Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 22

Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 22
Ólafur og Jóhanna sendu Obama kveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi Barack Obama heillaóskir í tilefni af endurkjöri hans sem forseta Bandaríkjanna. Hið sama gerði Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra. Hrafnsauga hlaut barnabók- menntaverðlaun Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynj- arsson hlutu Íslensku Barnabókaverðlaunin fyrir bókina Hrafnsauga. Báðir eru fæddir árið 1984. Kjartan er leiklistarnemi og Snæ- björn er í japönskunámi. Bæjarstjóri Akraness hættur Árni Múli Jónasson hefur látið af störfum sem bæjarstjóri á Akranesi. Jón Pálmi Pálsson bæjarritari muni fyrst um sinn taka við dag- legum embættisfærslum bæjarstjóra. Þriðjungi fleiri kaupsamningar Alls var ríflega 550 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í október, hátt í þriðjungi fleiri en í september. Heildarvelta fasteignaviðskiptanna í október nam 16,4 milljörðum króna. Stöngin inn í Þjórsárdal Orðasamband úr íþróttamáli er heiti verðlaunatillögu í hönnunarsamkeppni um fornminjarnar að Stöng í Þjórsárdal. „Stöngin inn“ heitir tillaga Karls Kvaran og Sahar Ghaderi. Bæta á aðgengi að minjunum, færa í upprunalegt horf og byggja yfir þær. Sjúklinga burt af spítala- göngum Alvarlegt er að fólk liggi á göngum Land- spítalans, segir slökkviliðsstjóri. Gangarnir eru flóttaleið ef eldur kviknar. Slökkviliðið þrýstir á Landspítalann að koma sjúklingum burt af göngunum. Nýir dagskrárstjórar Margrét Marteinsdóttir var ráðin dagskrár- stjóri útvarps og Skarphéðinn Guðmunds- son dagskrárstjóri sjónvarps. Margrét hefur starfað við útvarp og sjónvarp í 15 ár. Skarphéðinn hefur síðustu fimm ár verið dag- skrárstjóri Stöðvar 2. Fimm sækja um embætti hæstaréttardómara Fimm sóttu um tímabundið embætti hæsta- réttardómara: Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild HÍ, Arnfríður Einars- dóttir, dómari við héraðsdóm Reykjavíkur, Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild HÍ, Ingveldur Einarsdóttir, dómari við héraðsdóm Reykjavíkur og Þorgeir Ingi Njálsson, dóm- stjóri héraðsdóms Reykjaness. Við getum öll lært af Grétu Það fá ekki allir að fara með börnin sín heim Á svona stundum er ég þakklátust fyrir starfið mitt,“ hugsaði ég þegar ég hafði kvatt Grétu Ingþórsdóttur eftir að ég hitti hana á heimili hennar fyrr í vikunni. Fólk eins og Gréta gerir mig að betri manneskju með æðruleysi sínu og jákvæðni. Hér í blaðinu er viðtal sem ég tók við Grétu um veikindi og lát næstum níu ára gamallar dóttur hennar, Emmu Katrínar, sem lést fyrir fimm árum af völdum heila- krabbameins. Gréta hafði skrifað hugleiðingu í nýútkomna bók, Gleði- gjafar, sem ég las – og hreifst af. Og grét yfir. Hvernig er annað hægt en að gráta? Lýsingin á Emmu fær hana til að dansa fyrir augum mér, hún stendur uppi á borði og syngur og segir brand- ara. Svo sprelllifandi – en samt svo dáin. Móðir henni lýsir henni á einlæg- an og fallegan hátt. Geðrík er orðið sem hún notar meðal annars – og það stingur í hjartastað. Ég á eina svona stelpu eins og Emmu. Við þekkjum öll stelpu eins og Emmu. En mig langaði að vita svo miklu meira en fram kom í hugleiðingum Grétu í bókinni. Mig langaði að vita hvernig hún tækist á við ótt- ann, hvernig lífið héldi áfram, hvernig hún kæmist hjá því að ásaka sjálfa sig eða aðra. Ég var búin að vera með kvíðahnút í maga allan daginn sem ég hitti hana. Ég hélt að það yrði óbærilegt að ræða við móður um missi barnsins síns. Því ég hef einu sinni verið mjög nálægt þessum stað. Svo nærri – að þegar ég stóð við sjúkrarúm drengsins minn eitt sinn þar sem hann lá á gjörgæslu eftir alvarlegt slys fimm mánaða gamall kom mynd í huga mér. Mynd af sjálfri mér og manninum mínum og börn- unum okkar gangandi á eftir pínulítilli, hvítri kistu í Dómkirkjunni, þar sem við höfðum gift okkur þremur árum áður. Maður ræður ekki við hugsanir sínar á erfiðum stundum. En við fengum að fara heim með barnið okk- ar. Fyrir það er ég eilíflega þakklát. Í hvert sinn sem ég horfi á þennan hrausta, fallega, fjögurra ára dreng fyllist ég þakklæti. „Það fá ekki allir að fara með börnin sín heim,“ sagði Gréta við mig. Það veit hún af biturri reynslu. Grétu hefur fæðst nýr sólargeisli því fyr- ir ári eignaðist hún dóttur, Halldóru. Gréta sagði mér frá því að hún hefði barist við erf- iðar hugsanir þegar Halldóra var nýfædd. „Þá var ég alltaf að sjá fyrir mér að það kæmi eitt- hvað hræðilegt fyrir hana sem ég væri völd að. Þetta er víst ekkert óalgengt meðal ný- bakaðra mæðra. Þegar ég talaði um þetta við hjúkrunarkonuna sem sinnti Emmu sem mest og er góð vinkona okkar í dag sagði hún að ég hugsaði þetta því ég vissi að hræðilegir hlutir gætu komið fyrir börn. Ég hefði reynsluna af því,“ sagði Gréta. En hún lætur ótta sinn ekki stjórna lífinu – og alls ekki lífi barna sinna. Hún orðaði það svo eftirminnilega: „Þau verða að fá að lifa líf- inu á sínum forsendum, ekki á þeim forsend- um að við séum búin að missa barn og séum þess vegna hræddari um þau.“ Og Gréta hugsar með gleði til áranna átta sem hún átti með Emmu, heilbrigðri og glaðri – og þakkar fyrir þau. Og þakkar fyrir hin börnin sín þrjú – og nýtur með þeim hvers dags. Og einmitt þess vegna var ekki erfitt að tala við hana um Emmu eins og ég hafði óttast. Við getum öll lært margt af Grétu. Munum að þakka fyrir hvern dag. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is sjónarhóll Ég á eina svona stelpu eins og Emmu. Við þekkjum öll stelpu eins og Emmu. VikAn í tölum 862 milljónir króna fær Landspítalinn til tækjakaupa á næsta ári þegar kosið verður til Alþingis. Ríkisstjórnin samþykkti 600 milljóna aukafjár-veitingu í vikunni. 3 daga þurfti Arn-aldur Indriðason til að tylla sér á topp sölulista íslenskra bókaverslana með nýja bók sína, Reykjavíkurnætur. Listinn nær yfir tveggja vikna tímabil. 95 þjóðir eru fremri okkur í getu á knatt- spyrnuvellinum sé tekið mið af því að íslenska karlalandsliðið er í 96. sæti heimslista FIFA. Kvennalandsliðið verður því áfram sómi okkar, sverð og skjöldur á knattspyrnuvellinum. 36 matreiðslumenn og bakarar kepptu í Eftirréttakeppni ársins 2012 sem lauk í vikunni. Það var Fannar Vernharðsson á Vox sem bar sigur úr býtum að þessu sinni. 5 sóttu um embætti dómara við Hæsta- rétt sem auglýst var laust til setningar frá 1. desember til ársloka 2014. 43 prósent fækkun hefur orðið á inn- brotum í Vesturbæ Reykjavíkur frá 2007. Á sama tíma hefur ofbeldis- brotum fækkað um 46 prósent. 22 fréttir Helgin 9.-11. nóvember 2012 vikunnar

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.