Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 24
Í sland virðist smátt og smátt vera á leið út úr krepp-
unni. Hagvöxtur er
meðal þess sem best
gerist í Evrópu og at-
vinnuleysi er á undan-
haldi. Nú verðum við
að halda áfram á sömu
braut; fjölga atvinnu-
tækifærum og styrkja
hag velferðar í landinu.
Í mínum huga snýst
jafnaðarstefnan um
að ná jafnvægi milli
þess að eiga sterkt vel-
ferðarkerfi og öflugt atvinnu-
líf. Velferðarkerfið leggur
grunninn að verðmætasköpun-
inni. Í gegnum menntakerfið
styrkjum við virðisaukningu
samfélagsins og vinnum að
jöfnuði.
Menntunin er lykillinn
Með því að tryggja tækifæri
allra, án tillits til efnahags,
stéttar eða stöðu, til þess að
afla sé menntunar og þroska
hæfileika sína, erum við í
reynd að færa út landamæri
frelsisins. (Olof Palme)
Með því að tryggja jafnt að-
gengi allra að góðri menntun
veitum við fólki jöfn tækifæri
til að dafna í samfélaginu.
Þannig teljum við jafnaðar-
menn að frelsi einstaklingsins
sé best tryggt með því að veita
honum aðgengi að menntun,
því þá getur hann sótt fram,
látið drauma sína
rætast, og tryggt sér
og sínum öryggi og
hagsæld.
Um 30% Íslendinga
á starfsaldri eru án
nokkurar starfs-
menntunar. Það er
mikið áhyggjuefni
enda eru þrefalt
meiri líkur á atvinnu-
leysi meðal þeirra
sem eingöngu hafa
grunnskólapróf en
hjá hinum sem eru
með háskólapróf.
Þeim samfélögum farnast
best sem byggð eru á sameig-
inlegri ábyrgð allra á velferð
almennings, hvort sem litið er
til almennrar menntunar eða
jafnvægis í tekjum og eignum.
Þau eru jafnframt þau sam-
félög sem reynast hvað sam-
keppnishæfust á alþjóðlegum
vettvangi.
Kjarni jafnaðarstefnunnar
Í fáum orðum má segja að
stefna jafnaðarmanna krist-
allist í því viðhorfi að velferð
og jafn réttur allra til þjónustu
verði ekki til án verðmæta-
sköpunar og frelsis til athafna.
Á sama hátt byggir sterkt at-
vinnulíf á öflugu velferðarkerfi
og góðri menntun. Velferðin
leggur grunn að verðmæta-
sköpuninni. Þetta er kjarni
jafnaðarstefnunnar og verður
ekki í sundur slitið.
Magnús Orri Schram
alþingismaður
Fjögurra rétta
matseðill,
ferja og tónleikar
10.900.-
www.videyjarstofa.is - videyjarstofa@videyjarstofa.is
Sigríður Thorlacius
og Guðmundur Óskar
Viðey er yndislegur staður að heimsækja í kringum hátíðarnar.
Íslenskur jólamatseðill í elsta steinhúsi á Íslandi.
Jólatónleikar og kvöldverður
í Viðeyjarstofu
16. - 17. nóv / 23. - 24. nóv
30. nóv - 1. des / 7. - 8. des
-Í boði fyrir hópa og einstaklinga
-Fleiri dagsetningar í boði
fyrir hópa
E ngum hefur dulist að umræðan í samfélaginu um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu
hefur á stundum einkennst af öðru en
hógværð og háttvísi. Má jafnvel ráða af
orðræðunni að um sé að ræða smá-
vægilegt málefni, sem hægt sé að af-
greiða með upphrópunum og vafasöm-
um fullyrðingum. En svo er ekki. Aðild
að ESB snýst um hagsmuni þjóðar-
innar, velferð hennar og stöðu Íslands
á alþjóðavettvangi. Það er ekki hægt
að taka upplýsta afstöðu til slíkra stór-
mála á grundvelli rangra upplýsinga.
Aðildarumsóknin snýst um hvað
bætist við EES samninginn ef til að-
ildar kemur, ekki um EES samninginn
sjálfan og innihald hans.
Hvað á að koma í staðinn?
Stjórnmálasaga 20. aldar á Íslandi einkennist
af átökum um stöðu Íslands á alþjóðavett-
vangi og samstarf við aðrar þjóðir. Síðustu
stórátökin snérust um aðild að EES samn-
ingnum og þá voru stóru orðin ekki spöruð.
Þegar við horfum til baka sjáum við að flestar
hrakspárnar reyndust ekki á rökum reistar
og enginn hefur stigið fram fyrir skjöldu
og krafist þess að Íslendingar segðu sig frá
samningnum. Engu að síður hefur málflutn-
ingur andstæðinga aðildar að ESB snúist að
miklu leyti um atriði, sem þegar eru hluti af
EES samningnum. Er það sanngjarn málflutn-
ingur? Er gagnrýni á efni, sem þegar er í EES
samningnum til þess fallið að varpa ljósi á þær
breytingar sem kunna að verða við fulla aðild?
Það er augljóst að svo er ekki og að mínu mati
er þetta dæmi um ómálefnalegan málflutning
sem lýsir óvirðingu gagnvart þjóðinni. Hún
verður að geta tekið upplýsta ákvörðun, sem
byggist á staðreyndum um efni málsins en
ekki óskylda hluti. Þeir sem nota efni EES
samningsins sem rök gegn fullri aðild að ESB
eiga að sýna þann kjark og heiðarleika
að segja það hreint út að þeir vilji að
EES samningnum verði rift. Og fyrir
kurteisis sakir að greina jafnframt frá
því hvernig við eigum t.d. að haga út-
flutningi okkar gegnum þá tollmúra,
sem risu í kjölfarið.
Það er augljós vilji þjóðarinnar og
sjálfsögð krafa að stjórnmálamenn
tali saman af virðingu um menn og
málefni. Má gera einnig þá kröfu til
þeirra, sem halda úti vefsíðum og
skrifa í fjölmiðla um þjóðfélagsmál-
efni? Væri það ekki okkur öllum til
heilla ef umræðan í samfélaginu um
sameiginlega hagsmuni okkar væri
hófstillt og málefnaleg? Svarið er aug-
ljóst.
Sýnið ykkar rétta andlit!
Flest það sem samið verður um við ríkin
í Evrópusambandinu er hægt að meta til
kosta eða ókosta með hlutlægum hætti. Því
er hægt að rökræða aðild að ESB á málefna-
legum hátt ef menn svo kjósa. Og nota stað-
reyndir máli sínu til stuðnings. Því miður er
ranghugmyndum haldið að fólki í mörgum
deilumálum og umræðan um aðild Íslands
að ESB hefur ekki farið varhluta af því. Hver
kannast ekki við talið um ferköntuðu tómat-
ana, herskyldu ungra bænda og vitleysu af
því tagi. Að mínu mati er það óvirðing gagn-
vart fólkinu í landinu, sem á kröfu til að fá
sannar og réttar upplýsingar, og málefna-
lega umræðu, að slíku sé haldið á loft. Ég
skora á andstæðinga ESB aðildar að mæta
okkur, sem tölum fyrir aðild, á málefnalegum
grunni og tala um það sem breytist við aðild
að ESB en ekki um óskyld málefni. Þá skora
ég á andstæðinga EES samningsins að sýna
sitt rétta andlit en ekki fela sig á bak við að-
ildarumræðurnar. Þjóðin á skilið heiðarlega
og málefnalega umræðu.
Sterkt velferðarkerfi og öflugt atvinnulíf
Hvað vill jafnaðarmaður?
Hagsmunir þjóðarinnar, velferð og staða á alþjóðavettvangi
Tölum saman um mikilvæg mál
Anna Margrét
Guðjónsdóttir
Sækist eftir 3. – 4. sæti
í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík
24 viðhorf Helgin 9.-11. nóvember 2012