Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 11
T vöfalt fleiri karlar en konur á aldrinum 30-34 ára hafa ekki lokið framhaldsskólanámi hér á landi en hvergi í heiminum er meira
brottfall úr framhaldsskóla en á Ís-
landi. Rannsóknir sýna jafnframt að
læsi meðal 15 ára drengja er með því
minnsta sem gerist í löndunum sem
við miðum okkur við, 23 prósent ís-
lenskra drengja geta ekki lesið sér
til gagns en um níu prósent stúlkna.
Margfalt fleiri drengir en stúlkur í
efstu bekkjum grunnskólans geta því
ekki tileinkað sér námsefnið vegna
lestrarerfiðleika.
Hermundur Sigmundsson, pró-
fessor í sálfræði við norska Tækni-
og vísindaskólann, segir að rann-
sóknir sýni að eðlilegt hlutfall þeirra
sem ekki geta lesið sér til gagns sé
um 5-6 prósent. „Það eru börn sem
ekki ná almennilegum tökum á lestri
af líffræðilegum ástæðum, svo sem
vegna lesblindu,“ segir Hermundur.
Hann segir að sterk tengsl séu
á milli árangurs í efstu bekkjum
grunnskóla og brottfalls úr menntaskóla. Um 95
prósent þeirra sem eru með hæstu einkunnirnar
ljúka framhaldsskóla en 10 prósent þeirra með
lægstu einkunnirnar. „Þetta segir mikið um það
hversu mikilvægur grunnskólinn er í þessu ferli,“
segir Hermundur.
Allt of mikið ólæsi
Hermundur hefur unnið við rannsóknir á þessu
sviði í nær tvo áratugi. „Það er ljóst að fjöldi þeirra
drengja sem ekki geta lesið sér til gagns er miklu
meiri á Íslandi en eðlilegt má teljast. Munurinn er
18 prósentustig. Það er allt of hátt og það verður
að skýra það með þeim hætti að það skorti upp á
kennsluna. Við erum ekki að ná að kenna þeim í
skólanum,“ segir Hermundur.
Hann segir að rannsóknir hafi
sýnt að þeir sem ná bestum árangri
í skóla séu þeir sem fá bestan
stuðning heima. „Skólinn er hins
vegar ekki að ná að sinna slakari
nemendum sem ekki fá hjálp heima
fyrir. Við getum ekki haft áhrif
á félagslegar aðstæður þessara
nemenda og því verður skólinn að
koma til móts við þarfir þeirra með
aukinni aðstoð við heimanám, sér-
kennslu og þar fram eftir götun-
um,“ segir Hermundur. „Þannig má
auka líkurnar á því að þessi hópur
nái betri árangri í grunnskóla og
þar af leiðandi í framhaldsskóla,“
segir hann.
„Lestur er grunnur fyrir allt ann-
að nám og því verður að sinna lestr-
arkennslu á fyrstu árum grunn-
skólans betur,“ segir Hermundur.
Í skýrslu starfshóps um námsárangur drengja
sem unnin var á vegum Reykjavíkurborgar í fyrra
kemur fram að ræða þurfi hvort þroskafræðilegur
munur á drengjum og stúlkum geti mögulega haft
áhrif á skipulag náms og kennslu. Hermundur
segir að því hafi meðal annars verið haldið fram að
drengir séu eldri en stúlkur þegar þeir eru tilbúnir
til að læra að lesa. Hann segir að þróunarsálfræðin
hafni þessu, utanaðkomandi þættir á borð við áreiti
og reynslu spili þar inn í. Drengirnir hafi oft ein-
faldlega minni reynslu í því að lesa og því þurfi að
kenna þeim það, þjálfa betur hjá þeim lesturinn.
Hermundur segir að börn læri best þegar sam-
svörun er á milli áskorana og færni. „Þegar börn
hafa mikla færni en fá litlar áskoranir þá leiðist
þeim. Á sama hátt fá börn með litla færni og miklar
áskoranir kvíða. Það þarf að tryggja að þarna á
milli sé jafnvægi,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
MennTaMál BroTTfall úr fraMhaldsskóluM hvergi hærra en hér
Lestrarkennsla í grunn-
skólum ekki fullnægjandi
Hermundur
Sigmundsson,
prófessor í sál-
fræði við norska
Tækni- og
vísindaskólann,
segir að grunn-
skólinn sé afar
mikilvægur
þegar horft er
til brottfalls
úr framhalds-
skóla. Því þurfi
að huga betur
að grunnfærni
nemenda á
fyrstu árum
grunnskólans.
Bæta þarf
lestrarkennslu
barna og auka
læsi.
BROTTFALL
Fr amhaldsskól ar
þriðj i hlut i
„Lestur er grunnur fyrir allt
annað nám og því verður að
sinna lestrarkennslu á fyrstu
árum grunnskólans betur,“
segir Hermundur Sigmundsson,
prófessor í sálfræði við norska
Tækni- og vísindaskólann.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
2
0
2
Fast mánaðargjald
fyrir aðgang að IP símkerfi
Símavist hentar flestum gerðum fyrirtækja,
óháð stærð og starfsemi.
Með Símavist býðst fyrirtækjum að leigja IP
símkerfi gegn föstu mánaðargjaldi sem ræðst
af fjölda starfsmanna sem nota kerfið.
Símkerfið er hýst í vélasölum Símans og fyrirtæki
þurfa ekki að fjárfesta í vélbúnaði eða stýrikerfum.
Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf í síma
800 4000 og sérfræðingar okkar finna
hagkvæmustu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
siminn.is · 8004000@siminn.is
Vertu með símkerfið
í öruggum höndum
hjá Símanum
Fyrirtæki
fréttaskýring 11 Helgin 9.-11. nóvember 2012