er að taka saman upplýsingar um þá alla. „Við höfum rætt við erlenda samstarfsaðila og innlenda aðila og ekkert bendir til þess að friðargæsluliðar hafi orðið fyrir heilbrigðisvá á meðan á störfum þeirra stóð,“ segir Urður. Haraldur Briem sóttvarnalæknir staðfestir að málið sé í skoðun hjá Landlæknisembættinu. „Líklegast er að við byrjum á því að safna saman upplýsingum um heilsufar þessa fólks og metum í framhaldinu hvort ástæða þykir að bregðast við með einhverjum hætti,“ segir Haraldur. f aðir Rakelar Birtu Guðnadóttur framdi sjálfsvíg sumarið 2009 þegar hún var tólf ára. „Ég hafði aldrei heyrt um neinn sem færi á þennan veg. Það var gott að tala við prestinn sem hjálpaði mér mest í gegnum þetta. Hún sagði mér að þetta væri miklu algengara en fólk héldi,“ segir Birta. „Ég hefði viljað vita af einhverri stelpu sem hefði gengið í gegnum það sama,“ segir hún. Engar upplýsingar eru til um fjölda barna sem missa foreldri vegna sjálfs- víga á Íslandi ár hvert. Frá aldamótum til ársins 2009 frömdu 126 manns á aldrinum 30-50 ára sjálfsvíg og voru þrefalt fleiri karlar en konur þeirra á meðal, 91 karl og 35 konur. Samkvæmt bráðabirgðatöl- um frá Landlæknisembættinu frömdu 40 manns sjálfsvíg á árinu 2010 en ekki eru enn komnar tölur fyrir árið 2011. „Það lamaðist allt þetta sumar,“ segir Rebekka Sigurðar Símonardóttir, móðir Rakelar Birtu. Hún og Guðni voru skilin en Rakel Birta var í góðu sambandi við föður sinn. Rebekka varð ofboðslega hrædd um dóttur sína eftir áfallið og ótt- aðist viðbrögð hennar. „Ég var hrædd um hvernig hún myndi bregðast við þessu áfalli og var alltaf að tékka á henni – hvort hún væri ekki örugglega bara sofandi á nóttunni. Ég var lengi á eftir hrædd við „Það er mikilvægt að Íslendingar geri sér grein fyrir því að víða um heim og á ferðamannastöðum er gert út á kynferðislega misnotkun gegn börnum,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastýra Barnaheilla, en nýverið voru lögfestar breytingar á almennum hegningarlögum þannig að nú er hægt að sakfella einstaklinga sem brjóta af sér erlendis. Samkvæmt Margréti Júlíu er barnavændi í þróunarlöndunum svokölluðu haldið gangandi af vestrænum ferðamönnum, þar á meðal Íslendingum. „Þessi börn bjóða sig ferðamönnunum en þau eiga engra annara kosta völ þar sem þau eru föst í aðstæðum sem þau ekki ráða við,“ segir Margrét og bendir á að mikil- vægt sé að íslenskar ferðaskrifstofur setji sér siðareglur: „Við hjá Barnaheillum viljum gjarnan aðstoða við slíkt.“ Talið er að um tvær milljónir barna leiðist út í vændi á ferðamannastöðum ár hvert. Börn og sorg eftir sjálfsvíg Börn eru mjög viðkvæm og þegar sorg fyllir heimilið getur þeim fundist erfitt að vera heima. Þau skilja illa hvað er að gerast og þora jafnvel ekki að spyrja. Sundum halda þau að þau séu ástæða fyrir að pabbi/ mamma eða systkini vildi ekki lifa. Þau verða óörugg, einmana og ráðvillt. Mikil- vægt er að setjast niður með börnum og hjálpa þeim að skilja að sá sem tók líf sitt átti við erfiðleika að stríða og það sé engum að kenna að hann/ hún treysti sér ekki til að lifa lengur. Sjalfsvig.is - Stuðningur við þá sem eru í sjálfs- vígs- hug- leið- ing- um, að- stand- endur og eftirlif- endur sjálfs- víga. Rakel Birta Guðnadóttir vill deila reynslu sinni af áfallinu í því skyni að hjálpa öðrum börnum sem þurfa að upplifa foreldra- missi vegna sjálfs- vígs og ræðir um hana í nýútkominni bók Kristínar Tómas- dóttur, Stelpur geta allt. Ljósmynd/ Hari  Heilbrigðismál börn foreldra sem fremja sjálfsvíg Hafði aldrei heyrt um neinn sem framdi sjálfsvíg Rakel Birta Guðnadóttir var tólf ára þegar pabbi hennar framdi sjálfsvíg. Landlæknisembættið segir að huga þurfi betur að börnum eftir missi foreldris vegna sjálfsvígs því eftirlifandi foreldri sé oft ekki í stakk búið til þess sjálft. Engar tölur eru til yfir fjölda barna sem missa foreldri vegna sjálfsvíga ár hvert. að skamma hana því ég vissi ekki hvernig hún myndi bregðast við,“ segir Rebekka. Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri yfir geðheilbrigðismálum og sjálfsvígsforvörn- um hjá Landlæknisembættinu, segir að mikil vakning hafi verið í umræðu um sjálfsvíg á undanförnum árum og áfallahjálp sem að- standendum býðst, sérstaklega hvað varðar stuðning við börn. „Landlæknisembættið hefur lagt áherslu á að þegar barn missir for- eldri vegna sjálfsvígs, sem oftast er pabbinn vegna þess hve sjálfsvíg karla eru algengari en kvenna, má ekki gleyma að veita barninu stuðning. Mamman fær stuðning en stundum gleymist hve börn eru næm á nærumhverfi sitt,“ segir Salbjörg. Rakel Birta og Rebekka segja að sr. Sigríð- ur Guðmarsdóttir sóknarprestur hafi reynst þeim vel. Mæðgurnar fengu hinsvegar enga hjálp eftir að sálusorg prestsins lauk og sum- arið eftir áfallið kom bakslag í líðan Rakelar Birtu. „Ég vissi ekkert hvert ég ætti að snúa mér en loks töluðum við sálfræðinginn í hverf- inu okkar. Það hjálpaði mikið en Rakel Birta verður alla ævina að venjast þessu. Hún er fyr- irmyndarunglingur og hefur náð að standa sig eins og hetja í gegnum þetta,“ segir Rebekka. Rebekka var orðin föst í kvíða og ótta um barnið sitt þegar hún leitaði sér sjálf hjálp- ar til að takast á við þær tilfinningar. Sorg hennar kom löngu eftir áfallið. „Ég var lengi vel frosin – en svo reið – og svo kom sorgin miklu seinna. Ég var svo hrædd um stelpuna mína og upptekin af henni og föðurfólkinu hennar,“ segir hún. Salbjörg segir að á erfiðleika- tímum sem þessum sé eftirlif- andi foreldri oft ekki í stakk búið til að sinna börnum en þá sé mikilvægt að fagaðilar fái nær- samfélagið til að vinna með börn- unum í umhverfi þeirra. „Það er lögð áhersla á að barnið sé ekki tekið út úr umhverfi sínu heldur fái aðstoð í því og jafnframt að fylgjast með atburðarásinni. Það er afar mikilvægt að börnum sé sagt frá því sem gerðist eftir því sem aldur þeirra leyfir,“ segir Sal- björg. Hún bendir á að í hverjum skóla eigi að vera við- bragðsáætlun fyrir dauðsföll og sérstaklega fyrir sjálfsvíg barns eða for- eldris. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Ég hafði aldrei heyrt um neinn sem færi á þennan veg.Bara snyrtilegt vink frá fræðimanninum „Ég hef fullan skilning á því að Haraldur hafi notað þennan vettvang til að verja sig,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, inntur eftir viðbrögðum vegna uppákomu í veðurfréttum stöðvarinnar á dögunum. Þar svaraði Haraldur Ólafsson veður- fræðingur gagnrýni innan- ríkisráðherrans, Ögmundar Jónassonar. Ögmundur hafði áður sagt á þingi að engar viðvaranir hafi verið gefnar út af veðurstofu fyrir óveður sem gekk yfir í september. Þessu hafnaði Haraldur og notaði til þess veðurfréttatímann. „Þetta var ekki skipulagt af fréttastofunni svo þetta kom mér á óvart líkt og öllum öðrum en ég get ekki sagt annað en þetta hafi verið nokkuð snyrtilega gert,“ segir Óðinn. Aðspurður hvort það sé æskilegt að nota veður- fréttatímann til þess að koma persónu- legum skilaboðum á framfæri segir hann að tilefnið hafi verið ærið. „Það áttu sér stað mjög settlegar umræður um þetta í þinginu en þar fór ráð- herrann talsvert fram úr sér og hafði uppi ummæli sem ég held að hann sé að mestu leyti búinn að draga til baka. Haraldur var bara að bera hönd fyrir höfuð veðurfræð- inga, og besti vettvangur- inn til þess er líklegast veðurfréttatíminn.“ Hann segir að slíkt verði þó að vera matsatriði hverju sinni. „Þetta var bara mjög snyrtilegt vink frá fræðimanninum svo af því verða engin eftirmál.“ Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, sér ekkert athugavert við það að Haraldur Ólafsson hafi notað veðurfréttatíma Sjónvarps til að koma áleiðis skilaboðum. Hnappur Á heimasíðu Barnaheilla er tilkynningarhnappur þar sem tilkynna má um refsiverða háttsemi gegn börnum, hérlendis sem erlendis. Margrét Júlía Rafns- dóttir, verkefnastýra Barnaheilla 2 fréttir Helgin 9.-11. nóvember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.