Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 46
lifandi lífsstíll 1 1. árgangur 1 2. tölublað 1 nóvember 2012 10
Mannrækt
og gleði
í matargerð
„Karlar
sem kokka“
Kokkaráð Bjössa
1. Notaðu alltaf úrvals hráefni,
hreint og aukaefnalaust.
2. Gott salt og rétt notkun á sýru
(edik, sítrónusafa, límónusafa)
dregur fram besta bragðið
í matnum.
3. Alltaf að smakka á meðan
þú ert að elda.
4. Leyfðu kjötinu /grænmetinu að
steikjast á pönnunni eða grillinu í
góða stund áður en byrjað er að
hræra og hreyfa við því.
5. Þurrkrydd skal notað í byrjun
eldamennskunnar en ferskar
kryddjurtir í lokin.
6. Gerðu fullt af mistökum!
Það er eina leiðin til að læra.
7. Hafðu gaman af því að elda.
Settu góða tónlist á fóninn og njóttu!
„Það rann upp fyrir mér ljós á
síðasta ári, að ástríða mín væri
ekki lengur í fjármálageiranum
heldur í því fólgin að setja á
mig svuntuna í lok dags og elda
góðan mat fyrir fjölskylduna,“
segir Björn Skúlason kokkur frá
Natural Gourmet Institute í New
York. „Að elda er mín sköpun og
þar fæ ég mína útrás.“ Björn er
menntaður viðskiptafræðingur
frá Bandaríkjunum og með
meistaragráðu í stjórnunar-
sálfræði frá Essex University
í Bretlandi. Hann starfaði í
fjölmörg ár í fjármálageiranum
en ákvað að söðla um og láta
draum sinn rætast um að fara í
kokkanám.
Heilsusamleg „gourmet“
matargerð
„Það eru mörg ár síðan við hjónin
fórum markvisst að takmarka
unninn mat og leggja áherslu
á að elda allt frá grunni.“ Björn
segir þetta meðal annars ástæðu
þess að hann valdi kokkaskólann
Natural Gourmet Institute í
New York. Þar er áherslan á
heilsusamlega matargerð og
einungis unnið með lífrænt
ræktað hráefni, aðallega
grænmeti en einnig kjúkling, fisk
og egg. „Við þurfum sem þjóð að
breyta áherslunum í mataræði
okkar – að hafa kjöt í minnihluta,
en samt til staðar, en að auka
hlutfall grænmetis.“
Björn segir námið og skólann
hafa farið fram úr væntingum
sínum. „Þetta er það skemmti-
legasta sem ég hef gert. Þótt
útkoman hefði ekki verið neitt
annað en að læra að elda hollari
mat fyrir fjölskylduna mína,
þá var þetta þess virði. Ég er
hins vegar staðráðinn í að gera
eitthvað meira með þetta og mig
langar að byrja á því að miðla því
sem ég lærði.“
Matreiðslunámskeið fyrir
karla
Björn verður með sérsniðið
matreiðslunámskeið fyrir
karlmenn fimmtudaginn 15.
nóvember nk. hjá Lifandi
markaði í Hæðasmára kl. 19-
22. Námskeiðið er fyrir alla
karlmenn sem eru áhugasamir
um eldamennsku, bæði þá sem
eru að stíga sín fyrstu skref sem
og ástríðukokka sem vilja læra
eitthvað nýtt og spennandi.
Einungis verður pláss fyrir 10
þátttakendur á námskeiðinu og
mun hópurinn elda saman 2-3
gómsæta rétti frá grunni þar sem
notast er við úrvals hráefni, bæði
kjöt og grænmeti. „Þetta verður
góð kvöldstund, nokkrir strákar
að elda góðan mat, spjalla og
borða svo saman.“
Hollusta snýst um gæði
hráefnisins
„Mín hugmynd um hollustu
er ekki endilega að aðhyllast
ákveðnar stefnur í mataræði, eins
og grænmetisfæði, glútenlaust,
paleo og þar fram eftir götunum.
Málið snýst um þann einfalda
sannleika að nota gott, ómengað
og óblandað hráefni, og að nota
góð krydd, góð sölt og góðar
olíur,“ segir Björn. Hann leggur
áherslu á að elda allt frá grunni
og nota hreint, óunnið hráefni
og sneiða hjá allskyns auka- og
fyllingarefnum. „Hamborgari
er til dæmis ekkert óhollur ef
hann er gerður á réttan hátt.
Aðalatriðið er að nota gæða-
hráefni, að þú vitir hvaðan það
kemur og hvert innihaldið er.“
Heilsan okkar stærsti auður
„Það er frábært að láta drauma
sína rætast og starfa við það sem
maður hefur ástríðu fyrir. Ég
var að vinna í fjármálafyrirtæki
þar sem starf mitt snerist um
að hugsa um auð fólks en á
ákveðnum tímapunkti áttaði ég
mig á því að stærsti auðurinn
sem við eigum er heilsan okkar –
og heilsusamlegur lífsstíll hefst á
góðri næringu.“
Skráning á námskeiðið
„Karlar sem kokka“ er á
www.lifandimarkadur.is
Nýtt matreiðslunámskeið
hjá Lifandi markaði