Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 42
Helgin 11.-13. október 201342 E dda Lilja Guðmunds- dóttir er lærður textíl- kennari en stundar núna nám í tölvunar- fræði við Háskólann Reykjavík ásamt því að starfa hjá versluninni Handprjón.is í Hafnarfirði. Edda er mikill heklari og segir heklið alveg dásamlegt. „Sonur minn sagði einhvern tíma að það væri svo magnað að vera með eina nál og garn og geta búið til heila peysu úr því og það lýsir heklinu vel,“ segir hún og bætir við að miklu styttri tíma taki að hekla en prjóna. „Maður er líka frjáls- ari í hekli og það er auðveldara að fara í allar áttir. Ef maður gerir villu er auðveldara að fela hana en í prjóni. Svo er úrvalið af garni líka mikið og þessi í dýrari kantinum eru mjög góð. Ég er orðin svolítið garnsnobbuð.“ Árið 2009 átti Edda mikið af af- gangsgarni og setti sér það mark- mið að prjóna eina húfu á viku út árið. Árið eftir gerði hún svo fimmtíu og tvo skartgripi. Hún tók sér smá frí eftir þau verk- efni en er nú byrjuð aftur af fullum krafti og gerir mikið fyrir sjálfa sig en vinnur einnig að uppskriftum fyrir Handprjón.is. „Núna er ég al- veg á kafi í kaðlahekli og held nám- skeið í október. Svo stendur til að gefa út uppskriftirnar að húfunum fimmtíu og tveimur á næstunni.“ Edda Lilja heldur úti blogg- síðunni snigla.wordpress.com þar sem finna má ýmsar fallegar uppskriftir. Hérna fyrir neðan er uppskrift frá Eddu að heklaðri diskamottu.  Hannyrðir DásamlEgt HEkl Nál, garn og allir vegir færir Edda Lilja Guðmundsdóttir er heklari af lífi og sál og finnst miklu skemmtilegra að hekla en að prjóna og er þessa dagana á kafi í kaðlahekli. Hún gefur lesendum Fréttatímans uppskrift að diskamottu sem er vitaskuld hekluð. Dönsku Hay stólarnir eru stílhreinir, fallegir og sígildir. Stærri stóllinn fer einkar vel, bæði stakur sem hvíldarstóll eða við eldhús- eða borðstofuborð en fætur allra stólanna eru jafnháir. Hay setti stólana á markað árið 2011 og er hönnun þeirra innblásin af sjötíu ára gamalli hönnun frá öðru dönsku fyrirtæki, FDB Møbler. Stólarnir eru til í nokkrum litum og fást hjá Epal. Sígildir og fallegir stólar Edda Lilja Guðmundsdóttir segir auðvelt að skapa með hekli og er orðin svolítið garnsnobbuð. Ljósmynd/Sveinn Speight Efni og áhöld: Randalína, fæst til dæmis hjá Handprjón.is 3,5 mm heklunál. Heklfesta í stuðlum: 20 ST = 10 cm , 10 umferðir = 10cm. Útskýringar: L: Lykkja/ur KL: Keðju- lykkja LL: loftlykkja ST: Stuðull ET: Endurtakið LLB: Loftlykkjubil (bil úr loftlykkjum). 2 ST saman: (sláið uppá nálina, farið í næstu L, sláið uppá nálina og dragið í gegn, sláið uppá nálina og dragið í gegnum 2 bönd) x2, sláið uppá nálina og dragið í gegnum böndin sem eftir eru á nálinni. 3 STSA: 3 stuðlar teknir sam- an: (sláið uppá nálina, farið í næstu L, sláið uppá nálina og dragið í gegn, sláið uppá nálina og dragið í gegnum 2 bönd) x3, sláið uppá nálina og dragið í gegnum böndin sem eftir er á nálinni. Horn: Heklið (3 STSA, 2 LL)x2 í næsta LLB. Horn2: Heklið (3 ST, 3 LL, 3 ST) í næsta LLB. Aðferð: Diskamottan er hekluð í hring. Byrjað er á því að hekla loftlykkjur sem heklað er í út á enda og svo heklað í þær hinu megin líka. Þaðan er svo diskamottan hekluð hring eftir hring. Diskamottan: Gerið 42 LL 1. umferð: Heklið 2 ST saman (sjá útskýringar) í fjórðu LL frá nál, 2 LL, *3 STSA, 2 LL*. ET frá * til * að síðustu loftlykkju, heklið þannig í síðustu loftlykkjuna: (3 STSA, 2 LL) x3 [Horn]. Nú er heklað hinu megin í sömu loftlykkjurnar til baka (heklað er í hring). ET frá * til * að síðustu lykkjunni (fyrsta loftlykkjan þar sem heklaðir voru 2 ST saman í byrjun). Heklið þannig í síðustu lykkjuna: (3 STSA, 2 LL) x2 [Horn]. Lokið umferð (hér og í öllum umferðum hér eftir) með KL efst í fyrsta stuðul umferðar. 2. umferð: KL í næsta LLB, 2 LL, 2 ST saman í sama LLB, 2 LL, *3 STSA í næsta LLB, 2 LL*. ET frá * til * að næsta horni. Heklið horn tvisvar. ET frá * til * að næsta horni, heklið horn tvisvar. Lokið umferð eins og áður. 3. umferð: KL í næsta LLB, 2 LL, 2 ST saman í sama LLB, 2 LL,( *3 STSA í næsta LLB, 2 LL*. ET frá * til * að næsta horni. Heklið horn) x4. ET frá * til * út umferð. Lokið umferð eins og áður. 4. umferð: KL í næsta LLB, 3 LL, 2 ST í sama LLB, (*3 ST í næsta LLB*, ET frá * til * að næsta horni, heklið horn2 (sjá útskýringar))x4. ET frá * til * út umferð. Lokið umferð eins og áður. 5.-13. umferð (í þessum umferðum er alltaf heklað í aftara bandið): 3 LL,* 1 ST í næsta ST*,( ET frá * til * að næsta horni, heklið horn2) x4. ET frá * til * út umferð. Lokið umferð eins og áður. Gangið frá endum. Til að diskamottan verið slétt og flott í laginu þarf að bleyta hana og strekkja. Hekluð diskamotta eftir Eddu Lilju Guðmundsdóttur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.