Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 10
www.volkswagen.is
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
6“
á
lfl
eg
ur
, þ
ok
ul
jó
s
Volkswagen Polo
Sparar sig vel
Meðaleyðsla aðeins
5,5 lítrar á hverja 100 km
Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla, beinskiptur
Polo 1.2 bensín kostar aðeins:
2.460.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
É g er búin að taka ákvörðun og ég ætla að taka slaginn,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sem gefur kost á sér í
oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
í komandi prófkjöri. „Ég hef hugsað þetta í
nokkurn tíma og komst að þeirri niðurstöðu
að ég hafi sannarlega nógu mikið fram að
færa til að gefa kost á mér sem oddviti,“ segir
hún.
Þorbjörg Helga hefur verið borgarfulltrúi í
8 ár, frá árinu 2006. Í fjögur ár þar á undan var
hún varaborgarfulltrúi og ennfremur faglegur
ráðgjafi menntamálaráðherra í skólamálum.
„Þetta er hrikalega skemmtilegt þó fólki
finnist stjórnmál kannski vera leiðinleg. Út
á við lítur þetta út eins og við séum sífellt að
karpa en ég nýt þess að fá tækifæri til að hitta
allt þetta fólk í borginni og heyra hugmyndir
þess. Mér hefur fundist ýmis stór og mikilvæg
mál hreyfast allt of hægt innan borgarinnar
vegna stefnuleysis. Stefna borgarinnar getur
ekki verið bara „alls konar“ heldur þarf hún að
vera skýr og raunsæ,“ segir hún.
Eldri borgurum fjölgar hratt
Helstu baráttumál Þorbjargar Helgu eru bætt
gæði skólastarfs, skipulagsmál sem miða
að fjölbreyttari valkostum í íbúðahúsnæði,
gagnsæi og aðhald í fjármálum, og uppbygg-
ing í málefnum eldri borgara. „Eldri borg-
urum mun fjölga verulega á komandi árum
og þar með verða þeirra málefni stærri þáttur
í rekstri borgarinnar en árið 2050 verða þeir
25% af borgarbúum. Ég er á þeirri skoðun
að umhverfið eigi að njóta vafans í litlum og
stórum málum en að allir eigi að hafa val um
samgöngumáta. Ég vil lækka fasteignaskatta
og ég set skólamálin í fyrsta sætið. Í ár fara
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir gefur kost
á sér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík fyrir komandi prófkjör. Hún
gagnrýnir núverandi meirihluta fyrir
stefnuleysi og segir að gera þurfi skurk í
fjármálum borgarinnar. Þorbjörg Helga
setur skólamálin á oddinn og segir að
þau ættu að vera kosningamál í öllum
kosningum. Þrátt fyrir skiptar skoð-
anir innan borgarstjórnarflokks sjálf-
stæðismanna segir hún stjórnmál vera
skemmtileg og telur mikilvægt að leggja
sitt af mörkum.
Stefnir á
borgarstjórastólinn
Þó ég sé
sáttfús
þá er ég
óhrædd
við að taka
sterkar
ákvarðanir
og standa
með þeim.
Framhald á næstu opnu
10 fréttaviðtal Helgin 11.-13. október 2013