Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 24
Deildirnar
eru fullar
af skúma-
skotum og
dimmum
hornum
sem erfitt
reynist að
hafa gætur á,
sem er mjög
óheppilegt
ef sjúklingar
sýna tilburði
til að skaða
sjálfa sig eða
aðra.
Heilbrigðiskerfi
á Heljarþröm
hluti2.
A
ðbúnaður sjúklinga
og umhverfi þeirra er
ein af þremur megin-
stoðum í meðferð geð-
sjúkra, að sögn Maríu
Einisdóttur, framkvæmdastjóra geð-
sviðs Landspítalans. Hinar tvær eru
sjúklingurinn sjálfur og starfsfólkið
sem veitir honum meðferð og það um-
hverfi sem meðferðin fer fram í.
Umhverfi og aðbúnaður geðsjúkra
er afar mikilvægur og því brýnt að
fram fari nauðsynlegar endurbætur á
úr sér gengnu húsnæði geðsviðs, sem
stenst illa kröfur nútímageðlækn-
inga, að sögn Maríu.
Fyrir skömmu var tekin í notk-
un geðgjörgæsludeild, svokölluð
bráðageðdeild, sem mikil þörf var á.
Þar eru veikustu sjúklingarnir vist-
aðir í tíu einbýlum þar sem fyllsta
öryggis sjúklinga er gætt. Þetta eru
mikið veikir sjúklingar sem oft eru
með hegðunartruflun og eru jafnvel
hættulegir umhverfi sínu eða sjálfum
sér. Áður voru þessir sjúklingar
vistaðir með öðrum minna veikum
á þremur deildum á Hringbraut sem
var ekki ákjósanlegt. Eyrún Thor-
stensen er deildarstjóri bráðageð-
deildar. Hún segir hönnun nýju
deildarinnar sérstaklega vel heppn-
aða og hún hafi skilað bættri þjónustu
við sjúklinga, jafnt þeirra sem liggja
á deildinni sjálfri, sem til sjúklinga á
öðrum deildum.
Bráðageðdeild fækkaði legu-
plássum
Með tilkomu bráðageðdeildar
fækkaði hins vegar leguplássum á
geðdeildum Landspítalans um sjö því
einni af þremur almennum legudeild-
um geðsviðs var breytt í bráðageð-
deild. Nauðsynlegt þykir að svo mikið
veikir sjúklingar séu á einbýli og því
fækkaði legurúmum á deildinni um
sjö. Ákjósanlegast hefði þó verið að
bæta við bráðageðdeildinni og auka
þjónustuna þannig enn meir.
„Við breytingar á deildinni var ör-
yggi sjúklinga haft í fyrirrúmi,“ segir
María. „Hönnunin miðaðist við að út-
rýma hættusvæðum, svo sem skúma-
skotum og svæðum utan almenns
sjónsvæðis starfsfólks, til að koma í
veg fyrir árekstra. Einnig var hugsað
fyrir því að enginn hlutur hér á deild-
inni geti nýst fólki til að skaða sjálft
sig eða aðra, hurðahúnar, sturtuhaus-
ar, blöndunartæki, speglar, húsgögn
og þar fram eftir götunum, allt er
þetta sérvalið hér inn með öryggis-
sjónarmið í huga,“ bendir hún á.
Húsnæði geðdeildanna á Hring-
braut var byggt árið 1979 og hefur lít-
ið sem ekkert breyst síðan enda tekur
arkítektúrinn mið af því. Umhverfið
er niðurdrepandi og drungalegt
með löngum, dimmum göngum með
dökkum loftum. Veggir í stigagöng-
um og á fleiri stöðum eru grófir og
steyptir þannig að steinnibbur standa
út. Deildirnar eru fullar af skúma-
skotum og dimmum hornum sem
erfitt reynist að hafa gætur á, sem er
mjög óheppilegt ef sjúklingar sýna til-
burði til að skaða sjálfa sig eða aðra.
Flest herbergin eru tvíbýli og hús-
búnaður er úr sér genginn að undan-
skilinni dag- og göngudeild fíknigeð-
deildar á jarðhæð, sem endurnýjuð
var fyrir bráðum áratug.
„Áform um nýjan spítala gera ráð
Húsnæði geðsviðs
stenst ekki nútímakröfur
Drungalegt og úr sér gengið húsnæði geðsviðs Landspítalans að Hringbraut stenst illa kröfur nútíma
geðlækninga. Öryggismálum er þar einnig ábótavant svo tryggja megi öryggi sjúklinga sem starfsfólks.
Geðsvið verður ekki hluti af nýjum spítala og því er enn brýnna en nokkru sinni að ráðast í nauðsynlegar
endurbætur og viðhald sem hefur verið vanrækt svo það lekur og myglusveppur þrífst.
fyrir að geðsvið sé í „varanlegu hús-
næði“, eins og það var orðað,“segir
María. „Það þýðir að ekki er gert ráð
fyrir okkur í nýjum spítala og því
verðum við hér. Það voru mikil von-
brigði en við verðum að sætta okkur
við það. Lágmarkskrafan er þá að
húsnæðinu sé haldið við og hér fari
fram nauðsynlegar endurbætur í
þágu sjúklinga,“ segir hún.
Öryggi sjúklinga ábótavant
„Við erum ekki að tala um neitt pjatt,
heldur einfaldlega öryggi sjúkling-
anna,“ segir María og nefnir nokkur
dæmi: „Samkvæmt vinnureglum
okkar, sem eru settar í þágu sjúkling-
anna, förum við ekki með veikustu
sjúklingana í lyftu milli hæða. Það
getur skapað ýmis vandamál, bæði
eru aðstæður í lyftu ekki öruggar og
einnig getur rýmið skapað vanlíðan
hjá sjúklingnum. Við förum því alltaf
með veikustu sjúklinga á milli hæða
um stigagang en arkítektúrinn á
honum er þess eðlis að veggirnir í
stigaganginum eru beinlínis hættu-
legir. Ef til átaka kemur við sjúkling
getur fólk meitt sig illa við að kastast
utan í veggina,“ bendir hún á.
Legudeildirnar eru þannig hannað-
ar að fyrir framan hver tvö herbergi
Framhald á næstu opnu
Kynningar og góðgerðamálefnið
Á allra vörum, réðst í söfnun fyrir
bráðageðdeild í ár og afhenti í
gær, fimmtudag, um 50 millj
ónir auk ýmissa gjafa, sem nýtast
munu til áframhaldandi fram
kvæmda við bráðageðdeildina.
Lósmyndir/Hari
24 fréttaskýring Helgin 11.13. október 2013