Fréttatíminn - 09.11.2012, Blaðsíða 74
58 bíó Helgin 9.-11. nóvember 2012
Wac-
howski-
systkinin
lögðu líf
og sál í
Cloud
Atlas og
gerðu
hana af
ástríðu
og hug-
sjón.
Cloud AtlAs WAChoWski-systkinin reynA hið ómögulegA
s káldsagan Cloud Atlas kom út árið 2004. Í henni hrærir höfundurinn Da-vid Mitchell saman öllum mögulegum
skáldskapargreinum í flókinn og marglaga
vísindaskáldskap sem teygir sig frá ströndum
Kyrrahafsins árið 1849 til framtíðarinnar,
nánar tiltekið ársins 2144. Persónur renna
sundur og saman og sjónarhornið færist á
milli ólíkra sögusviða og tímaskeiða. Sögu-
þráðurinn er því vægast sagt flókinn og ekki
verður gerð tilraun til þess að rekja hann
hér. Sjón er líka sögu ríkari og ekki þarf að
deila um að með Cloud Atlas býður þríeykið,
Tom Tykwer, Lana og Andy Wachowski upp á
magnað sjónarspil.
Þau þykja hafa teflt ansi djarft með því að
ráðast í gerð Cloud Atlas og stóru kvik-
myndaverin héldu að sér höndum og vildu
ekki veðja fé sínu á myndina. Cloud Atlas
er því sjálfstæð mynd og ein sú dýrasta í
sögunni sem flokkast sem slík. Hún er fjár-
mögnuð af óháðum aðilum að því undan-
skildu að Warner Bros lagði til 15 milljónir
dollara til þess að tryggja sér dreifingarrétt-
inn á myndinni í Bandaríkjunum og víðar.
Wachowski-systkinin lögðu líf og sál í
Cloud Atlas og gerðu hana af ástríðu og hug-
sjón og hafa látið hafa eftir sér að þeim hafi
verið alveg sama þótt myndin myndi ekki
skila hagnaði. Slíkur var ákafinn í að gera
hið ómögulega og kvikmynda söguna.
Cloud Atlas er sögð kanna hvernig gjörðir
einstaklinga hafi áhrif á líf annarra í fortíð,
nútíð og framtíð. Hvernig sál morðingja þró-
ast yfir í hetju og hvernig góðverk bergmálar
í gegnum aldirnar og endar með því að verða
kveikjan að byltingu.
Þessu flókna samspili fortíðar, nútíðar og
framtíðar er ekki síst komið til skila með því
að láta sömu leikarana leika mörg hlutverk
og túlka persónur á öllum sögusviðunum.
Tykwer og Wachowski-systkinin fengu
einvala lið leikara til liðs við sig og þar ber
helstan að nefna Tom Hanks en almennileg
hreyfing komst ekki á framleiðslu Cloud
Atlas fyrr en Hanks sló til. Í öðrum mikil-
vægum hlutverkum eru ekki ómerkari leik-
arar en Halle Berry, sá frábæri Breti Jim
Broadbent og Hugo Weaving sem er sjaldan
langt undan þegar Wachowski-systkinin
búa til bíó. Hann setti mark sitt eftirminni-
lega á Matrix sem Agent Smith og var ekki
síðri í hlutverki byltingarmannsins V í V for
Vendetta þótt andlit hans væri hulið grímu
alla myndina.
Cloud Atlas var frumsýnd á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Toronto í byrjun sept-
ember og var heldur betur vel tekið en að
lokinni sýningu stóðu frumsýningargestir
í tíu mínútur og klöppuðu myndinni og að-
standendum hennar lof í lófa. Gagnrýnendur
hafa hins vegar skipst í tvo flokka. Sumir
hrósa myndinni í hástert á meðan öðrum
finnst lítið til koma. Reynsluboltinn Roger
Ebert er í fyrri hópnum og hefur ausið
myndina lofi. Flókinn söguþráðurinn þykir
líklegur til þess að standa í bandarískum
bíógestum en að sama skapi má veðja á að
íslenskum bíóglápurum og öðrum í Evrópu
falli myndin vel í geð.
Cloud Atlas er án efa ein áhugaverðasta kvikmyndin sem sýnd verður á þessu ári. Myndin
byggir á samnefndri skáldsögu eftir David Mitchell og sjálfsagt er engu logið þegar sagt er að
fáar bækur séu síður til þess fallnar að kvikmynda. Wachowski-systkinin, sem þekktust eru
fyrir Matrix-þríleikinn, létu þetta þó ekki aftra sér, skrifuðu handrit upp úr bókinni og fengu
félaga sinn Tom Tykwer, leikstjóra Run Lola Run, til þess að leikstýra. Afraksturinn er frum-
sýndur á Íslandi um helgina.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Flókin flétta fortíðar og framtíðar
Jim Broadbent og Tom Hanks í tveimur af mörgum hlutverkum sínum í Cloud Atlas.
Frumsýnd gíslAtAkAn í teherAn
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck þykir líklegur til þess að
blanda sér í óskarsverðlaunaslaginn með nýjasta leikstjórnarverk-
efni sínu, Argo. Hér hverfur Affleck aftur um rúm 30 ár og segir
sanna sögu, sem er lyginni líkust, og átti sér stað eftir að íranskir
uppreisnarmenn hertóku bandaríska sendiráðið í Teheran þann 4.
nóvember árið 1979.
Sex sendiráðsstarfsmönnum tókst að komast undan og fela sig
í sendiráði Kanada. Talið var víst að mennirnir yrðu teknir af lífi ef
uppreisnarmennirnir hefðu hendur í hári þeirra og því var djarfur
björgunarleiðangur skipulagður í snatri.
FBI-menn voru sendir til Írans, dulbúnir sem kvikmyndagerðar-
menn, með það fyrir augum að koma sendiráðsmönnunum undan
og allt var lagt undir í þeim blekkingarleik. Affleck fer sjálfur með
aðalhlutverk myndarinnar og hefur sér til fulltingis eðalmann-
skap á borð við Bryan Cranston, John Goodman, Alan Arkin, Tate
Donovan, Victor Garber og Clea Duvall.
Affleck í Írak 1979