Fréttatíminn - 09.11.2012, Qupperneq 66
Helgin 9.-11. nóvember 201250 tíska
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Mikið
úrval af
kjólum og
tunicum
St. 40-58
Haustförðun Lærðu að farða
Bleikir berjalitir vinsælir í haustförðuninni
Heiðdís Lóa förðunarfræðingur segir að fjólubláir og bleikir berjalitir séu mjög vinsælir í haust,
hvort sem það eru augnskuggar, kinnalitir eða varalitir. Hún sýndi Fréttatímanum dæmi um fall-
ega haustförðun sem allir ættu að geta gert.
Húðin: „Fyrst notaði
ég Base Prep á húðina,
en það er grunnur
undir farðann. Hann
heldur farðanum á,
jafnar út húðlitinn og
gefur húðinni ljóma.
Næst notaði ég Matt
Foundation, matt meik
sem hylur vel. Það
skiptir öllu máli að
nota meik sem hentar
þinni húðgerð. Ég setti
hyljara undir augu og
aðeins ofan á augn
lok. Endaði svo á að
nota brúnan kinnalit,
en hann notaði ég til
þess að fá náttúrulega
skyggingu í húðina.“
Augu: „Ég byrjaði
á því að setja ljósan,
mattan augnskugga
yfir allt augnlokið. Það
er hægt að nota hvaða
ljósa augnskugga sem
er. Næst setti ég gyllt
an augnskugga frá og
með miðju augnlokinu
og einnig í augnkrók
inn. Að lokum setti ég
skyggingu með plómu
fjólubláum augnskugga
í enda augnloksins. Ég
notaði hreinan bursta
og strauk yfir til þess
að blanda litunum að
eins saman.“
Augabrúnir: „Tri Bow
colour er litur sem ég
notaði í augabrúnirnar.
Í því eru þrír litir; einn
ljós, brúnn millilitur
og svartur. Í þessari
förðun notaði ég milli
litinn.“
Varir: „Ég vildi hafa
varirnar bleikberjalit
aðar og setti fyrst vara
blýant sem heitir Ma
genta og svo varalitinn
Rebel yfir. Ef að maður
setur mikið af honum
þá verður hann mikið
fjólublárri og dekkri,
en ef maður setur lítið
þá verður hann meira
bleikur. Einnig finnst
mér flott að dúbba bara
pínkulítið af honum á
og setja svo varasalva
yfir.“
Vörurnar sem Heiðdís
notaði í förðuninni:
• Base Prep frá Make Up Store.
• Matt Foundation frá Make Up Store.
• Cover all mix hyljari frá Make Up
Store.
• Kinnalitur: Harmony frá M.A.C.
• Augnskuggar: Vanilla, Make Up
Store og Wood Winked, Nocturnelle
M.A.C.
• Augabrúnir: Tri Brow Colour, Make
Up Store og Brow set fix clear, Make
Up Store.
• Maskari: Drama Make Up Store.
• Varablýantur: Magenta M.A.C.
• Varalitur : Rebel M.A.C.
frábært Hár HárgreiðsLubók Írisar
Hvernig á að gera flókna
hárgreiðslu á fljótlegan hátt
b ókin frábært hár sem hárgreiðslumeistarinn Íris Sveinsdóttir kom með á markað seint í síðasta mán
uði hefur fengið gríðarlega góðar undir
tektir og er þetta bók sem er alveg tilvalin í
jólapakkann í ár. Íris segir að slíka bók hafi
vantað á íslenskan markað, þar sem fjallað
er um spennandi hárgreiðslur í máli og
myndum ásamt mikilvægum gullkornum
um hvernig best sé að meðhöndla hárið.
Íris heimsótti Fréttatímann í vikunni
og sýndi hvernig hægt er að gera flókna
greiðslu á fljótlegan og auðveldan hátt.
Aðferð
Flestir kunna að binda venju
legan hnút og þetta er
ekkert annað. Fyrsti hnúturi
nn er bundinn upp á
kollinum við skiptinguna og
svo er hári fyrir neðan
fyrsta lokkinn bætt við og sa
meinað lokkunum fyrir
ofan og bundið aftur. Þetta e
r síðan gert koll af kolli
alveg niður í hnakka. Hnýtið
eins á hinni hliðinni. Í
þessu tilfelli voru settar tvæ
r hnúta brautir.
Síðan er hárið sett í hliðarta
gl og túperað létt og
bundið í snúð. Gott er að not
a gel sem harðnar ekki í
hárið svo að það haldist slét
t og fallegt og ýfist ekki.
Frábær greiðsla fyrir öll tæk
ifæri.