Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 44
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Tilboð
Frá 2.588 kr.
Úti- og innimottur á tilboði
– úrval af frábærum mottum í mörgum
gerðum og stærðum
Sú var tíðin að ómissandi þótti að
þrífa hvert heimili hátt og lágt áður
en jólin gengu í garð. Slíkt getur
tekið langan tíma og fyrir þá sem
vilja hafa heimilið sem fínast um
jólin er um að gera að byrja á jóla-
hreingerningunni núna í október og
sinna henni í áföngum fram til jóla.
Gott er gera áætlun og leysa eitt
hálftíma til klukkutíma langt verk-
efni á viku og þá verður þetta minna
mál en ella. Sem dæmi væri hægt
að þrífa alla neðri skápana í eldhús-
inu í þessari viku og taka þá efri í
næstu viku. Þar á eftir væri hægt
að fara í gegnum fataskápa heim-
ilisins, þurrka úr þeim og fjarlægja
þær flíkur sem ekki eru lengur í
notkun. Þá verður líka meira rými í
skápunum fyrir innihald mjúku jóla-
pakkanna. Í vikunni þar á eftir væri
hægt að þrífa hvern krók og kima
baðinnréttingarinnar og henda tóm-
um krembrúsum og öðru sem engin
not eru fyrir. Vikuna þar á eftir væri
kjörið að strjúka af öllum gólflistum
og þannig koll af kolli vikurnar fram
að jólum. Með þessu móti verður
meiri tími aflögu í desember til að
njóta aðventunnar.
Jólahreingern-
ingin í áföngum
F yrirtæki í Finnsk-íslenska við-skiptaráðinu létu gera könnun á síðasta ári á viðhorfi Finna til Ís-lands og íslenskrar framleiðslu.
Að sögn Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, for-
manns ráðsins, voru niðurstöðurnar mjög
jákvæðar og sýndu að um níutíu og fjögur
prósent þeirra sem svöruðu töldu uppruna-
land vöru skipta miklu máli og af þeim hópi
voru áttatíu og níu prósent sem sögðu að
íslenskar vörur hefðu mjög jákvæða ímynd í
sínum huga. „Svona niðurstöður er gríðar-
lega mikilvægar fyrir þá sem hafa áhuga á
að skoða að fara í viðskipti með sínar vörur
til Finnlands og ekki
síður fyrir
þá sem eru
þegar í við-
skiptum
þar því
það
skiptir
máli að
vita hvað
hefur áhrif á
kauphegðun
viðskiptavina.
Niðurstöðurnar
sýna að sé verið
að flytja íslenskar vörur til Finnlands hefur
góð áhrif að auglýsa sérstaklega að varan sé
frá Íslandi.“
Þátttakendur í könnuninni voru rúmlega
þrjú þúsund talsins og var hún send út í
gegnum samskiptamiðilinn Facebook. Þeg-
ar þátttakendur voru beðnir um að lýsa því
hvað þeim fannst einkenna Ísland svöruðu
sjötíu og fjögur prósent því að landið væri
sérstakt en rúmlega sextíu prósent sögðu
það vera áhugavert eða fallegt og um fimm-
tíu prósent að það væri dularfullt og spenn-
andi. Þá sagðist meirihlutinn tengja íslensk-
ar vörur við hreinleika og náttúruna og telja
að íslensk framleiðsla væri
almennt vistvæn.
„Niðurstöðurnar
sýna að Finnar
líta á íslenskar
vörur sem
hágæða vörur
sem eru góð
tíðindi,“ segir
Þórdís Lóa.
Að mati Þórdísar
Lóu eru því mikil
sóknarfæri fyrir
íslenskar vörur í
Finnlandi. Enn er
það helst skyr, lýsi og
síld sem hafi öðlast
vinsældir í Finnlandi.
„Maður er farinn að sjá
smávegis af íslenskum
hönnunarvörum þar núna
en ég tel mikla möguleika fyrir íslenska
hönnun í Finnlandi.“ Að sögn hennar er
almennt mikill áhugi á hönnun í Finnlandi
og var höfuðborgin Helsinki hönnunarborg
heimsins á síðasta ári og því um að gera fyr-
ir íslenska framleiðendur að róa á þau mið.
Í gær hélt Finnsk-íslenska viðskiptaráðið
málþing í samstarfi við sendiráð Finnlands
á Íslandi undir yfirskriftinni Tækifæri
í Finnlandi – hönnun, smásala og
reynslusaga. Á málþinginu voru nið-
urstöður könnunarinnar kynntar
ásamt möguleikum íslenskrar
hönnunar í Finnlandi.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sóknarfæri fyrir íslenskar vörur í Finnlandi
Niðurstöður könnunar sýna að Finnar hafa mjög jákvætt viðhorf til Íslands og ís-
lenskra vara. Meirihluti svarenda kvaðst hafa jákvæða ímynd af Íslandi og telja að
hreinleiki og vistvæn framleiðsla einkenni íslenskar vörur. Formaður Finnsk-íslenska
viðskiptaráðsins segir niðurstöðurnar sýna að sóknarfærin séu svo sannarlega til
staðar fyrir íslenska hönnun í Finnlandi.
Íslenskt skyr er mjög
vinsælt í Finnlandi,
líkt og íslenska
síldin og lýsið.
Niðurstöður könnunar Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins sýndu að meirihluti svarenda tengir íslenskar
vörur við hreinleika og náttúruna og telur að framleiðslan sé vistvæn. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty Images
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
formaður
Finnsk-ís-
lenska
viðskipta-
ráðsins.
heimili & hönnun Helgin 11.-13. október 201344