Fréttatíminn - 09.11.2012, Page 82
Leikhús Bernd OgrOdnik snýr aftur
Gamli maðurinn
aftur í Þjóðleikhúsið
Brúðusýning Bernd Ogrodnik,
Gamli maðurinn og hafið (eftir
Hemingway), snéri aftur á fjalirnar
í vikunni. Næsta sýning er í Þjóð-
leikhúsinu á sunnudag en verkið var
frumsýnt á Listahátíð í vor og fékk
prýðisdóma í Fréttatímanum. Þetta
er ljóðræn og ægifögur sýning um
gamlan mann, lítinn bát, stóran fisk
og óendanlegt hafið. Egill Ólafsson
og Valgeir Skagfjörð ljá sýningunni
raddir sýnar.
Bernd Ogrodnik hefur að sögn
haft í ýmsu að snúast síðan í vor.
Hann frumsýndi Pétur og úlfinn í
Kanada og nýlega sýndi hann þá
sýningu í samvinnu við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Hörpu.
Gamli maðurinn og hafið er sem
fyrr segir sýnt í Þjóðleikhúsinu og
eins og gagnrýnandi Fréttatímans
orðaði það: Sýning sem fólk ætti
ekki að missa af.
Gamli maðurinn og Bernd Ogrodnik.
fjórtán ára einLeikur um hOmma aftur á fjaLirnar
Ennþá erfitt fyrir fólk
að koma út úr skápnum
Leikhópurinn Artik sýnir Hinn fullkomna jafningja í Norðurpólnum. Verkið var samið af Felix
Bergssyni og upphaflega sýnt árið 1999 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Verkið fjallar á
opinskáan hátt um samkynhneigð og vakti mikla athygli á sínum tíma hér á landi sem erlendis.
V ið skáluðum í kampavíni á Trafalgartorgi og innsigluðum þannig samstarfið,“ segir Jenný
Lára Arnórsdóttir leikstýra sem ásamt
vini sínum og fyrrum samnemanda,
Unnari Geir Unnarssyni, skipar leik-
hópinn Artik. Leikhópurinn var stofn-
aður fyrr í haust en bæði luku þau nýlega
námi í leiklist og leikstjórn við ASAD
leiklistarskólann í London. Þau sýna nú
fjórtán ára gamalt, íslenskt verk um sam-
kynhneigð á Norðurpólnum.
„Við sáum Ísland alltaf fyrir okkur
sem framtíðarvettvang og samstarf lá
svo vel við þar sem við vorum samtíða í
skólanum og komum heim á sama tíma.
Unnar var svo búinn að finna verkið, en
það stendur honum mjög nærri þar sem
hann var sviðsmaður á því fyrir fjórtán
árum svo er hann líka samkynhneigður,“
segir Jenný Lára.
Árið 1999 frumsýndi leikhópurinn Á
senunni upphaflega einleikinn. Verkið er
eftir Felix Bergsson og var leikstýrt af
Kolbrúnu Halldórsdóttur. Það fjallar um
samkynhneigð og vakti mikla athygli á
sínum tíma og kveikti upp umræðu um
málefni samkynhneigðra, hér á landi
og erlendis. En á þetta verk jafn vel við
í dag?
„Já algjörlega,“ segir Unnar og bætir
við að fólki þyki almennt mjög gaman
að sjá hve langt við séum komin á jafn
skömmum tíma. „Það er mjög hollt að
líta til baka þó að núna sé þetta bara eins
og hvert annað leikrit þá var það allt ann-
að og heilmikið mál á sínum tíma. Fólk
hugsar alveg, „guð minn góður, var þetta
virkilega svona. Þetta er því holl áminn-
ing.“ Hann segir að höfundurinn, Felix
Bergsson, hafi fengið símtöl á næturnar
frá kirkjunnar mönnum. „Þeir fordæmdu
hann og sýninguna.“
Unnar segir að þrátt fyrir að samfé-
lagið teljist framarlega í málefnum sam-
kynhneigðra í dag beri margir samkyn-
hneigð sína í hljóði. „Fólk gerir sér ekki
grein fyrir hve mikið mál það er að koma
út úr skápnum, því þó að flestum í sam-
félaginu standi nokkurn veginn á sama
þá fylgir því ákveðin togstreita og það
reynist mörgum mjög erfitt. Þess vegna
á verkið ennþá við.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Jenný og Unnar voru samtíða í ASAD leiklistarskólanum í London. Þau sáu Ísland alltaf fyrir sér sem framtíðarvettvang og innsigluðu framtíðarsamstarf með
kampavíni á Trafalgar.
Guð minn
góður
var þetta
svona.
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 10/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 2/12 kl. 14:00 25.sýn Sun 30/12 kl. 14:00 31.sýn
Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 26.sýn Sun 30/12 kl. 17:00 32.sýn
Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn Lau 8/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 13:00 33.sýn
Lau 17/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 16:00 34.sýn
Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Sun 9/12 kl. 14:00 27.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn
Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 28.sýn Sun 13/1 kl. 16:00
Sun 25/11 kl. 14:00 23.sýn Lau 29/12 kl. 14:00 29.sýn
Sun 25/11 kl. 17:00 24.sýn Lau 29/12 kl. 17:00 30.sýn
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fös 9/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 18.sýn
Lau 10/11 kl. 19:30 11.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 15.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 19.sýn
Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 16.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 20.sýn
Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 17.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 13.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 22.sýn
Lau 10/11 kl. 19:30 14.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 18.sýn Fim 6/12 kl. 19:30 23.sýn
Fim 15/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 24/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 8/12 kl. 19:30 24.sýn
Fös 16/11 kl. 19:30 15.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 20.sýn
Lau 17/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 21.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn
Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30
Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi!
Ástin (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 10/11 kl. 22:00 Sun 11/11 kl. 20:00
Ólafía Hrönn á trúnó í Þjóðleikhúskjallaranum
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Sun 11/11 kl. 19:30 Lau 17/11 kl. 17:00
Mið 14/11 kl. 19:30 Sun 18/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins örfáar sýningar í nóvember!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 24/11 kl. 11:00 Lau 1/12 kl. 11:00 Lau 8/12 kl. 11:00
Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 13:00 Lau 8/12 kl. 13:00
Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 14:30 Sun 9/12 kl. 11:00
Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00 Sun 9/12 kl. 12:30
Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30
Miðasala hafin á vinsæla aðventuleikrit Þjóðleikhússins - og miðarnir rjúka út!
Bastarðar - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Sun 11/11 kl. 20:00 Fös 16/11 kl. 20:00 lokas
Lau 10/11 kl. 20:00 Fim 15/11 kl. 20:00
Ný stórsýning frá Vesturporti, loks á Íslandi. Aðeins sýnd í 3 vikur!
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Lau 10/11 kl. 19:00 í Hofi Fim 22/11 kl. 20:00 aukas Lau 1/12 kl. 19:00 11.k
Lau 10/11 kl. 22:00 í Hofi Fös 23/11 kl. 20:00 aukas Sun 2/12 kl. 20:00 aukas
Lau 17/11 kl. 19:00 9.k Lau 24/11 kl. 19:00 10.k
Lau 17/11 kl. 22:00 aukas Fös 30/11 kl. 20:00 aukas
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Sýnt í Hofi 1, 2 og 10 nóvember
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Sun 18/11 kl. 14:00 15.k Sun 25/11 kl. 14:00 17.k Sun 9/12 kl. 14:00
Lau 24/11 kl. 14:00 16.k Sun 2/12 kl. 14:00 Sun 16/12 kl. 14:00
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Rautt (Litla sviðið)
Sun 18/11 kl. 20:00 22.k Fim 22/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Þri 20/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00 Lau 1/12 kl. 20:00
Mið 21/11 kl. 20:00 Þri 27/11 kl. 20:00 Sun 2/12 kl. 20:00
Margverðlaunað meistaraverk. Aukasýningar í nóvember og desember
Gullregn (Nýja sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 1/12 kl. 20:00 aukas
Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k
Mið 14/11 kl. 20:00 aukas Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k
Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Fim 29/11 kl. 20:00 13.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas
Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Fös 30/11 kl. 20:00 14.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fös 7/12 kl. 20:00 14.k
Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Lau 8/12 kl. 20:00 15.k
Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Fös 14/12 kl. 20:00 16.k
Fim 15/11 kl. 20:00 aukas Fim 29/11 kl. 20:00 12.k Lau 15/12 kl. 20:00
Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 18/11 kl. 13:00 lokas
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Sun 18/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 6.k
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Á sama tíma að ári – sýnt á Akureyri
66 leikhús Helgin 9.-11. nóvember 2012