Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 21
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
22
17
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
Má bjóða þér að kynnast fjölskyldunni frá cee’d? Hún samanstendur af
cee’d og cee'd Sportswagon, sem er rúmbetri og hentar því vel þar sem
þörf er á meira rými fyrir farangur. Svo er það töffarinn í fjölskyldunni,
pro cee’d. Bílarnir eru allir einstaklega sparneytnir, eyða frá 4,1 l/100 km.
7 ára ábyrgð er á nýjum Kia cee’d líkt og á öllum nýjum Kia bílum.
Komdu við í sýningarsal Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum
okkar og kynntu þér skemmtilega fjölskyldu. Við tökum vel á móti þér.
Komdu og reynsluaktu frábærum bíl Verð frá 3.370.777 kr. 1,4 dísil, beinskiptur
180.000 kr. kaupauki
fylgir nýjum Kia cee'd - fyrstir koma fyrstir fá
Vetrardekk og 100.000 kr. eldsneytiskort
Góð fjármögnun í boði
Hiti í stýri
er staðalb
únaður í
öllum Kia
cee’d
Sparneytinn Kia cee’d
í ábyrgð til 2020
Þannig að maður
hefur engu að tapa
á því að vera með
umboðsmann en
möguleika á að
vinna.
L eikkonan Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir fer með burðarhlutverkið í Málm-
hausi, nýjustu mynd Ragnars
Bragasonar. Þar leikur hún Heru,
sveitastelpu sem tekur dauða stóra
bróður síns svo nærri sér að hún
hverfur inn í heim þungarokksins
sem hann hlustaði á.
Feigð og dauði hafa vomað nokk-
uð yfir Þorbjörgu Helgu í kvik-
myndum en hún sýndi nú síðast
lágstemmdan stórleik í Djúpinu
eftir Baltasar Kormák í hlutverki
ungrar móður sem missti eigin-
mann sinn í hafið. Þá hefur hún ný-
lokið tökum á Borgríki 2 þar sem
ætla má að hætta sé á hverju horni
í Reykjavík óttans.
Þorbjörg Helga gerir ekki mikið
úr því að þungi og drungi fylgi
verkefnavali hennar enda er það
ef til vill ekki tilfellið þegar betur
er að gáð. „Mér finnst Hera alveg
ótrúlega fjölbreyttur karakter.
Hún hefur alveg púka í sér, grín og
gleði. Þannig að mér fannst hún
als ekki bara þunglynd.Hún er
bara á vondum stað í lífínu þegar
við kynnumst henni í myndinni.
Ég væri alveg til í að gera fram-
haldsmyndina – Málmhaus 2,“
segir hún og hlær. „Þar sem Hera
er komin á betri stað og við fylgj-
umst með henni uppfylla drauma
sína.. Annars er bara gaman að fá
að takast á við sem ólíkust verk-
efni,“ segir Þorbjör Helga með
hugann við allt annað en feigð og
dauða.
Hera tekur rokkið alla leið og
málar sig stundum í framan og
Þorbjörg Helga segist hafa átt
auðvelt með að tengja við það að
maður fari í einhvers konar ham
með slíkri útlitsbreytingu. „Það er
mjög auðvelt að setja sig í annan
karakter með þetta á sér. Þetta er
náttúrlega einhvers konar stríðs-
málning og maður fer í einhvern
annan ham.“
Tapar ekki á að hafa
umboðsmann
Málmhaus var frumsýnd í síðasta
mánuði á Kvikmyndahátíðinni í
Toronto þar sem hún fékk góðar
viðtökur og nú er komið að því
að sýna hana hér heima. „Maður
er náttúrlega búinn að sjá hana
þannig að fiðringurinn er kannski
öðruvísi,“ segir Þorbjörg Helga
sem að sjálfsögðu fylgdi myndinni
til Toronto.
„En núna er maður náttúrlega
að fara að horfa á hana með öllum
þeim sem tóku þátt í að gera hana,
þannig að það verður gaman að
frumsýna og geta loksins talað um
hana við alla. Það er allt öðruvísi
tilfinning að horfa á hana með öll-
um sem komu að því að gera hana.“
Eftir að Málmahus var frum-
sýnd í Kanada komust bæði
Ragnar og Þorbjörg á samning hjá
bandarísku umboðsskrifstofunni
APA. Þorbjörg segist þó ekki vera
komin í stellingar til þess að taka
á móti heimsfrægðinni þegar hún
bankar upp á.
„Nei, ég held maður sé nú alveg
rólegur með það. Það eina sem
þetta þýðir, að fá umboðsmann, er
að það eru einhverjir með mann
í huga ef það dettur inn eitthvert
skemmtilegt verkefni þá getur ver-
ið að þeir hugsi til manns. Þannig
að maður hefur engu að tapa á
því að vera með umboðsmann en
möguleika á að vinna.“
Byrjaði að leika í menntó
Þorbjörg Helga fikraði sig út á
leiklistarbrautina í menntaskóla
með leikfélaginu í Menntaskól-
anum við Sund. „Og það er gaman
að segja frá því að Hannes [Óli
Ágústsson] bekkjarbróðir minn
úr Leiklistarskólanum sem leikur
líka í myndinni var einmitt líka
með mér í leiklistinni í MS. Þannig
að það var sterkt leikfélag þar.
Margir krakkar þaðan hafa haldið
áfram og gert þetta að atvinnu.“
Að loknu stúdentsprófi lá leið
Þorbjargar Helgu í Háskólann og
Stúdentaleikhúsið. „Krakkarnir
sem voru í leikfélaginu í MS voru
komnir þangað þannig að það var
bara eins og eitthvert framhald
að fara þangað. Og þar kannski
kviknaði þessi áhugi fyrir alvöru
og hugmyndin um að sækja um í
Leikslistarskólann.“
Málmhaus á eftir að fara á
nokkrar kvikmyndahátíðir til við-
bótar og þegar fjörinu í kringum
frumsýninguna hér lýkur ætlar
Þorbjörg Helga að fylgja myndinni
á einhverjar hátíðir. „Nú er bara
að klára frumsýninguna hérna og
svo fæ ég að fara með á einhverjar
fleiri kvikmyndahátíðir. Raggi er
aðallega í því en ég fæ að fara eitt-
hvað með. Það er líka rosalega
gaman að fá að fylgja henni eftir.“
Draumur leikarans
Þorbjörg Helga fékk að vinna
náið með Ragnari í undirbúnings-
vinnunni og fékk því að leggja
persónunni ýmislegt til þótt Málm-
haus hafi verið gerð eftir hand-
riti en ekki byggð á spuna eins
og til dæmis myndirnar Börn og
Foreldrar sem Ragnar gerði með
Vesturportshópnum.
„Hann leyfði mér að koma
mjög snemma inn í ferlið og lesa
fyrsta uppkastið að handritinu
og þá gat ég komið með punkta
fyrir persónuna mína og handritið
sjálft. Ég fekk að hafa rosalega
mikið að segja og það er náttúr-
lega draumur fyrir leikara að fá að
vinna svona við undirbúninginn og
vera í þessu samtali við leikstjór-
ann svona löngu áður. Það var búið
að svara svo mörgum spurningum
þegar maður kom á settið fyrsta
daginn að maður var einhvern
veginn bara tilbúinn að hefja tökur
og byrja að vinna.“
Þegar Þorbjörg Helga er spurð
hvað sé framundan að öðru leyti er
fátt um svör. „Það er alltaf eitthvað
í gangi en nú hlakka ég bara til að
frumsýna myndina hérna heima og
sjá hana með mínu fólki. Síðan tek
ég bara einn dag í einu. Tek bara
einn dag í einu. Alveg sallaróleg.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
viðtal 21 Helgin 11.-13. október 2013