Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 35
Made by
Germans
Bosch-dagar
Þýsk gæða-heimilistæki
frá Bosch nú á frábæru
tilboðsverði.
Ryksuga
BSGL 32238
2200 W. Hepa-sía.
Parkethaus fylgir með.
Vinnuradíus: 10 metrar.
Tilboð:
24.900 kr.
Fullt verð: 34.900 kr.
Kæliskápur,
úr stáli (kámfrír)
KGN 36NL20
Orkuflokkur A+. NoFrost:
Affrysting óþörf. Tvö
kælikerfi. Kælir: 221 lítra.
Frystir: 86 lítra. H x b x d:
186 x 60 x 60 sm.
Tilboð:
149.900 kr.
Fullt verð: 199.900 kr.
Þvottavél
WAE 28271SN
Tekur mest 7 kg.
Orkuflokkur A+++.
Hámarksvinduhraði: 1400
sn./mín.
Tilboð:
119.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
Uppþvottavélar
Mjög hljóðlátar, 44 dB.
Orkuflokkur A++. 14
manna. Fimm kerfi.
Séraðgerðir: Tímastytting
kerfa, kraftþvottur og
kraftþurrkun.
Tilboð (hvít):
SMU 58M22SK
139.900 kr.
Fullt verð: 189.900 kr.
Tilboð (stál):
SMU 58M25SK
149.900 kr.
Fullt verð: 199.900 kr.
Bakstursofn
HBA 23B151
XXL ofnrými: 67 lítra.
Orkuflokkur A. Fimm
hitunaraðgerðir.
Tilboð:
99.900 kr.
Fullt verð: 144.900 kr.
Þurrkari
WTW 84100SN
Barkalaus. Tekur mest 7
kg. Orkuflokkur A+.
Sérkerfi: Íþróttafatnaður
og 40 mín. hraðkerfi.
Nýjung: Sjálfhreinsandi
rakaþéttir.
Tilboð:
149.900 kr.
Fullt verð: 189.900 kr.
Þú sparar 45.000 kr.
Þú sparar 50.000 kr.
Þú sparar 50.000 kr.
Þú sparar 10.000 kr. Þú sparar 50.000 kr.
Þú sparar 40.000 kr.
Þú sparar 30.000 kr.
Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á
laugardögum frá kl. 11 - 16.
að það var eitthvað að en þau vissu
ekki hvað. Í framhaldinu var virki-
lega saumað að mér og ég samþykkti
að fara inn á geðdeild. Eftir það fór
ég síðan beint í meðferð. „Ég tókst
svo á við hvoru tveggja, geðhvarfa-
sýkina og neysluna. Ég varð í raun
afskaplega hræddur og held að þess
vegna hafi ég strax tekið lyfin mín
samviskusamlega. Ég varð hræddur
því ég vissi að ég gæti endað aftur á
sama stað og ég var þegar ég eyddi
þessari nótt á lagernum. Ég var líka
þakklátur fyrir að hafa komist frá
þessu. Mér fannst ég eiga inni hjá
sjálfum mér og öðrum að ég myndi
ekki klikka. Ég fékk þennan eina
séns og ég ætlaði að nota hann vel.“
Undir áhrifum með barnið
í bílnum
Á þessum tíma var Heiðar Ingi ein-
hleypur en átti ellefu ára gamla
dóttur, Steinunni Lilju. „Hún var
eina barnið mitt á þessum tíma. Það
var töluverð vinna fyrir mig að gera
þetta upp með henni. Hún bjó ekki
hjá mér en upplifði engu að síður
ýmislegt sem hún hefði ekki átt að
upplifa. Alkóhólisti tekur neysluna
fram yfir alla aðra. Forgangsröðunin
er kolvitlaus, þú lýgur og stendur
ekki við það sem þú ert búinn að lofa.
Ég veit ekki hvað ég hef oft keyrt
með hana skakkur þegar ég var í
dagneyslu. Það er ýmislegt sem er
erfitt að horfast í augu við en á milli
okkar í dag er bara tær væntumþykja
og vinátta. Við erum búin að gera
málin upp og nú er fyrsta afabarnið
mitt á leiðinni.“
Heiðar Ingi hefur verið á beinu
brautinni í 16 ár, er óvirkur alkó-
hólisti og tekur daglega lyf til að
halda geðhvarfasýkinni í skefjum.
„Ég hef farið í gegnum tímabil þar
sem mig langar að hætta að taka
lyfin mín. Það langar engan að vera
geðveikur og ég er minntur á það
tvisvar á dag þegar ég tek lyfin. Það
er einstaklingsbundið hvernig lyfin
virka. Það eru aukaverkanir en ég
hef fengið mjög litlar. Það skiptir líka
miklu máli að ég er vel giftur,“ segir
hann glaðlega. „Það hafa komið erfið
tímabil en ég hef þá fengið hjálp. Í
eitt skiptið var ég harðákveðinn í
að hætta að taka lyfin. Konan mín
stoppaði mig þá af og sagði að ég
gerði það ekki án samráðs við lækn-
inn. Ég fór til læknis og hann sagði
bara þvert nei.“
Kynntist þriggja barna móður
Heiðar Ingi kynntist eiginkonu sinni,
Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur,
um 8 mánuðum eftir að hann kom úr
meðferð. „Hún átti þrjú börn, Daníel
Mána og tvíburana Unni Blævi og
Sóleyju Ylju, og svo eignuðumst við
saman yngstu stelpurnar. Það var
kannski ekki ákjósanlegast fyrir
nýþurrkaðan alka en við bara urðum
skotin hvort í öðru. Ég er ákaflega
glaður yfir því hvað fósturbörnin
hafa tekið mér vel.“ Hann segir Aðal-
björgu, eða Öddu eins og hún er
kölluð, ekki hafa sett það fyrir sig
að hann væri nýkominn af geðdeild
og úr meðferð. „Fortíðin bara skipti
ekki máli.“ Hann rifjar síðan upp
þegar Adda var í sjúkraliðanámi,
áður hún lærði hjúkrunarfræði, að
henni blöskruðu fordómar samnem-
enda sinna í garð geðsjúkra og fékk
hún þá eiginmanninn til að koma í
tíma og ræða sín veikindi. Hann hug-
leiddi þá ekkert meira að ræða þessi
mál fyrr en nokkru áður en hann hélt
predikunina. „Ég man að ég hugsaði
um það þegar ég las viðtal við Högna
í Hjaltalín í blaðinu ykkar. Mér
fannst það virkilega djarft hjá honum
að koma fram og segja frá sínum
veikindum. Hann er líka að glíma við
þau núna en það eru 16 ár síðan ég
veiktist.“
Erfitt að tala um geðsjúkdóma
Predikun Heiðars Inga var birt á
vef Þjóðkirkjunnar, Trú.is, og hefur
hann fengið gríðarleg viðbrögð, jafn-
vel frá ókunnugu fólki. „Ég er í dag
búinn að fá símtöl frá fólki sem ég
þekki misvel sem er að þakka mér fyrir
að halda umræðunni opinni. Það er auð-
vitað tilgangurinn, að geðsjúkdómar
hætti að vera það feimnismál sem þeir
eru.“ Hann segist í raun hafa þurft að
glíma við eigin fordóma í gegnum tíð-
ina. „Steríótýpan af geðveikum manni
er að hann sé fárveikur í spennitreyju
og eigi aldrei afturkvæmt í samfélagið.
Mér fannst óþægilegt þegar ég þurfti
að fara niður á geðdeild til að hitta
lækni. Fólk á svo erfitt með að ræða um
geðsjúkdóma og það er enn erfiðara
að takast á við þá ef þú treystir engum
fyrir því að þú sért veikur, og enginn
viti kannski af þeim nema maki þinn.
Það skiptir máli að fólk geti talað um
þetta rétt eins og um gigt og hjartveiki.
Í raun fylgdi því ákveðinn léttir að tala í
kirkjunni. Ekki að ég hafi þurft að segja
neinum þetta. Það var samt einhver
léttir að gangast við sjálfum sér eins og
maður er, að segja: Svona er ég, með
öllum mínum kostum og göllum.“ Engu
að síður segist hann innst inni vera
feiminn og örlítið feginn að vera farinn
til útlanda þegar þetta viðtal birtist. „Ég
er að fara í vinnuferð og það er örugg-
lega aðeins þægilegra að vera bara í
útlöndum þegar blaðið kemur út.“
Á veggnum við borðstofuborðið
þar sem Arna Dís sat og teiknaði er
ritningarvers úr Lúkasarguðspjall: „Því
hvar sem fjársjóður yðar er þar mun
og hjarta yðar vera.“ Heiðar Ingi segir
að konan sín hafi valið þessa tilvitnun.
„Hún er miklu klárari en ég. Hún hefur
í raun dýpkað mína trú en hún var
mjög trúuð fyrir þegar við kynntumst.
Þetta ritningarvers segir í raun mikið
um þetta heimili.“ Dóttirin er komin í
sófann og þau feðginin halda utan um
hvort annað. „Fjölskyldan er akkerið
mitt. Hún er lykillinn að þessu öllu,“
segir Heiðar Ingi. Þegar ég kveð réttir
dóttir hans mér myndina sem hún var
að teikna allan þennan tíma og segist
vilja gefa mér hana. Hún hafði teiknað
það sem fyrir augu bar meðan hún sat
undir ritningarversinu; myndirnar á
veggjunum á móti, stigann upp á næstu
hæð, gólfflísar og stofuskáp. Hún
merkti síðan myndina með nafni sínu,
og til skýringar að hún væri „dóttir
Heiðars / geðveikur pabbi.“ Ég fæ því
að hafa með mér smá minningar um
fjársjóðinn – þar sem hjartað er.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég held að ég
hafi eytt lung-
anum úr nótt-
inni þar, ég
fór upp á stól
og ætlaði að
hengja mig.
viðtal 35 Helgin 11.-13. október 2013