Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 84

Fréttatíminn - 09.11.2012, Síða 84
 Í takt við tÍmann atli Óskar Fjalarsson Festist í tölvuleik í 2-3 daga Atli Óskar Fjalarsson er tvítugur nemi í MH sem vakti athygli fyrir leik sinn í kvikmyndinni Óróa. Hann var að enda við að leika í þriðju þáttaröð Hæ Gosa og eftir áramót mun hann leika í nýrri kvikmynd Baldvins Z. Atli býr ásamt tveimur félögum sínum í íbúð í Breiðholti og þar er píluspjald á veggnum og fúsballborð í stofunni. Staðalbúnaður Ég er heftur þegar kem- ur að tísku. Ég á einar gallabuxur sem ég geng eiginlega alltaf í, þetta eru bara mínar buxur. Svo á ég kannski tuttugu boli og tvær peysur og ég fer í það sem er hreint. Mér er alveg sama. Ef ég er að fara eitt- hvað fínna fer ég í skyrtu og kannski jakkaföt. Timber- land-skórnir mínir eru alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég geng oft með hvíta og svarta ullarhúfu þegar það er kalt úti. Hún er svolítið plebbaleg en mér er eigin- lega alveg sama. Hugbúnaður Uppáhaldsbarinn minn er Lebowski Bar og ég fer oft þangað. Svo finnst mér voða fínt á English Pub og líka á Faktorý. Annars fer það bara eftir stemningu hvert við kíkjum. Ég drekk ekki kaffi svo það væri bara vandræðalegt að fara á kaffihús. Ég fer svolítið í bíó. Þó ég búi nálægt Álfa- bakka reyni ég að fara sem oftast í Egilshöll. Þar eru bestu sætin og bestu gæðin á myndinni og hljóðinu. Ég fer stundum í pool en svo er ég líka með fúsballborð og píluspjald hér heima svo maður þarf ekki að fara langt. Vélbúnaður Ég er með iPhone, borð- tölvu og svo var ég að kaupa mér iPad sem er alger snilld. Það er frábært að grípa í hann þegar maður situr fyrir framan sjónvarp- ið. Mér finnst rosa gaman að prófa ný öpp, aðallega einhverja leiki sem er gott að grípa í þegar maður hefur ekkert að gera. Ég er virkur á Facebook og Red- dit. Svo er ég nýbúinn að uppgötva Instagram. Ann- ars spila ég alla tölvuleiki, allt frá Tetris upp í risa stóra role play-leiki. Það fer bara eftir því hvernig stemningu maður er í. Við strákarnir höfum alveg tekið 2-3 daga törn í Mine Craft. Aukabúnaður Ég er sjálfur mjög latur við að elda en strákarnir eru oft í að draga mig í að elda. Við erum með það sem við köll- um framandi fimmtudaga. Þá eldum við mexíkóskan mat og fáum okkur kannski Corona með. Þeir eru orðnir góðir að finna upp á nýjum mexíkóskum mat til að prófa. Við reynum að halda ísskápnum fullum en við búum við hliðina á Wilsons svo það er oft pöntuð pítsa. Ég á ekki bíl svo það er bara stóri guli, gula limman. Áhugamál mín eru tónlist og tölvuleikir og þegar ég fer á bar panta ég mér oftast bjór en stundum viskí. Í fyrra fór ég á kvikmyndahá- tíðir með Óróa og það var ógeðslega gaman. Kanada var mjög heillandi land og það var líka mjög gaman í Lübeck í Þýskalandi. Atli Óskar á 2.495 vini á Facebook. Ljósmynd/Hari 5 nýjar barnabækur Fjársjóðskistan: Fimm mínútna ævintýri. Glæsileg ný bók með 18 sígildum ævintýrum. Ævintýrin eru passlega löng svo hægt er að lesa þau á um fimm mínútum. Vönduð myndskreyting gerir þetta sagnasafn að eigulegri gjöf. Blaðsíðufjöldi: 186. 13 þrautir jólasveinanna Bráðskemmtileg þrauta- og litabók fyrir krakka á öllum aldri. Grýla stingur af til byggða og lesandi bókarinnar hjálpar sveinunum að ná í skottið á henni. En það er margt sem kemur á óvart þá loksins þegar sveinarnir finna hana. Ég get ekki sofið! Bók fyrir háttinn Huginn Þór Grétarsson Kristina Iovcheva-Kriss N ý útgáfa Þetta er ný útgáfa af bókinni um kisu litlu sem getur ekki sofið. Fyrsta útgáfa var litabók. Í þessari útgáfu hefur verið lokið við að lita myndirnar svo sagan sjálf fái notið sín til fulls. www.odinsauga.com www.facebook.com/odinsauga „Þetta er ótrúlega flott ungt fólk og það var frábært að vinna með því,“ segir Ragnar Bjarnason stórsöngvari. Eftir helgi kemur út ný dúettaplata Ragga sem hann vann með Jóni Ólafssyni. Á plötunni syngur Raggi dúetta með fjölmörgum þekktum söngvurum og söngkonum sem flest eru af yngri kynslóðinni. Söngkonurnar eru Lay Low, Eivör Pálsdóttir, Sigríður Thorlacius og Sigga Beinteins. Og söngvararnir eru Björn Jörundur, Helgi Björns, Magni Ás- geirsson og Svavar Knútur. Auk þeirra syngur Sveppi með Ragga. Auk þeirra sem áður eru nefndir syngur Raggi lagið Froðan með Jóni Jónssyni en það hefur verið spilað talsvert í útvarpi að undanförnu. Lagið er sem kunnugt er eftir Geira Sæm og kom út 1988. „Við pabbi hans erum náttúrlega gamlir félagar. Hann byrj- aði að dansa með okkur í Þórskaffi og var frábær dansari. Ég held að hann sé ennþá að dansa,“ segir Raggi um Sæma rokk, föður Geira. „Geiri er líka frábær strákur og söngvari,“ segir Raggi.  ný dúettaplata ragga Bjarna Frábært að vinna með unga fólkinu Raggi og dúettarnir 1. Froðan – Raggi og Jón Jónsson 2. Syngdu fyrir mig – Raggi og Eivör 3. Can’t Walk Away – Raggi og Björn Jörundur 4. Kóngur einn dag – Raggi og Svavar Knútur 5. Á puttanum – Raggi og Sigga Beinteins 6. Fjólublátt ljós við barinn – Raggi og Magni 7. Lífið er lag – Raggi og Sigríður Thorlacius 8. Ég er ekki alki – Raggi og Sveppi 9. Betri bíla, yngri konur – Raggi og Helgi Björns 10. Þannig týnist tíminn – Raggi og Lay Low Þrjár kynslóðir tónlistarmanna. Geiri Sæm, sem samdi og flutti Froðuna árið 1988, Jón Jónsson og Raggi Bjarna sem hafa nú endurgert lagið fyrir dúettaplötu Ragga. Ljósmynd/Hari 68 dægurmál Helgin 9.-11. nóvember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.