Fréttatíminn - 09.11.2012, Qupperneq 80
síðustu sýningar:
Laugardaginn 10. nóvember kL. 20 – Örfá sæti Laus næstsíðasta sinn
Laugardaginn 17. nóvember kL. 20 – Örfá sæti Laus aLLra síðasta sinn
miðasaLa í HÖrpu og á www.Harpa.is – miðasÖLusími 528 5050
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR!
„Óperan hefur unnið enn einn sigurinn og sannarlega
sinn stærsta í Hörpu til þessa“
– Gunnar Guðbjörnsson, Smugumenning
„Jóhann Friðgeir var alveg magnaður! Hulda Björk
Garðarsdóttir var stórkostleg… Viðar Gunnarsson
sömuleiðis… Elsa Waage vann leiksigur, söngurinn
hástemdur og litríkur… Anooshah Golesorkhi söng
einstaklega fallega.“
– Jónas Sen, Fréttablaðið
Söngvararnir...öll með tölu framúrskarandi!
– Gunnar Guðbjörnsson, Smugumenning
„Kom mér ánægjulega á óvart. Íslenska óperan er komin
heim!“ – Hlín Agnarsdóttir, Djöflaeyjan
„Leikmynd og lýsing Gretars Reynissonar og Björns
Bergsteins algerlega frábær, makalaust flott.
– Helgi Jónsson, Víðsjá
„Hljómsveitin var frábær.“
– Jónas Sen, Fréttablaðið
„Sem endranær brilleraði kór ÍÓ“
– Ríkarður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Mikil upplifun, frábær tónlist - og vel flutt.“
– Greipur Gíslason, Morgunútvarpið Rás 1
„Hulda Björk var algjörlega frábær...Elsa Waage var
gríðar lega sterk...Viðar Gunnarsson virkilega flottur.“
– Helgi Jónsson, Víðsjá
Nokkrar umsagnir áhorfenda á netmiðlum:
„Hreint út sagt frábær sýning. Stórkostlegur söngur.“ – Eiður Guðnason
„Það var engu líkara en hlið himnaríkis hefðu opnast.“ – Sigríður Ingvarsdóttir
„Stórkostleg sýning. Söngur, ljós og umgjörð á heimsmælikvarða.“ – Jóhanna Pálsdóttir
Útgefandinn að störfum á Sunnlenska bókakaffinu. Alltaf með svuntuna tilbúinn til
þess að skenkja gestum svart og sykurlaust. Ljósmynd/Davíð Þór.
B jarni Harðarson stendur vakt-ina á Bókakaffinu en lætur sig ekki muna um að gefa einnig
út bækur og skrifa þær ef svo ber
undir. „Ég sinni þessu bara meðfram
öðru,“ segir Bjarni um bókaútgáfuna
Sæmund. „Ég skutlast mikið með
bækurnar á eigin bíl og sendi þær í
pósti.“ Fjarlægðin frá höfuðborginni
truflar bókaútgefandann á Selfossi
því lítið. „Það má líka segja að það
sé efnahagslega hagkvæmt að vera
hérna þar sem húsnæði er ódýrara.“
Árið 2009 sendi Bjarni frá sér sína
fyrstu bók, Svo skal dansa. Bókinni
var vel tekið en þar var á ferðinni
skáldsaga úr raunveruleikanum sem
hófst seint á 19. öld. Bjarni fylgdi
bókinni eftir með Sigurðar sögu fóts
ári síðar og nú gefur hann út síðna
Alþingismaðurinn fyrrverandi, Bjarni Harðarson,
unir hag sínum vel á Selfossi þar sem hann rekur
Sunnlenska bókakaffið og sinnir bókaútgáfu með-
fram öðru daglegu amstri. Hann gefur út þrjár
bækur á komandi vertíð. Þar af er ein þeirra eftir
hann sjálfan, heimildaskáldsagan Mensalder.
Bjarna er tamt að horfa til fortíðar í skrifum sínum
enda finnst honum meira að segja 19. öldin full
nútímaleg fyrir sinn smekk.
Bjarni Harðarson Festist í Fortíðinni
Ég er svo
gamaldags
að mér
finnst 19.
öldin helst
til nútíma-
leg.
Ritstörfin eru eins og brennivínið
þriðju skáldsögu, Mensalder. Og
sem fyrr heldur Bjarni sig í fortíð-
inni og segir nú sögu fátæks bónda
austur í Holtum og ástkonu hans
sem beið Mensa síns í þrjátíu ár.
Mensalder Raben Mensaldersson
var fæddur 1889 og lést 1980.
„Þetta er eins og með brenni-
vínið og pólitíkina. Það er erfitt að
hætta í þessu,“ segir Bjarni þegar
hann er spurður hvað keyri hann
áfram við ritstörfin. „Og mér finnst
skemmtilegast að grúska í fortíð-
inni. Ég lokast einhvers staðar af
þarna og er svo gamaldags að mér
finnst 19. öldin helst til nútímaleg.“
Bjarni segir áhugavert að skoða
fólk sem fæðist inn í frumstætt
samfélag fortíðar og stóð síðan allt
í einu frammi fyrir veruleika sem
var því algerlega framandi. „Ég er
líka með ólæknandi ferðadellu og
hef mikið ferðast um lönd þriðja
heimsins og þar hittir maður eigin-
lega fyrir íslensku 19. aldar menn-
ina. Maður sér þá ekki hérna leng-
ur. Þarna er fólk í frumstæðum
heimi en er samt með gsm-síma.“
Bjarni skrifaði Mensalder að
mestu leyti í Pakistan. Við það
sem hann kallar kjöraðstæður. „Ég
skrifaði fyrsta uppkast frá upphafi
til enda á fimm vikum í Pakistan.
Það er sérlega gott að skrifa þarna
vegna þess að þarna er varla
nokkur maður enskumælandi og
þá verður manni glettilega mikið
úr verki. Ég var bara þarna með
hjartahreinum sonum spámanns-
ins. Það er ekki til betra fólk og
það lagar besta te í heimi.“
Bjarni gefur að þessu sinni
einnig út ljóða- og listaverkabókina
Tuttugu þúsund flóð, eftir Þorlák
Karlsson og Soffíu Sæmunds-
dóttur, og barnabókina Kattasam-
særið eftir Guðmund S. Brynjólfs-
son. Bókin er sögð fyrir kattavini
á öllum aldri og þótt Bjarni haldi
ekki ketti sjálfur þá heldur hann til
í kattmörgu hverfi og þeir ferfættu
kíkja stundum við á Bókakaffinu.
„Hér eru kettir allt um kring og við
höfum átt í mjög ánægjulegu sam-
starfi við Kattholt sem fær 10% af
smásöluverði Kattasamsærisins og
veitir víst ekki af á þeim bænum.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
KR./KG
2398
SvínaKjöt
í chow mein SóSu,
KR./KG
2398
nautaKjöt
í DReKaSóSu,
KR./KG
1998
eGGjanúðluR
með KjúKlinG oG
GRænmeti
300 g skammtur
og hrísgrjón
fylgja með
719,-
300 g skammtur
og hrísgrjón
fylgja með
719,-
300 g skammtur
599,-
Austurlenskur matur
alla daga milli kl. 17-20
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
64 menning Helgin 9.-11. nóvember 2012