Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 32
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
NÝR VEISLUBAKKI
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
PEKING ÖND
Steikt Peking önd með
Peking sósu, gúrkum,
blaðlauk og salatblöndu
í mjúkri tortilla köku.
565 6000
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
PRÓFAÐUEITTHVAÐNÝTT!
30 bitar
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
TORTILLA
OSTABAKKI
Hann er bara mjög mikill einfari, saklaus og mjög almennilegur strákur, ég
hefði aldrei trúað þessu upp á hann nema ég fengi að sjá það svart á hvítu.
Ástríðumorð í Hafnarfirði
Sunnudaginn 15. ágúst árið 2010 kom Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir að unnusta sínum og
sambýlismanni, Hannesi Helgasyni, látnum á heimili þeirra að Háabergi í Hafnarfirði. Aðkoman
var skelfileg og ljóst að Hannesi hafði verið ráðinn bani með eggvopni. Almenningur var að
vonum sleginn óhug og síst dró úr honum þegar rannsóknin dróst á langinn og dagarnir liðu án
þess að nokkur væri grunaður um ódæðið. Fjórði þátturinn af Sönnum íslenskum sakamálum á
Skjá einum á mánudaginn fjallar um þetta hryllilega morð.
H annes Helgason fannst látinn í blóði sínu heima hjá sér laust eftir hádegi. Að-
stæður á vettvangi glæpsins bentu
til þess að sá sem myrti hann hefði
komið að honum sofandi og veist
að honum með eggvopni. Hannes
átti það til að skilja útidyr heimilis
síns eftir ólæstar og þótti ljóst að
hann hefði gengið til náða þessa ör-
lagaríku nótt án þess að læsa að sér.
Morðinginn átti því greiða leið að
honum og gat komið honum í opna
skjöldu.
Kvöldið áður voru Hannes og unn-
usta hans, Guðlaug Matthildur, að
skemmta sér en urðu viðskila þegar
Hannes fór heim frekar snemma.
Guðlaug sofnaði síðar um nóttina á
heimili æskufélaga síns, Gunnars
Rúnars Sigþórssonar, sem skutlaði
henni heim um hádegisbil. Hann
bauðst til þess að fylgja henni inn
en hún þáði það ekki og kom ein að
Hannesi látnum.
Morðingi gekk laus
Framan af stóð lögregla ráðþrota
gagnvart glæpnum og lítið var um
vísbendingar sem gæti komið henni
á slóð morðingjans. Dögum saman
gekk morðinginn því laus og þurfti
að leita allt aftur til ársins 2004 og
morðisins á Sri Rahmawati en þá
liðu 22 dagar þar til Hákon Eydal,
fyrrverandi sambýlismaður hennar
og barnsfaðir, var fyrst yfirheyrður
grunaður um aðild að hvarfi hennar.
Ýmsar sögusagnir fóru á kreik í
þessu tómarúmi og þar sem Hannes
hafði átt í viðskiptum í Litháen skaut
sú kenning upp kollinum að hann
hefði átt í útistöðum við glæpalið þar
í landi og leigumorðingi þaðan hafi
verið gerður út til þess að ráða hon-
um bana. Þessi kenning var meðal
annars studd orðrómi um að morðið
hafi verið fagmannlegt og Hannes
stunginn í mikilvæg líffæri. Á tíma
var því jafnvel talið að morðinginn
væri horfinn af landi brott.
Ástsjúkur morðingi
Ástæðan fyrir morðinu reyndist
hins vegar miklu nærtækari og
böndin tóku að berast að Gunnari
Rúnari, vini Guðlaugar. Hann hafði
nokkru áður vakið mikla athygli
þegar hann játaði ást sína á Guð-
laugu á YouTube. Gunnar Rúnar var
handtekinn, haldið í sólarhring en
sleppt. Þegar hann var handtekinn
í seinna skiptið var hann úrskurð-
aður í fjögurra vikna gæsluvarðhald
enda var hringurinn þá farinn að
þrengjast um hann og hann játaði að
lokum að hafa myrt Hannes.
Eftir að játning lá fyrir ræddi
Guðlaug málið við DV og hafði
meðal annars þetta að segja: „Það
var margt sem benti til þess að
hann hefði gert þetta. Svo var líka
svo margt sem benti til þess að
hann hefði ekki gert þetta eins og
til dæmis það að hann leyfði mér að
labba inn eftir að hann skutlaði mér
heim, og hann sendi mér samúðar-
skeyti á Facebook.“
Játningin kom Guðlaugu því á
óvart og hún átti ekki von á öðru
eins frá sínum gamla skólafélaga
sem Hannes hafði tekið vel og
komð fram við eins og félaga og vin.
„Hann er bara mjög mikill einfari,
saklaus og mjög almennilegur
strákur, ég hefði aldrei trúað þessu
upp á hann nema ég fengi að sjá það
svart á hvítu.“
Fjölskylda Hannesar fylgdist að
vonum náið með framvindu málsins
og þegar sannleikurinn lá loks fyrir
gat faðir hans, Helgi Vilhjálmsson,
jafnan kenndur við sælgætisgerðina
Góu, ekki leynt léttinum í samtali
við DV.is: „Hún var mjög góð, að fá
svar við þessu, og góð fyrir þjóðina
líka myndi ég halda. Þetta nátt-
úrulega er mjög slæmt mál að þetta
skuli vera til í svona litlu bæjar-
félagi,“ sagði Helgi sem átti ekki
von á þessari niðurstöðu: „Það er
búið að yfirheyra svo marga. Maður
hefur bara fylgst með þessu hjá
þessum ágætis mönnum sem rann-
saka þetta mál. Ég vil bara óska
þeim til hamingju með það hvað
þetta hefur gengið vel. Það hlýtur að
vera mjög gott fyrir alla. Þetta búið
að vera mjög erfitt.“
Vandlega skipulagt morð
Gunnar Rúnar var 23 ára gamall
þegar hann var handtekinn. Lög-
regla fór fram á geðrannsókn yfir
Gunnari Rúnari og gaf ekkert uppi
um hugsanlegar ástæður fyrir
morðinu. Þó þótti ljóst að Gunnar
Rúnar var gagntekinn af ást til
Guðlaugar og flest benti til þess að
hann vildi með ódæðinu ryðja þeirri
hindrun sem hann taldi Hannes
vera úr vegi. Á daginn kom að hann
hafði lagt á ráðin mánuðum áður en
hann lét til skarar skríða. Og guggn-
að á framkvæmdinni áður.
Mánuðina fyrir morðið hafði
Gunnar Rúnar æft japansku
bardaga íþróttina sem kennd er við
ninja en sú list gengur ekki síst út
á að læðast og fara um óséður og
beita vopnum. Gunnar lýsti því yfir á
Facebook-síðu sinni þremur dögum
áður en Hannes fannst látinn að
hann væri kominn með græna beltið
í ninjutsu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sviðsetningar eru veigamikill
þáttur í frásögn Sannara
íslenskra sakamála. Hér er
Hannes sýndur hitta manninn
sem síðar réði honum bana.
Gunnar Rúnar Sigþórsson huldi andlit sitt áður en hann veittist að Hannesi Helgasyni í skjóli nætur. Rannsókn lögreglu leiddi
í ljós að Hannes var myrtur á milli klukkan fimm og tíu að morgni sunnudagsins 15. ágúst. Eftir að hafa lagt til Hannesar með
hnífi lét Gunnar Rúnar eins og ekkert hefði í skorist og skutlaði unnustu Hannesar á morðstaðinn.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
DRAUMURINN
UM VEGINN
4. hluti
Lærisveinar
vegarins
32 sakamál Helgin 9.-11. nóvember 2012