Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 6
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Dacia Duster
Kr. 3.990 þús.
GROUPE RENAULT / NISSAN BL. ehf / Sævarhöfða 2
110 Reykjavík / Sími 525 8000
www.dacia.is
Dísil 5,3L/100 km
Þú leggur línurnar
létt&laggott
Metfjöldi útskrif-
aðist úr Jarðhita-
skólanum
Alls útskrifuðust 33 nemendur
úr Jarðhitaskóla Sameinuðu
þjóðanna hér á landi í október
og hafa ekki áður verið fleiri í
einni sex mánaða námslotu, að
því er fram kemur í Vefriti um
þróunarmál. Útskriftarhópurinn
kom frá sautján löndum:
Bangladesh (1), Kína (2), Djíbútí
(1), El Salvador (2), Eþíópíu (3),
Indlandi (1), Kenía (10), Malaví
(1), Mexíkó (1), Nevis (1),
Níkaragva (1), Papa Nýju Guineu
(2), Filippseyjum (2), Rúanda
(2), Sri Lanka (1), Tansaníu (1) og
Úganda (1). Frá því Jarðhitaskól-
inn var stofnaður 1979 hafa 515
vísindamenn og verkfræðingar
frá 52 löndum lokið sex mánaða
námi við hann. - jh
Elsta húsið hið fyrsta sEm friðað Er í Kópavogi
Kópavogsbærinn friðaður
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menning-
armálaráðherra hefur samþykkt tillögu
Húsafriðunarnefndar um að friða gamla
Kópavogsbæinn á Kópavogstúni. Bæjar-
ráð Kópavogs fagnar friðuninni en bæjar-
yfirvöld ákváðu nýverið að hefja undir-
búning að nauðsynlegum lagfæringum á
húsinu. Kópavogsbærinn er fyrsta húsið
sem er friðað í Kópavogi. Friðunin nær til
ytra byrðis húsasamstæðunnar, en elsta
hús hennar var byggt á árunum 1902 til
1904.
Húsið er elsta húsið í Kópavogi og var
reist af Erlendi Zakaríassyni. Erlendur
var steinsmiður og hlóð hann bæ sinn úr
tilhöggnu grjóti og notaði steinlím með
svipuðum hætti og hann hafði lært þegar
hann vann við byggingu Alþingishússins
á árunum 1880 til 1881. Húsið er nú í eigu
Kópavogsbæjar og er eitt fárra steinhlað-
inna húsa sem enn standa utan Reykja-
víkur. „Því hefur það ásamt síðari tíma
viðbyggingum mikið varðveislugildi sem
eini uppistandandi vitnisburðurinn um
elstu byggð Kópavogs og þann búskap
sem stundaður var frá fornu fari á því
svæði sem nú markar þéttbýli Kópavogs,“
segir á vef Húsafriðunarnefndar.
Neðar á Kópavogstúni er Kópavogs-
hælið, bygging Guðjóns Samúelssonar
frá árunum 1925-26. Eins og fram hefur
komið í Fréttatímanum hafa komið fram
hugmyndir um safn á svæðinu er geymdi
híbýlasögu frá landnámstíð. Þar væri í
senn rakin híbýlasaga íslensks alþýðu-
fólks frá upphafi byggðar hér á landi
fram til loka 20. aldar og byggingarsaga
Kópavogs; frá torfbæjum og heiðarbýlum
sveita til tómthúsa þegar þéttbýli fór að
myndast. Tilgangur húsafriðunar er að
varðveita íslenska byggingararfleifð sem
hefur menningarsögulegt gildi. Óheimilt
er að gera breytingar á friðaðri húseign
án leyfis Húsafriðunarnefndar.
Kópavogsbærinn, elsta hús Kópavogs, hefur verið friðaður.
glæpir viðhorf íslEndinga til glæpa og sérstaKs saKsóKnara
Vantrú á árangri sérstaks
U m 93 prósent Íslendinga telja glæpi vera vaxandi vandamál, samkvæmt niður-stöðum úr rannsókn sem Helgi Gunn-
laugsson, afbrotafræðingur og prófessor í fé-
lagsfræði við Háskóla Íslands, gerði í samstarfi
við Félagsvísindastofnun HÍ í byrjun ársins. Alls
töldu 84 prósent aðspurðra að glæpir væru stórt
vandamál í samfélaginu.
Flestir töldu afbrot tengd vímuefnaneyslu
vera alvarlegasta vandamálið, 34 prósent að-
spurðra, en litlu færri, 31 prósent, töldu efna-
hagsbrot alvarlegust. Næst
komu kynferðisbrot, sem 13
prósent aðspurðra töldu alvar-
legust, 13 prósent nefndu annað
ofbeldi og loks komu þjófnaðir
og innbrot.
Þó svo að efnahagsbrot
væru nefnd meðal alvarlegustu
glæpanna hér á landi taldi mikill
meirihluti, 65 prósent, það
ólíklegt að rannsóknir sérstaks
saksóknara myndu enda með
sakfellingu hinna grunuðu.
Að sögn Helga hafa aldrei
áður jafnmargir talið efnahags-
brot alvarlegasta afbrotið. „Tæpur þriðjungur
nefnir það nú og slaga þau hátt upp í fíkniefna-
brot sem hafa ávallt verið talin alvarlegasta
brotið frá því mælingar hófust árið 1989,“ segir
hann.
„Í fyrstu könnuninni, árið 1989 nefndu um 17
prósent svarenda efnahagsbrot sem alvarlegasta
brotið en eftir það duttu þau nánast út. Þess má
geta að árið 1989 var Hafskipsmálið svokallaða
í algleymingi og efnahagsbrot því væntanlega
ofarlega í huga fólks líkt og nú er,“ segir Helgi.
Hann segir athyglisvert að mun færri nefni
kynferðisbrot sem alvarlegasta glæpinn nú en
áður en kynferðisbrot hafa á síðustu árum verið
í öðru sæti á eftir fíkniefnabrotum í þessum
könnunum. „Þess má geta að svarendur nefna
bara eitt brot og því falla kynferðisbrotin hugs-
anlega í skuggann af efnahagsbrotunum um
þessar mundir, ef svo má að orði komast,“ segir
Helgi. Fleiri virðast því hafa áhyggjur af efna-
hagsbrotum í samfélaginu en kynferðisbrotum.
Helgi segir það ekki koma á óvart hve margir
telji glæpi vaxandi vandamál í samfélaginu.
Þekkt sé að áhyggjur af glæpum í samfélögum
séu ávallt meiri en tilefni gefur til, samkvæmt
upplýsingum um þróun afbrota frá lögreglu. „Þó
svo að afbrotum fækki eða standi í stað virðist
sem fólk hafi ávallt áhyggjur af því að þeim sé að
fjölga,“ segir Helgi.
Hann segist enga eina skýringu hafa á þessu.
„Fólk virðist skynja sem svo að afbrotum sé að
fjölga og að umhverfið sé ávallt hættulegra í dag
en áður var. Sumir hafa viljað kenna fjölmiðlum
um en ég tel að ástæðan sé dýpri. Meira er
fjallað um glæpi en áður, til að mynda ofbeldis-
og kynferðisbrot, og verða þeir því meira áber-
andi í umræðunni. Umræðan um glæpi vekur
ótta og reiði hjá fólki – eins og við sjáum hvað
varðar umræðuna um efnahagsbrotin núna.
Meiri umræða um þau í kjölfar efnahagshruns-
ins hefur orðið til þess að fleiri en nokkru sinni
fyrr telja efnahagsbrot alvarlegustu glæpi sam-
félagsins,“ segir Helgi.
Aðspurður um vantrúna á árangri sér-
staks saksóknara segist Helgi telja líklegustu
skýringuna þá að fólki sé í fersku minni um-
fangsmikil málaferli og rannsóknir í fleiri ár í
tengslum við Baugsmálið svokallaða þar sem í
lokin „fæddist lítil mús,“ segir hann. „Auk þess
getur það haft áhrif hve langur tími fer í rann-
sókn málanna. Fyrir tveimur árum tilkynnti
sérstakur að verið væri að leggja lokahönd á
fjölda mála en mörg þeirra hafa ekki enn litið
dagsins ljós,“ segir Helgi. „Þetta tvennt gæti
spilað saman.“
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þriðjungur Íslendinga telur efnahagsbrot alvarlegasta glæpinn hér á landi en tveir af hverjum
þremur hefur enga trú á að rannsókn sérstaks saksóknara skili árangri. Aldrei hafa fleiri haft
áhyggjur af efnahagsbrotum en nú og falla kynferðisbrot nú í skuggann af hvítflibbaglæpum.
Meiri umræða
um þau í kjöl-
far efnahags-
hrunsins hefur
orðið til þess
að fleiri en
nokkru sinni
fyrr telja efna-
hagsbrot alvar-
legustu glæpi
samfélagsins.
Hvítflibbaglæpir hafa aldrei verið Íslendingum jafnmikið áhyggjuefni og nú.
Lj
ós
m
yn
d/
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
Helgi Gunn-
laugsson,
afbrota-
fræðingur og
prófessor í
félagsfræði
við Háskóla
Íslands.
Verðlaunatillaga vegna
viðbyggingar við MS
Úrslit í hönn-
unarsamkeppni
um nýbyggingu
við Menntaskólann
við Sund voru
kynnt nýverið
og er ráðgert að
byggingin verði tekin í notkun fyrir haustið 2015. Nítján
tillögur um viðbyggingu og nýtt heildarskipulag á hús-
næði skólans bárust. Höfundar verðlaunatillögunnar
eru Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur,
Akos Doboczy, arkitekt og Zoltán V. Horváth, arkitekt
hjá Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunni ehf.
Í áliti dómnefndar að verðlaunatillgagan falli vel að
framsæknu skólastarfi, samhliða því að byggingin
samræmist vel núverandi skólabyggingu. „Hrífandi
og hnitmiðuð tillaga sem vinnur einstaklega vel með
áherslur skólans svo úr verður heildstæð og spennandi
skólabygging“, segir í mati dómnefndar. Viðbyggingin
verður um 2.700 fermetrar og leysir hún þann hús-
næðisvanda sem skólinn hefur búið við lengi. - jh
6 fréttir Helgin 9.-11. nóvember 2012