Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 8
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
9
2
0
3
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
SPARNEYTNIR
OG VANDAÐIR
www.nissan.is
100% RAFKNÚINN
NISSAN LEAF
NISSAN QASHQAI
4x4, DÍSIL
NISSAN JUKE
ACENTA, DÍSIL
Komdu og kynntu þér kosti LEAF
Verð: 4.990 þús. kr.
Verð: 3.690 þús. kr.
GE bílar / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622
Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070
IB ehf. / Selfossi / 480 8080
NÝR DÍSIL
5,1
l/100 km
4,2
l/100 km
0,0
l/100 km
500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI
FYLGIR NÝJUM QASHQAI
KAUPAUKI: Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB
Menning BókMenntaverðlaun tóMasar guðMundssonar veitt
Bjarki Karlsson verðlaunaður
Bjarka Karlssyni voru
afhent Bókmenntaverð-
laun Tómasar Guð-
mundssonar í Höfða í
gær. Verðlaunin hlaut
Bjarki fyrir ljóðahand-
rit sitt Árleysi alda. Alls
bárust fjörutíu og sex
handrit að þessu sinni.
Í umsögn dómnefndar
segir að verðlauna-
handritið sé óvenju vel
heppnuð blanda af húmor, fornum
bragarháttum og samfélagsádeilu
og snúist í rauninni í kringum leik
með gamla bragarhætti
og að tilfinningin sé sú að
hin mikla þekking sem
höfundur hafi á þeim hafi
knúið hann til að nota
þá – og ekki síst að miðla
þeim til yngri eyrna. Þá
sé skýrt að höfundur hafi
framúrskarandi vald á
bragarháttunum og hafi
náð að flétta það vald
saman við skarpa sam-
félagsádeilu og slynga orðaleiki
sem gefi handritinu öllu einstakt
gildi og dýpt.
Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti
borgarstjórnar, veitti verðlaunin
sem nema sex hundruð þúsund
krónum. Verðlaunahafinn fékk
einnig áritað viðurkenningarskjal
frá borgarstjóra.
Bjarki er doktorsnemi í íslenskri
málfræði og bragfræði við Háskóla
Íslands og vinnur að rannsókninni
Bundið mál á vestur-norrænu mál-
svæði á síðari öldum og er hún
styrkt af Rannsóknarsjóði Háskóla
Íslands. Uppheimar gefa verðlauna-
verkið út og komu fyrstu eintök úr
prentun í gær, fimmtudag. -dhe
Bjarki Karlsson.
HIV-smitaðir á síðustu árum
Ár Gagnkynhneigðir Fíkniefnaneytendur Samkynhneigðir
2012 9 6 5
2011 8 13 1
2010 7 10 5
2009 8 5 2
2008 6 0 2
Einn blóðþegi greindist árið 2011.
Heimild: Embætti landlæknis
Með því að tala um ólíka hópa með HIV –
hvort sem það eru hommar, sprautufíklar eða
innflytjendur – fer fólk í öðrum hópum að
upplifa sig sem öruggt.
HeilBrigðisMál sMitáHætta saMkynHneigðra er ennþá Meiri
Fleiri gagnkynheigðir
HIV-smitaðir
Í fyrsta sinn eru fleiri gagnkynhneigðir smitaðir af HIV en
samkynhneigðir en 303 einstaklingar hafa greinst með HIV á
Íslandi. 39 þeirra hafa látist úr alnæmi. Nýjustu lyf ná vel að
halda HIV-niðri en formaður HIV-Ísland segir að fólk megi ekki
sofna á verðinum.
Einar Þór Jónsson, formaður
HIV-Ísland, vill síður flokka
HIV-smitaða í hópa því allir
geti smitast og því þurfi allir
að vera varkárir í sínu kynlífi.
HIV gerir ekki mannamun og getur
fólk úr öllum hópum samfélagsins
smitast. Ljósmynd/Hari
HIV-smitaðir eftir hópum
Hópar Karlar Konur Samtals Hlutfall
Samkynhneigðir 111 0 111 37%
Fíkniefnaneytendur (í æð) 44 17 61 20%
Gagnkynhneigðir 51 63 114 38%
Blóðþegar 0 5 5 2%
Móðir til barns 0 1 1 0
Annað / óþekkt 4 4 8 3%
Alls 210 90 300 100%
Heimild: Embætti landlæknis. Tölur frá 31. 12.2012
þ rír einstaklingar hafa verið staðfestir með HIV smit það sem af er þessu ári. Af þeim
eru tveir innflytjendur frá Afríku og
einn Íslendingur sem er samkyn-
hneigður,“ segir Haraldur Briem, sótt-
varnalæknir hjá embætti landlæknis. Í
fyrsta sinn eru fleiri gagnkynhneigð-
ir einstaklingar HIV-smitaðir á Ís-
landi en samkynhneigðir. Haraldur
segir það í raun ekki marka sérstök
tímamót og það sé ekki ástæða til að
breyta reglum um blóðgjafir sam-
kynheigðra. „Smitáhætta samkyn-
hneigðra karla er enn mun meiri en
gagnkynhneigðra,“ segir hann og
bendir á að hlutfall samkynhneigðra
sé mun lægra og því segi fjöldatölur
ekki alla söguna. Þá vekur hann at-
hygli á að samkvæmt vísindaútttekt
á vegum Evrópusambandsins ættu
samkynhneigðir karlmenn ekki að
gefa blóð.
Árið 2010 varð mikil aukning á
fjölda fíkniefnaneytenda sem smit-
uðust af HIV eftir að deila sprautu
með öðrum. Árin þar á undan voru
nýgreindir allt frá engum og upp í 6,
árið 2010 greindust 10 fíkniefnaneyt-
endur með HIV, 13 árið 2011 og 6 á
síðasta ári.
Einar Þór Jónsson, formaður sam-
takanna HIV-Ísland, segir að vissu-
lega hafi nýgreindum í hópi sprautu-
fíkla fjölgað á undanförnum árum en
hæpið sé að flokka alltaf niður HIV-
smitaða. „Það hefur líka fjölgað í hópi
innflytjenda með auknum fjölda þeirra
hér á landi en fjölgunin hefur einnig
verið mikil meðal gagnkynhneigðra.
Með því að tala um ólíka hópa með
HIV – hvort sem það eru hommar,
sprautufíklar eða innflytjendur – fer
fólk í öðrum hópum að upplifa sig sem
öruggt. Það er fólk í samfélaginu sem
er smitað en veit ekki af því og er þess
vegna að smita aðra. Við megum ekki
sofna á verðinum. Fólk þarf að nota
smokkinn og vera meðvitað í sinni
kynhegðun,“ segir hann.
Alls hafa 39 einstaklingar látist
vegna alnæmis á Íslandi, 33 karlar og
6 konur. Að meðaltali hefur einn lát-
ist annað hvert ár úr sjúkdómnum allt
aftur til ársins 1995 þegar þrír létust.
Flestir létust úr alnæmi árið 1993, 7
karlmenn og ein kona.
Sé mið tekið af nýsmituðum á síð-
ustu árum segir Einar Þór að nýjustu
tölur bendi til þess að fækkun verði
milli ára. „Það er í raun fagnaðarefni
hversu fáir hafa greinst á þessu ári. Ég
tel að það sé að þakka mikilli fræðslu
og öflugu forvarnarstarfi fjölda aðila.
Hér á landi förum við líka með fræðslu
til nemenda í 9. og 10. bekk grunn-
skóla. Það framtak hefur vakið athygli
erlendis og fengið jákvæða umfjöll-
un,“ segir Einar Þór.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 11.-13. október 2013