Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 44
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 8
lifandi stemmning,
spennandi vörur,
ljúffengur matur
Náttúrulegar snyrtivörur í uppáhaldi
Ásdís hefur mikla þekkingu
og reynslu úr heilsugeiranum
þar sem hún hefur starfað í 13
ár, þar af í þrjú ár hjá Lifandi
markaði. Hún er lærður nuddari
og starfaði sem slíkur um
skeið og lærði svo heildræna
næringarfræði (holistic
nutrition) í Bauman College
í Bandaríkjunum. „Það hefur
hefur verið mjög spennandi að
taka þátt í að þróa verslunina
í Fákafeni frá grunni,“ segir
Ásdís. „Þetta er ofsalega lifandi
starf og við leggjum okkur
fram um að veita persónulega
þjónustu og góðar upplýsingar
um þær vörur sem við erum
með.“
Notar einungis náttúrulegar
snyrtivörur
„Fyrir utan lífrænt ferskt
grænmeti og ávexti, kaupi ég
alltaf allar snyrtivörur hér í
Lifandi markaði. Ég hef prófað
nánast allar vörurnar enda
finnst mér það mikilvægt til
að geta miðlað reynslunni til
viðskiptavina. Þessa dagana er
ég að prófa nýju Marokkó/Argan
olíuna sem er frábær fyrir húð
og hár.“
„Það er gaman að
hugsa um heilsuna.
Við viljum skapa
umhverfi þar sem er
skemmtilegt að koma
að versla og borða
góðan, hollan mat.
Nú, eða bara slaka á
í sófahorninu og njóta
kaffibolla í fallegu og
kósý umhverfi.“
Arndís Thorarensen,
framkvæmdastjóri Lifandi
markaðar.
Stærsta verslun Lifandi markaðar til
þessa opnaði á dögunum í Fákafeni 11.
Úrval ferskvöru hefur verið stóraukið,
eins og grænmeti, ávextir, kjöt, fiskur,
mjólkurvörur og tilbúnir réttir til að elda
heima. Loforð Lifandi markaðar er að
selja einungis gæðavörur án óæskilegra
fyllingar- og aukefna. Vöruúrvalið
samanstendur af hreinum mat og
hreinlætis- og snyrtivörum úr heilnæmum
hráefnum sem eru að stærstum hluta
lífrænt vottaðar.
Verslanir Lifandi markaðar eru hannaðar
af Leifi Welding.
Lifandi markaður
státar af mesta úrvali
lífrænna vara á
landinu.
Ný glæsileg matvöruverslun og veitingastaður í Fákafeni
Ásdís Birna Þormar, verslunarstjóri Lifandi
markaðar í Fákafeni.